Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.05.1999, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 19.05.1999, Blaðsíða 12
FSmiNQARFðTiN FÆMU HJÁ OKKW! mmm QJAFA- V€StW%jfsp&rí KQRTIN! AÐALSTRÆTI 27 SÍMI 456 3602 Hollvættir Framhaldsskóla Vestfjarða / Menntaskólans á ísafirði Of miklum tíma hef- ur verið varið í vörn Frá stofnfundinum á laugardag. „Hugmyndin að stofnun Hollvinasamtaka Framhalds- skóla Vestfjarða hefur verið að þróast og gerjast á mörgum vígstöðvum undanfarin miss- eri. Málefni skólans eru víða rædd og koma mörgum við - þau eru hagsmunamál samfé- lagsins alls“, sagði Elísabet Gunnarsdóttir, arkitekt á Isa- firði, á stofnfundi Hollvætta FVÍ / MÍ sl. laugardag, 15. maí, en fundinn sóttu milli 50 og 60 manns. Einna mestan þátt í undirbúningi að stofnun þessara samtaka munu eiga ásamt Elísabetu þau Guðný Isleifsdóttir, Hlynur Snorra- son og Ingibjörg Snorradóttir. „Undirbúningur að stofnun samtakanna hefur unnist framar vonum. Vel gekk að ná til fólks sem fúslega gaf kost á sér til að mynda fyrstu stjórn samtakanna. Haft var að leið- arljósi að móta breiðan hóp fulltrúa víðs vegar að af Vest- fjörðum“, sagði Elísabet, en á fundinum gerð hún grein fyrir aðdragandanum. I stofnskrá sem samþykkt varáfundinum segir, að mark- mið samtakanna sé að efla hag FVÍ og auka tengsl hans við foreldra/forráðamenn, fyrrum nemendur og aðra vel- unnara. Samtökin eru opin öll- um sem áhuga hafa á starfsemi og velferð skólans. Samþykkt var að samtökin skuli bera nafnið Hollvættir Framhalds- skóla Vestfjarða / Mennta- skólans á ísafirði. Formaður skólanefndar. Ol- afur Helgi Kjartansson, setti stofnfundinn og stýrði honum. Skólameistari, BjörnTeitsson, flutti ávarp en síðan greindi Elísabet frá aðdraganda sam- takanna og Guðný Isleifsdótt- ir kennari kynnti hugmyndir um starfshætti samtakanna og greindi frá starfi hliðstæðra félaga annars staðar. Eiríkur FinnurGreipsson flutti ávarp. Eftir að stofnskrá hafði verið samþykkt og samtökunum kosin stjórn söng kórFVI und- ir stjórn Guðrúnar Jónsdóttir óperusöngkonu, áður en fund- armenn gæddu sér á harðfiski og mysu f boði velunnara skól- ans. Stjórn Hollvætta FVÍ / MÍ skipaArnlín Oladóttir, Bjarn- arfirði, Bergljót Pálmadóttir, fsafirði, Dagbjört Hjaltadótir, Súðavík, Einar Jónatansson, Bolungarvík, Eiríkur Finnur Greipsson, Flateyri, Friðný Jóhannesdóttir, fsafirði, Ingi- björg Snorradóttir, ísafirði, Nanna Sjöfn Pétursdóttir. Bíldudal, og Ólafur Örn Ól- afsson, Isafirði. Það kom fram í máli Einars Jónatanssonar, sem er einn úr fyrsta stúdentahópi MÍ fyrir 25 árum, að árgangurinn mun áður en langt um líður sýna hug sinn til skólans í verki með því að færa honum ein- hverja nytsama gjöf. „Skólinn hefur yfir að ráða kjarna af fyrirtaks starfsfólki, ágætum húsakynnum og óþrjótandi möguleikum til að fá vaxið og dafnað. En við höfum, í þessu eins og svo mörgu öðru, eytt of miklum tíma í vörn, of litlum tíma í að skipuleggja okkur og samein- ast í sókn. Skólinn eins og allar mikilvægar stofnanir þarfnast stuðnings, hann þarfnast aðhalds, hann þarfn- ast jákvæðrar athygli. Og nú er blásið til sóknar, eins og einhver vildi orða það, við reynum að skapa okkur vett- vang til samvinnu og enn frek- ari uppbyggingar“, sagði Elísabet. Það kom frarn í máli hennar, að í stjórn samtakanna eiga m.a. sæti fulltrúar úr vest- firsku atvinnulífi, frá VáVest- hópnum og úr hópi foreldra. Allir brautskráðir nemendur skólans verða sjálfkrafa félag- ar í samtökunum og munu eiga fulltrúa í stjórn. Sam vinnuferðir-Landsýn á ísafirði Farseðlakerfi framtíð- arinnar tekið í notkun Söluskrifstofa Sam- vinnuferða-Landsýnar á ísafirði tók fyrir helgina í notkun nýtt farseðlakerfi, sem er allmjög frábrugðið því sem hingað til hefur tíð- kast. „Þetta er framtíðin. A ensku nefnist þetta kerfi Central Ticketing og með til- komu þess detta gömlu far- seðlarnir út og pappaspjöld koma í staðinn“, segir Inga Ólafsdóllir, eigandi söluskrif- stofunnar. „A spjöldunum er segulrönd sem hægt verður að renna í gegnum þar til gert tæki og þar með ertu að innrita sjálfan þig. Sú tækni erreynd- ar ekki enn komin á Kefla- víkurflugvelli en verður von- andi áður en langt um líður.“ Söluskrifstofan á Isafirði er ein af þeim fyrstu hérlendis sem taka þetta kerfi í notkun - „við erum að verða eins og umheimurinn", sagði Inga. Pálfríður Vilhjálmsdóttir og Inga S. Ólafsdóttirfyrirfram- an nýju farseðlavélina. Nýjar förðunarvörur frá DIOR •NAGLALÖKK •VARAIJTIR •GLOSS • MASKARAR Virka daga kl. 09 - 21 Laugardaga kl. 10 -18 {/&ricí u&tf/ofnin/ AUSTURVECiI 2 • SÍMI 456 5460 Spennandi ferð/r til Kairo o|Sudapest Samvinnuferðir Landsýn Söluskrifstofa • Hafnarstræti 1 ísafirði • Sími 456 5390 'AGUST&FLOSI ehf BYGGINGAVERKTAKAR Árnagata 3 • isafirði • Sími 456 5500 SÓLPALLAEFNI, INNVEGGJAEFN/ OG PLASTPARKET Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI! LÁTIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ!

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.