Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.03.1999, Síða 12

Bæjarins besta - 31.03.1999, Síða 12
Samkaup hagnast Rúmlega 55 millj- óna króna hagnaður varð af starfsemi Kaupfélags Suður- nesja á síðasta ári, ' Þessar upplýsingar f koma fram í árskýrslu félagsins en aðalfund- urþessvarhaldinnfyr- , ir stuttu. Heildarvelta félags- f ins á síðasta ári nam ; um 2,2 milljörðum króna sem er aukning um 123 miltjónir frá ; árinu á undan en þá nam hagnaðurinn um I 30 milljónum króna. í yfirlili yfir síðustu f frmm starfsár félags- ins kernur fram að hagnaður hefur verið á rekstrinum öll starfs- árin. .................. Messa oo kiHýukaffl Hin árlega messaög kirkjukaffí ísfirðinga- I félagsins í Reykjavík fer frarn sunnudaginn 18. apríi kl. 14 í Ás- kirkju Reykjavík. Þar ! mun sr. Árni Bergur Sigurbjömsson þjóna ; fyrir altari, Sveinbjörn ! Bjarnason guðfræð- ingur predikar og kór brottfluttra Ísfírðinga | syngur. í frétt frá félaginu kemur einnig fram að aðalfundur félagsins verður haldinn að Grand Hótel í Reykja- vfk þriðjudaginn 22. : apríl kl. 20:30. Allir ísfirðingár að fornu og nýju eru hvattir til að mæta á bvort tveggja ; og taka með sér gesti. Feraiingar íHölskirkju Fimm ungmenni | verða fermd f Hóls- kirkju f Bolungarvík f á morgun, skírdag kl. 14:00. Þau eru Ásta Björg Björgvinsdóttir, Han- hóli, Bjarni R Jóns- son, Hjallastræti 28. Rakel Kristinsdóttir, Hjallastræti 24, Sand- ra Björk Jónsdóttir, Höfðastíg 6 og Stefán Örn Kartsson, Holta- brún 4. Næstu fermingar í f Bolungarvík verða á hvftasunnudag og sunnudaginn 30. maí kl. 11:00. Herdís M. Hiibner, fagstjóri í iestri við Grunnskóiann á ísafirði skrifar Könnun á lestrarrenjum nem- enda Grunnskólans á ísafírði í byrjun febrúar sl. var gerð könnun í Grunnskólanum á Isafirði á lestrarvenjum 9-16 ára barna. Alls náði könnunin til 313 nemenda, 166 drengja og 147 stúlkna. Tilgangurinn með þessari könnun var fyrst og fremst sá að beina athygli barnanna að lestrarvenjum sínum og reyna að gera þeim ljóst að bóklestur er mjög mikilvægur; fá þau til að velta fyrir sér hvers konar bækur þau lesi og hvað þau hafí í huga þegar þau velja sér bækur til lestrar. Einnig er mjögforvitnilegtfyrirkennara og foreldra að sjá hvernig lestrarvenjur þróast með aldr- i num og h ver munur er á lestr- arvenjum drengja og stúlkna. Spurt var um ýmislegt sem tengist lestri bóka, annarra en skólabóka. Fyrsta spurning var hversu margar bækur þau hefðu fengið í jólagjöf. Svörin sýndu að börn á þessum aldri fá að meðaltali rúmlega tvær bækur í jólagjöf. Flestar bæk- ur fá börn á aldrinum 10-11 ára, en úr því virðist draga úr bókagjöfum til barnanna. 10 ára stúlkur fenguu t.d. að með- altali 4 bækur, en 16 ára stúlk- ur aðeins 0,8 eða minna en eina bók á mann. Önnur spurning varhversu margar bækur þau hefðu lesið á sl. mánuði. Svörin við þeirri spurningu sýndu greini- lega þróun eftir aldri, þ.e. að það dregur jafnt og þétt úr lestri eftir því sem börnin eldast, allt að 16 ára aldri, en þá taka þau við sér aftur (sjá meðfylgjandi súlurit). Einnig kom berlega í ljós að á öllum aldri lesa stúlkur meira en drengir, með einni undantekn- ingu þó; 1 1 ára drengir lásu meira en stúlkur á sama aldri. Augljóslega lesa þó drengir á unglingsaldri minnst af öllum hópunum. Þriðja spurning varðaði það hvar börnin fengju bækur til að lesa. Langflest eða 212 sögðust helst fá bækur heima hjá sér. I öðru sæti var bæjar- bókasafnið, síðan skólabóka- safnið. Fáein sögðust fá bækur að láni hjá vinum sínum og voru það aðallega stúlkur sem þannig svöruðu. Það er því ljóst að það er heimilisbóka- safnið sem er hér í aðalhlut- verki og greinilegt að hvatning og aðbúnaður heima fyrir að þessu leyti skipt sköpum. Fjórða spurning var: Hvað heitir uppáhalds höfundur- inn þinn? Alls voru 45 höf- undar nefndir, en nokkrir skáru sig úr og nutu meiri vinsælda en aðrir, eins og við er að búast (sjá meðfylgjandi súlurit). Greinilegt er að Þor- grímur Þráinsson er mjög vin- sæll og bækur hans mikið les- nar af börnum og unglingum. Langmestar eru vinsældir hans meðal stúlkna á aldrinum 13-14 ára. Fast á hæla honum komu Anders Jakobsen og Sören Olsson (höfundar bók- anna um Bert), og voru það frekar drengir en stúlkur sem nefndu þá sem uppáhalds höf- undana sína. Þegar allur listinn er skoð- aður, er Ijóst að norrænir höf- undar eru þar í meirihluta og má segja að það sé ánægjuleg niðurstaða í Ijósi þess að ann- að alþreyingarefni sem við bú- um við, svo sem kvikmyndir, popptónlist og sjónvarpsefni, er að stórum hluta enskt og amerískt. En reyndar má geta þess að lausleg könnun svip- aðs efnis sem undirrituð gerði fyrir 7 árum, sýndi að þá var hlutfall norrænna höfunda enn hærra, svo e.t.v. er þróunin í þá átt að lestrarefni barnanna verði í stöðugt stærra hlutfalli enskt eða amerískt. En þetta getur Iíka verið tilviljun, það er t.d. ekki langt síðan bækur Enid Blyton voru gefnar út að nýju og það er margt slíkt sem getur áhrif á þennan iista. Ekki skal lagt mat á gæði bóka þessara höfunda, en þó var ljóst að eftir því sem nem- endur voru eldri, nefndu fleiri „fullorðinshöfunda”, s.s. Halldór Laxness, Þórarin Eldjárn, Einar Kárason, Einar Má Guðmundsson o.s.frv. Fimmta spurningin var um það hver þeim þætti besta bók sem þau hefðu lesið. Þar voru ótal titlar nefndir og ýmsar skýringar gefnar á því hvers vegna þau hefðu valið þessa bók öðrum fremur, sem of langt mál yrði að rekja hér. Sjötta spurning var um það hvað börnunum þætti skipta mestu máli við bækur og áttu þau að merkja við þrjú atriði. Eins og við var búist svör- uðu flest að þær þyrftu að vera spennandi og/eða fynd- nar. Einnig virtist skipta miklu máli að letrið væri skýrt og mörg svöruðu að bækurnar þyrftu að vera á góðri ís- lensku. 52 merktu við að það þyrftu að vera góðar myndir í bókunum og voru það nær eingöngu 9 og 10 ára drengir sem þannig svöruðu. Sjöunda spurning varðaði það hvar þeim þætti best að lesa. Langflestir, eða 255 sögð- ust helst lesa í rúminu sínu heima. Fáienir sögðust helst lesa annars staðar heima hjá sér, örfáir í skólanum, á bóka- safninu, í strætó og svo voru ýmsir aðrir staðir nefndir, s.s. úti á torgi, á svölunum, í bíl- skúrnum, hjá ömmu, hjá vinkonu o.s.frv. Það er greini- lega víða hægt að setjast niður með góða bók en samt er þessi góði gamli siður, að lesa fyrir svefninn, augljóslega enn í fullu gildi. Áttunda spurningin var um það hvers konar bækur nemendur læsu helst. Það sem helst vakti athygli í svör- um við þessari spurningu var það hversu drengir hafa miklu meiri áhuga á fræðibókum en stúlkur. Einnig er ljóst að ungl- ingsstúlkur hafa meiri áhuga á ástarsögum en drengirnir og kemur það kannski ekki á óvart. Svo má benda á að 9- 12 ára nemendur virðast ekki síður sólgnir í svokallaðar unglingabækur en unglingar- nir sjálfir og dregur jafnvel frekar úr áhuga á þeim með aldrinum. Margir nefndu ým- islegt annað. Sérstaklega voru það unglingsdrengir sem nefndu alls konar sérhæft les- efni, s.s. bækur um vélar, íþróttir, bíla, brettablöð og margt fleira. Að lokum áttu þátttakendur að merkja við hvort þeir væru sammála eða ósammála ýms- um fullyrðingum. Ein þeirra var: Mér finnst gaman að lesa. Nær allir á aldrinum 9- 12 ára voru sammála þessu, einnig 84% unglingsstúlkna, en aðeins 61% unglings- drengja og vekur það nokkra athygli og er í samræmi við þá niðurstöðu að þeir séu sá hópur sem minnst les. Meðal annarra fullyrðinga var: Mér finnst erfitt að lesa langar bækur. 28% unglings- drengja var sammála því og var enginn hópur annar með svohátthlutfall. Reyndar voru drengirnir í yngri hópnum með 25%, en þarer líkafrekar við slíku að búast þar eð þeir eru ekki orðnir eins þjálfaðir í lestri og þeir eldri ættu að vera. Loks var ein svohljóðandi: Eg vil heldur sjá sögur á myndbandi en að lesa þær. Þar kom fram mikill munur á svörum drengja og stúlkna í báðum aldurshópum. 31% drengja í yngri hópnum var sammála þessu, 7% stúlkna á sama aldri, en 67% unglings- drengja og 25% unglings- stúlkna. Unglingsdrengirvoru eini hópurinn þar sem meiri- hlutinn vildi frekar horfa á myndband en lesa bók og þeirra svar sker sig mjög úr svörum hinna hópanna. Samt er það svo, að 83% þessa sama hóps svaraði því til að þeir telji þroskandi að lesa og það svar var alveg á sömu nótum og hjá öðrum hópum. Ljúft og skylt er þó að taka fram að þessi hópur unglings- drengja skiptist í raun alveg í tvo hópa. Annars vegar drengi sem lesa mjög lítið og hafa mjög neikvæða afstöðu til bóklesturs og hins vegar drengi sem lesa mikið og eru mjög sannfærðir og ákafir að- dáendur bókarinnar. Þeir voru bara ekki nógu fjölmennir til að ná meðaltalinu upp að neinu gagni. En ljóst var líka að í þeim litla hópi drengja sem hafði náð 16 ára aldri þegar könnunin var gerð voru flestir miklir lestrarlestar. Það er því e.t.v. ekki ástæða til að örvænta um drengina, von- andi læra þeir að meta bækur- nar með auknum þroska. Síðast í þessari könnun voru börnin beðin að svara því, af hverju þau lesi bækur. Þar voru margvísleg og mörg skemmtileg svör. Örfá dæmi: „Brain food, baby. - Slak- andi.” (16 ára strákur). „Ég les bækur af því að mamma mútar mér alltaf en svo gleymir hún að uppfylla það.” (10 ára strákur) „Af því að mér finnst gam- an að lesa og ég lifi varla daginn af ef ég les ekki eitt- hvað.” (15 ára stúlka) „Af því að þær gera mann klárari og þær eru oftast fyndnar og skemmtilegar.” (10 ára stúlka) „Það er bara mjög góð af- þreying. tilbreyting frá öllu sjónvarpsglápinu og íslenskir unglingar hafa gott af því að rífa sig upp úr sora-bókmennt- um og þvílíku einhæfu rugli og virða fyrir sér og skoða hinn íslenska bókmenntaarf sem er eins æðislegur og raun ber vitni.” (15 ára strákur) Flest svöruðu á jákvæðum nótum, lýstu því hversu gam- an er að lesa, það sé þroskandi og róandi, gott fyrir svefninn, víkki sjóndeildarhringinn og hafi almennt góð áhrif. Þó voru mörg, einkum unglings- drengirnir margumræddu, sem skrifuðu að það væri hundleiðinlegt, tímasóun og þar fram eftir götunum. En eins og sjá má af dæmunum hér að ofan, (sem eru síður en svo einsdæmi) voru mjög skiptar skoðanir í þeim hópi. Ég held að það sé gott fyrir kennara og ekki síður foreldra að velta niðurstöðum þessarar könnunar ofurlítið fyrir sér með það í huga hvort við eigum og getum haft einhver áhrif áþau börn sem minnstan áhuga hafa á lestri bóka. Hætt er við því að þeir sem venjast af lestri á unglingsárum nái ekki allir að endurvekja áhug- ann þegar þeir fullorðnast og fari því á mis við þá ánægju og menntun sem fylgir lestri góðra bóka. Það er sannfæring mín að góðar bókmenntir geti haft af- gerandi uppeldisáhrif, geri fólk víðsýnna og umburðar- lyndara og séu að flestu leyti mannbætandi og það er mik- ilsvert að allir rækti þann akur sem best þeir geta. Mér finnst það því vera skylda okkar, hinna fullorðnu, að hlú að þessum þætti í uppeldinu. Við þurfum að fylgjast með því hvað börnin eru að lesa, halda að þeim góðum bókum, ræða við þau um bækurnar og reyna að viðhalda þeim áhuga sem þau augljóslega hafa á yngri árum. Herdís M. Hiibner, fagstjóri í lestri við G.I. 12 MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1999

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.