Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.03.1999, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 31.03.1999, Qupperneq 10
hann aldrei á boltunum. Af vissum ástæðum gæti einhver haldið að Arnar Geir væri nú farinn að ryðga í skrúfgang- inum á ný, en hann telur svo ekki vera. Þetta er víst eitt af því sem aldrei tapast niður, rétt eins og að hjóla eða synda. Silfurtorgið Húsið að Silfurtorgi 1 er merkilegt fyrir ýmsar sakir. Staðurinn, útlitið, sagan, sjálft húsnúmerið... Silfurtorgið er hjarta Isafjarðar og húsið númer eitt hlýtur því að vera hjartað í hjartanu. ef svo vel og heimskulega má komast að orði. Nú sjáum við ein- hvern staur rísa fyrir utan gluggann. Ætli Prófessorinn sé mættur? Nei, það er ekki svo gott. Það er verið að koma upp stöngum fyrir fánaborg. Forseti Islands er kominn í bæinn. Arnar Geir minnist þess þegar eitt sinn komu bridsmenn að sunnan að keppa við fsfirðinga. Menn settust í stofu að Silfurtorgi 1 og fengu sér í glas og þá fer allt í einu að heyrast músík utan af torginu. „Þá varhljóm- sveitin Yr að spila hér. Hún var í sérstöku uppáhaldi hjá þessum drengjum og það var hreinlega hápunkturinn í ferð- inni hjá þeim að sitja hér og hlýða á tónleika hjá uppá- haldshljómsveitinnifyrirutan gluggann." En það er ekki endilega allt sem breytist, þótt í heildina fari heimurinn vissulega versnandi eins og hann hefur gert frá því að fyrsti maðurinn reis upp á afturlappirnar. Við Silfurtorgið er Gamla bakaríið enn í dag, Björnsbúð, Bóka- verslun JónasarTómassonar... Margt annað er horfið inn í söguna - „þarna var Soffíu- búð, þarna var Karlsbúð, þarna varVitinn og Smjöríkis- gerðin, þarna var Ljónið", segir Arnar og bendir í ýmsar áttir. Sic transit gloria mundi. Ekki í fiskifræði Ástæða þess að Arnar Geir fór til sjós á Sólborginni var fyrst og fremst sú, að hann „gekk með fiskifræðinginn í maganum. Þá var á Sólborg- inni Gunnar Páll Jóakimsson heitinn úr Hnífsdal, sem var nýbyrjaður að læra fiskifræði í Kiel. Hann fræddi mig um það út á hvað námið gengi og það var nóg til þess að ég varð því afhuga. Námið var þess eðlis að ég gat ekki hugsað mér að leggja í það.“ - Hvað þá helst? „Eins og ég hefði reyndar mátt vita voru eðlisfræði og náttúrufræði uppistaðan í þessu námi, en það voru þær greinar sem ég hafði verið hvað lélegastur í og hafði minnstan áhuga á þegar ég var í gagnfræðaskóla og menntaskóla." Hiðglaðalíf - Fannst þér gaman í lög- fræðinni í háskólanum? „Nei! Eg hafði engan áhuga á henni og var í henni ein þrjú-fjögur ár eingöngu að slugsa í Reykjavík, spila brids, leika mér og drekka brennivín og lifa hinu glaða stúdentalífi. Eg get varla sagt að ég hafi veriðfarinnaðlítaíbók. Helst að fyrsta árið hafi verið nokk- urn veginn í lagi hjá mér. Það var ekki fyrr en á fjórða ári sem ég tók á mig rögg til að athuga hvort mér gæti yfirleitt fallið við að lesa lögfræði. Það reyndist vera í þolanlegu Iagi og eftir þetta fór ég í gegn- um námið á eðlilegum tíma.“ - Þú munt hafa verið góður námsmaður þegar þú nenntir eða máttir vera að fyrir mikil- vægari hlutum, eins og t.d. slugsi... „Eg var það kannski þegar ég var krakki, en það eltist at' mér.“ - Ertu refur í lögfræðinni? „Nei.“ - Eru lögfræðingar ekki þeir refir sem alþýða manna vill stundum vera láta? „Auðvitað eru lögfræðingar misjafnir eins og aðrar stéttir. En upp til hópa eru þeir held ég heiðarlegir og grandvarir menn og hjálpfúsir. Þetta er bara ímynd sem einhverjir öfundarmenn draga upp. Við liggjum vel við höggi að ýmsu leyti." Arnar Geir er farinn að draga úr golfinu og meira far- inn að stunda almenna útivist, eins og gönguferðir úti í nátt- úrunni. „Eg er búinn að gera mér grein fyrir því að ég verð aldrei góður golfIeikari.“ Er hollara að vera vondur golfari? - Er golf ekki þeim mun heilsusamlegra sem menn eru verri golfleikarar? Góðurgolf- leikari þarf e.t.v. ekki að slá kúluna nema þrisvar á sömu vegalengd og slæmur golf- leikari þarf tíu-fimmtán högg. Góði golfleikarinn þarf yfir- leitt ekki að þramma nema sléttar brautir en vondur golf- leikari þarf að klöngrast um urðir og grjót til að leita að kúlunni, jafnvel að klifra upp í tré, brölta í skurðum og vaða straumvötn. Vondur golfleik- ari hlýtur að fá miklu meiri og tjölbreyttari og hollari hreyf- ingu en góður golfleikari... „Sko, maður getur verið svo lélegur að það komi hreinlega niður á andlegri heilsu. En plúsinn við það að vera lélegur er vissulega sá, að maður þarf að slá langoftast. I leikjum í æsku vildi maður fá „að gera“ sem oftast. Þetta hefur mér Ioksins tekist í golfinu. Eg fæ „að gera“ oftar en hinir! Inni hjá Adda Geir er skák- klukka á borði. Hann tefldi af kappi á ungum aldri, en það breyttist strax í þriðja bekk í menntaskóla og bridsið kom í staðinn. Þeir sem héldu áfram að tefla kölluðu slíkt að fara í hundana. Aldrei tekinn á beinið Þórarinn heitinn Björnsson var skólameistari Mennta- skólans áAkureyri í tíðArnars Geirs. Þá var enn í brúkun hvalbeinið fræga úr tíð Sig- urðar skólameistara. Þegar nemendur gerðu einhvern skrattann af sér lét hann þá sitja á beininu meðan hann las yfir þeim ritúalið. Það hét að „taka menn á beinið“. Arn- ar Geir kveðst reyndar aldrei hafa lent á beininu. „Þórarinn náði aldrei að negla mig á beinið því að ég var aldrei gómaður fyrr en í sjálfum stúdentsprófunum í lok skóla- vistarinnar. Ég hafði fengið mér heldur mikið neðan í því eftir íslenska stflinn. Það var reyndar hefð fyrir því að fara á „fjörufyllirí" eflirfyrsta stú- dentsprófið en ég gerði það líklega fullrösklega. En þá var maður í rauninni kominn úr skólanum og búið að gefa vetrareinkunnir. Annars hefði þetta jaðrað við að vera brott- rekstrarsök. Að öðru leyti var ég að ég held ekkert slæmur í menntaskóla hvað þetta varð- ar. Þó kannski heldur í verri kantinum. En ýmsir voru verri." Hvítur fjallahringur Skutulsfjarðar Þegar þetta er fært í letur er hvítur fjallahringur Skutuls- fjarðar baðaður sólskini. Skíðavikan er að hefjast. Arnar Geir er ekki mikið fyrir að vera á Dalnum í Skíðavik- unni. NemaauðvitaðáGarpa- mótinu. Á Skíðaviku er svo mikið af fólki á skíðasvæð- unum að það ereiginlegaekki hægt að renna sér. Að minnsta kosti fyrir menn sem taka lítið af beygjum. Það er bara best að fara beint af augum. Dómum Jóa Torfa á Garpa- mótinu verður ekki áfrýjað. Þeir gömlu garpar sem eru hræddir um að vera ekki í náðinni hjá honum þetta árið laumast til að æfa sig þegar húmar á Dalnum. - Hlynur Þár Magnússon. Vestfirðir Gufijðn flrnar og Pétur í framboð Blaðinu hefur borist eft- irfarandi fréttatilkynning frá Guðjóni Arnari Krist- jánssyni og Pétri Bjarna- syni: „Um margra ára skeið hafa undirritaðir barist fyrir því að fá fram veru- legar breytingar á þeirri stefnumótun og fram- kvæmd sem á var komið með lögum nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða. Með lögunum var opnað fyrir brask með óveiddan fisk í sjó og frjálst framsal, óháð búsetu og atvinnirétti fólks sem áður hafði haft atvinnu og Iifibrauð sitt af fiskveiðum og fisk- vinnslu, sent er undirstaða byggðar víðast hvar í land- inu. Eins og Vestfirðingar vita manna best hefur frjáls sölu- og leiguréttur fiskikvótans veikt undir- stöðu sjávarútvegsbyggð- anna og gert fasteignir þess fólks sem þar býr nánast verðlausar, Okkur er Ijóst að margir vílja stöðva þann málflutning okkar að atvinnu- og veiðirétt fólksins í sjávar- byggðum skuli tryggja með Öllum tiltækum ráð- itm, líka þvx að núverandi kvótakerfi skuli aflagt ef það er eina ráðið til þess að tryggja undirstöðu at- vinnu og búsetu fólks í sjávarbyggðunum. Með þvf að taka sæti á lista Frjálslynda flokksins í Vestfjarðakjördæmi vilj- um við leggja okkar af mörkum til þess að at- vinnu og búseturéttur fólksins verði virtur um- fram það að óheft forrétt- indi kvótaeigenda sem nú ríkir ráði för til framtíðar. 50 ára Ingimar Halldórsson, út- gerðarstjóri hjá Hraðfrysti- húsinu hf. í Hnífsdal. Sunnuholti 4 á ísafxrði verður fimmtugur á morg- un, I. apríl. Hann og eiginkona hans, Kristín Karlsdóttir, taka á móti gestum í sal frímtírara frá kl. 17-20 á afmælisdaginn. Blaöamaður Vegna aukinna verkefna óskum við eftirað ráða blaðamann til starfa. Viðkomandi þarf að hafa góða íslensku kunnáttu, geta unnið sjálfstætt og geta hafið störf sem fyrst. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurjón í vinnusíma 456 4560 og heima- síma 456 4277. H-prent ehf - Bæjarins besta. Frc't setningu Skíðavikunnar íísafjarðarkirkju cí mánudagskvöld. F. v. Egill Jóhannsson, Guðfina Hreiðarsdóttir, hr. Ólafiir Ragnar Grímsson, Ragnheiður Hákonardóttir, Gunnar Þórðarson, Björn Helgason, Gylfi Guðmundsson og Marinó Hákonarson. Skíðavikan sett í ísafjarðarkirkju Úlafur Ragnar í heimsðkn Forseti Islands, herra Olafur Ragnar Grímsson, er fremstur meðal jafningja í hópi gestanna á Skíðaviku ísfirðinga og Skíðamóti Islands á ísafirði. Hann heiðraði sína gömlu sveitunga með því að setja skíðahátíð þeirra og landsmótið við athöfn á Silfurtorgi á mánudagskvöldið og síðan var hann við kvöldmessu í Isatjarðarkirkju. Enda þótt Olafur Ragnar sé forseti allra íslendinga, þá er því ekki að neita að mörgum rótgrónum ísfirðingum finnst þeir eiga heldur meira í honum en aðrir landsmenn. Því er það alltaf sérstakt fagnaðarefni þegar Ólafur Ragnar kemur hingað íheimsókn -þar sérfólkekki aðeins sjálfan forsetann á ferð, heldur einnig og ekki síður strákinn hans Gríms Kristgeirssonar rakara. Nýjar íbúöir til sölu Til sölu eru níu nýjar og glæsilegar íbúðir í fjölbýlishúsið aó Sund- stræti 34, ísafirði, sem stendur á sjávarlóð við Sundin. Á1. hæð eru tvær 60m2 íbúðir og ein 110m2. Á 2. hæð eru fjórar íbúðir, 79m2., 70m2., 73m2 og 68m2. Á 3. hæð eru tværíbúðir, 149m2 ogl43m2. í húsinu er bílgeymsla fyrir þrjá bíla og ein sérgeymsla fyrir einn bíl. íbúðirnar eru nú í byggingu og verða afhentar 15. desember nk. Þeirsem fyrstir ákveða kaupgeta valið óskaíbúðina ogbílgeymslu. Föstudaginn 9. apríl kl. 16 verður húsnæðið í núverandi ástandi til sýnis fyrir þá sem vilja skoða það. Nánari upplýsingar eru veittar á fasteignasölu Tryggva Guðmunds- sonar hdl., Hafnarstræti 1, ísafirði, sími 456 3244, fax 456 4547. setur skíðavikunct. 10 MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1999

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.