Bæjarins besta - 31.03.1999, Síða 9
- Þú ert einn af tiltölulega
fáum ísfirðingum sem hafa
farið brott til náms og snúið
síðan heint afturmeðháskóla-
próf upp á vasann. Eg spurði
þig ekki alls fyrir löngu, hvort
þú byggist við því að eiga hér
heinta meðan öndin blaktir í
nösum ellegar fara suður eins
og allir. Mér fannst eins og þú
byggist alveg eins við því að
fara suður...
„Það sem heldur manni
hérna er fyrst og fremst vinnan
og aðstaðan til skíðaiðkunar.
Og nú svo komið með Dalinn
eins og það er.“
- Og ekki er bridsið lengur.
Mér skilst að það sé nú að
mestu aflagt hér á ísafirði.
Flestir bestu bridsmennirnir
eru ýmist dánir, eins og Einar
Valur, eða farnir burt, eins og
Guðmundur Mósi og ungu
strákarnir sem gerðu garðinn
frægan fyrir Islands hönd fyrir
nokkrum áruum...
Hvar er gððærið?
„Já, ef maður ætlar að spila
hérna fyrir vestan, þá verður
að fara til Þingeyrar. Það hefur
á ýmsum sviðum hallað undan
fæti hjá okkur félagslega á
undanförnum árum.“
-Segja má að Isafjörður hafi
átt þrjú uppgangstímabil á
þessari öld - í byrjun aldar, á
tímum Samvinnufélagsút-
gerðarinnar og loks á tímum
skuttogaravæðingareftir 1970
og fram um 1985...
„Já, hér kom góður tími
þegar síldin hvarf og bátarnir
komu hingað heim aftur og
skuttogararnir upp úr því.“
- En hvað með góðærið
ntargfræga sent nú ríkir í þjóð-
félaginu?
„Það hefur ekki komið til
ísafjarðar."
— Sérðu ekki djarfa fyrir því
á suðurhimninum?
„Eg held að við séum hér
að grafa okkar eigin gröf með
ýmsum hætti og ástæðulítið
að rökstyðja það nánar. Þetta
eru ekki góðir tímar.“
Eyrin og breytingarnar
- Segja má að þú hafir búið
í hornunum á litlum þríhyrn-
ingi hér á eyrinni á Isafirði -
fyrst niðri á Bökkum, síðan
við Aðalstræti 13 og loks hér
við Silfurtorgið. En eyrin er
fjarri því að vera hin sama og
fyrrum. Fjaran mun á sínum
tíma hafa náð upp að húsinu
við Aðalstrætið...
„Það var reyndar búið að
fylla nokkuð upp þar fyrir
framan þegarpabbi keypti. En
áður féll alveg upp að húsun-
um við Aðalstræti 11 og 13
og oft kom fyrir að flæddi inn
í kjallara."
- Landslagið á eyrinni hefur
breyst afar mikið á liðnum
áratugum. Hún hefur stækkað
og stækkað og fjörurnar eru
einungis til á myndum og í
minningunni. Í æsku þinni var
eiðið í Mjósundunum ennþá
mjótt...
„Já, það var rétt vegarslóð-
inn þar sem þar var mjóst.
Dokkan er horfin, Rifið horfið
og öll fjaran kringum eyrina.
Ég held að það sé ekkert eftir
af þeirri fjöru sem varhérþeg-
ar ég var að alast upp. Það er
búið að hlaða utan á alla eyrina
og rúmlega það.“
Og undirritaður minnist
gamals og löngu brottflutts
ísfirðings sem dvaldist í Sól-
túnum í sumar og gekk um
eyrina að leita að löngu horf-
inni fjöru æsku sinnar.
Þaraslagur og Jons
Andréssooartúnið
„Fjaran hérna Pollmegin
var leiðinleg og raunar lítil
eftirsjá að henni, nema kann-
ski hclst við Hrannargötu og
Sólgötu. Þar var nokkuð
skemmtileg fjara. En annars
var fjaran við Pollinn skítug
og leiðinleg, alveg niður í
bátahöfn, og við sóttum ekki
mikið í hana. En að norðan-
verðu var skemmtileg sand-
fjara og góður leikvangur."
- Þar hefur að líkindum ver-
ið mikið af þangi og þara...
„Já, heilu garðamir, og oft
var farið í þaraslag."
Fyrir fimmtíu-sextíu árum
voru Efribæjarpúkarnir á ísa-
firði mikið á skíðunum en
púkarnir í Neðribænum héldu
sig í fjörunum og á bryggjun-
um. Arnar Geir kveðst nú eitt-
hvað hafa farið upp á Jóns
Andréssonartúnið á skíði en
þó meira á sleða. „Ég var að-
eins á skíðum en það var enda-
laust basl og það varð ekkert
úr því á þeim árum að ég yrði
skíðamaður. Það beið betri
tíma.“
Á Old Trafford og Vemblí
En það er fleira matur en
feitt ket og fleira íþróttir en
brids og skíðaskrið. Arnar
Geir er kunnur að knatt-
spyrnuáhuga en sá áhugi fær
ekki útrás í hlaupum og mark-
skotum á fótboltavelli, heldur
einkum fyrirframan sjónvarp-
ið. Þó hefur hann komið bæði
á Trafford gamla (heimavöll
Manchester United) og Wem-
bley (eða Vembil eins og hann
heitir á íslensku). Á Vembli
sá Addi á sínum tíma úrslita-
leik Everton og Watford í
bikarkeppninni. Þar var við-
staddur þáverandi eigandi
Watford-liðsins, sjálfur Elton
John íeigin persónu, og bless-
aði lýðinn. Hins vegar tók
hann ekki lagið. Arnar Geir
hefur haldið með Manchester
United meira en fjörutíu ár
eða allt frá flugslysinu í
Mtinchen árið 1958.
- Ætlarðu ekkert að fara að
skipta um lið?
„Objection!" segir Arnar
eins og Matlock í réttarsaln-
um. „Þetta er heilagt. Þetta er
meira en trúarbrögð. Menn
halda ekki einu sinni með ís-
lenskum liðum eins og með
Manchester United. Og þó að
maður eigi einhver uppáhalds-
lið í öðrum löndum, þá víkja
þau öll l'yrir United. Einhvern
veginn er það svo með mig og
marga fleiri, að enski boltinn
er algerlega númer eitt. Það er
alger niðurlæging hjá Ríkis-
sjónvarpinu hvemig þeir glutr-
uðu honum niður. Þeir virðast
ekki hafa neinn skilning á
vægi hlutanna í hugum þeirra
sem fylgjast með íþróttum.
Þeir eru að sýna okkur pflu-
kast og hjólreiðar og ég veit
ekki hvað, sem enginn áhugi
er fyrir.“
Að hafa áhrif á dómarann
- Þú ert ekki aðeins áhuga-
maður um enska boltann. Þú
ferð á leiki hjá KFÍ og and-
skotast í dómurunum eins og
vera ber við þær aðstæður...
„Já, ég reyni vissulega að
hafa áhrif á þá, reyndar rneð
tiltölulegahógværum frammí-
köllurn."
- Hvemig er það í praxísn-
unt - reynirðu líka þar að hafa
áhrif á dómarana, t.d. með
frammíköllum (þó ekki væri
nema tiltölulega hógværum)
í dómsal?
„Það er nú dálítið öðruvísi.
Þessi taktík hrífur vonandi
eitthvað á körfuboltadómar-
ana en ég er viss um að hún
mundi ekki gagnast í mál-
flutningi."
- Þú ætlar ekki að prófa
hana á Erlingi héraðsdómara?
„Nei. Þar verður að beita
einhverjum lagalegum aðferð-
um.“
- En þið eruð bræður í and-
anum hvað varðarManchester
United...
„Já, Erlingur hefur vissu-
lega sitthvað til brunns að
bera.“ Og Addi Geir viður-
kennir fúslega að það hafi ver-
ið góð skipti þegar Erlingur
tók við af Jónasi Jóhannssyni
héraðsdómara, hinum eld-
heita Arsenal-manni. „Jónas
hafði ekkert vit á fótbolta",
segir hann.
Körfuboltinn
Arnar kveðst ekki vera fé-
lagsmaður í ísfólkinu og hann
hefur ekki fylgt KFI á útileiki.
„Nei, ekki gagngert. En ef ég
er fyrir sunnan, sem ég er nú
talsvert mikið, þá reyni ég að
fara á alla leiki KFÍ þar. Ef til
vill reyni ég líka stundum að
haga ferðum mínum suður í
samræmi við leikjaskrána. Ég
hef séð marga leiki KFI fyrir
sunnan og hef virkilega gam-
an af því að sjá allt það glæsi-
lega fólk sem er flutt héðan
frá Isafirði og kemur á leikina
og styður liðið.“
Gamalt og nýtt
Við stöndum upp og horfum
yfir Silfurtorgið. Arnari þykir
nokkuð vel hafa tekist til við
breytingarnar á Silfurtorginu
fyrir skömmu. Þó finnst hon-
um eins og fleirum mikill
sjónarsviptir að Prófessorn-
um, Ijósastaurnum gamla og
fræga sem þá var fjarlægður.
„Það er allt of mikið af
göntlum gildum sem við slátr-
um hér á ísafirði. Til dæmis
eru sárafá gömul félög eftir
með upprunalegu nafni.“
Hann nefnir ýmis dæmi máli
sínu til stuðnings. Helst að
kvenfélögin haldi sínu striki.
„Við gætum verið að halda
upp á ýmis 75 ára eða jafnvel
100 ára afmæli en í staðinn
eru það 25 ára eða 30 ára
afmæli, vegna þess að það
hefur ekki verið gæfa okkar
að halda í það gamla. Hér
voru líka í eina tíð Barnaskól-
inn og Gagnfræðaskólinn og
Menntaskólinn en nú heitir
þetta eitthvað allt annað.“
Því má skjóta hér inn, að
stundum eru samt gerð nterki-
leg „átök“ í afmælishaldi hér.
Árið 1966 voru t.d. mikil há-
tíðahöld í tilefni 100 ára af-
mælis kaupstaðarréttinda á
Isafirði og aðeins tuttugu ár-
um síðar eða 1986 voru aftur
vegleg hátíðahöld og þá í
tilefni 200 ára afmælis kaup-
staðarréttinda á ísafirði. Mult-
um absurdum in capite vac-
cae, eins og gamlir latínugrán-
ar að norðan og sunnan orða
það.
„Heiðarlegir menn“
En aftur varðandi breyting-
arnar á Silfurtorginu. I heild-
ina er Arnar Geir ekkert ósátt-
ur við þær, nema hvað hann
gerir athugasemdir við lausa-
grjóthrönglið sem notað var á
vissum stöðum í hinni nýju
hönnuntorgsins. „Þaðer gam-
an að horfa hér yfir torgið. En
þetta grjót er alveg forkastan-
legt. Það er ljótt, það er sóða-
skapur að því og slysahætta."
Og hann gengur að gluggan-
um og horfir úl yfir torgið.
Hann myndi hreint ekki sýta
það þótt einhverjir „heiðar-
legir rnenn" tækju sig til og
létu grjóthröngl þetta hverfa á
næturþeli. Að sjálfsögðu
kæmi hann sjálfur þar hvergi
nærri. í þessu sambandi rifjast
upp sögufræg mál í Reykjavík
fyrir bráðum hálfri öld eða
svo. Þjóðkunnur umsvifamað-
ur lét þau orð falla. að þegar
kveikt væri í fyrirtækjum væri
grundvallaratriði að fá strang-
heiðarlega menn til slíkra
verka.
Praxísinn
Hér hefur lítið verið rætt
um lögfræðistörf á fremur
smáum stað úti á landi. Arnar
Geir vinnur mikið fyrir lög-
menn og fyrirtæki syðra og
þeir Tryggvi hafa um langan
aldur verið eins og tvílemb-
ingar á eftir sýslumanni eða
fulltrúa hans við ýmis konar
dómsathafnir. Fasteignasalan
hefur jafnframt verið drjúgur
þáttur í starfi Arnars í meira
en tuttugu ár. Arnar segir að
núna sé sá markaður ekki
nema svipur hjá sjón hjá því
sem var fyrir tíu-fimmtán ár-
um. Hann segir að hér hafi
mátt heita gósentíð í fast-
eignaviðskiptum alveg fram
á seinni hluta níunda áratug-
arins. „Það hélst í hendur við
gróskuna í atvinnulífinu."
Hann segir að afkoma lög-
manna sé háð öðrum lögmál-
um en margir halda. „Ymsir
telja að það sé okkar gósentíð
þegar illa gengur í samfélag-
inu og skuldirnar hrannast
upp. Þetta er mesti misskiln-
ingur. Þá fáum við einfaldlega
ekki borgað. Það er ekki nóg
að fá einhver skuldamál og
víxla í innheimtu. Það er
einfaldlega útlagður kostnað-
ur hjá okkur og vinna sem
ekki fæst borgað fyrir. Ef vel-
gengur í bæjarfélaginu, þá
gengur vel hjá okkur. I niður-
sveiflunni drögumst við líka
niður.“
Skrúfgangurinn
Þegar Arnar Geir var bráð-
ungur var hann til sjós á Sól-
borginni, fyrst eitt sumar og
síðan hausttíma og fram á
vetur. Seinna var hann á Páli,
eins og áður segir. Þegar hann
var á sjónum átti hann framan
af í dálitlum erfiðleikum með
að muna skrúfgang á boltum
á toghlerum og öðru. En þá
kom hið einfalda ráð eins og
frelsandi engill: Til að losa
bolta á að skrúfa hann eins og
þegar tappi er skrúfaður af
áfengisflösku. Eftir að Arnar
Geir áttaði sig á þessu klikkaði
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1999
9