Bæjarins besta - 02.06.1999, Blaðsíða 5
Safnaðtil
styrktar
Skrúði í
Dýrafirði
Það vaxa mörg blóm fyrir vestan
Sparisjóður
Önundarfj arðar
- fyrir þig og þína !
áparisjóður Önundarfjarðar
hvetur alla Vestfírðinga til að
Við hátíðleg tækifæri
þegar ástæða þykir til að
mæra samfélag okkar eða
hugleiða um framtíðina
grípum við ósjaldan niður í
orðasafn garðyrkjumanna.
Við tölum um blómlegt
mannlíf og þörfina á því að
undirbúa jarðveginn fyrir
vaxtarbrodda atvinnulífsins
eða gróskulega skóla. Þess-
ar samlíkingar koma upp í
huga mér nú í upphafi söfn-
unar til styrktar hinum
sögufræga garði Skrúði í
Dýrafirði.
Þú átt von á pósti
Á næstu dögum fá öll
vestfirsk heimili póstsent
bréf ásamt gíróseðli og sé
seðilinngreiddurrennurféð
til reksturs og varðveislu
Skrúðs. Söfnunin mun
standa yfir fyrri hluta júní-
mánaðar og er það von allra,
sem standa að henni að
Vestfirðingar sjái sér fært
að láta eilítið af hendi rakna
til málefnisins. Til mikils
er að vinna enda er sérstaða
Skrúðs óuntdeilanleg í
garðyrkjusögu Islands og
hvergi er að finna betri
sönnur fyrir því hve mikla
möguleika Vestfirðingar
hafa á ræktun í túnfætinum
heima.
/ upphafí var prestur
Það er tæpast tilviljun að
málfar garðyrkjumanna er
mörgum tamt á góðum
stundum. Það stendurokkur
flestum nærri að rækta skik-
ann okkar og tryggja þannig
afkomu, sumar og vetur.
Birna Lárusdóttir,
forseti bæjarstjórnar
ísaQarðarbæjar skrifar
SéraSigtryggurGuðlaugsson.
prófastur að Núpi í Dýrafirði,
hefur án efa haft þetta í huga
þegar hann, í upphafi aldar-
innar, réðst í gerð matjurta-
og skrautgarðs í tengslum við
ungmennaskólann að Núpi.
Sigtryggur nefndi garðinn
Skrúð og skyldi hann vera til
hjálpar kennslu í plöntufræði
og garðrækt ásamt því að
venja nemendur við neyslu
garðjurta og sýna þeim hvað
vaxið getur í íslenskum jarð-
vegi og jafnvel hrjóstrugum.
Jarðeplanna minnst
Séra Sigtryggur stofnaði
Skrúð formlega 7. ágúst 1909
og verður garðurinn því níutfu
ára í sumar. Varð sá dagur
fyrir valinu því þá voru liðin
rétt 150 ár frá því að jarðepli
voru sett niður í Sauðlauksdal
á sunnanverðum Vestfjörðum
í fyrsta sinn hér landi. Á fjórða
áratugnum varSkrúðurorðinn
vel gróinn og barst frægð hans
víða um land enda var margt
fágætra plantna þar að finna
og athyglisvert að sjá hversu
fjölbreytileg flóra gat í raun
dafnað í vestfirskum jarðvegi.
I sjö áratugi var garðinum
haldið vel við en upp úr 1980
var garðinum lítið sinnt enda
hnignaði honum rnjög. Ærið
verk var að koma honum í
sæmilegt horf á ný, þótt það
tækist með eljusemi áhuga-
samra einstaklinga og sam-
taka.
Ekki vantar
hugmyndirnar
\ dag nær Skrúður yfir 2500
fermetra svæði. Þar er að finna
hundruð trjáplantna og jurta
en samsetningin hefur breyst
nokkuð frá tímum séra Sig-
tryggs. Matjurtir hafa vikið
fyrirfjölærum blómjurtum og
runnum en Skrúðsvinir hafa
þó hug á að færa matjurtirnar
til vegs á ný. Einnig eru uppi
hugmyndir um að rækta upp
skika þar sem gefur að líta
vestfirska plöntuflóru og jafn-
vel flóru Hornstranda. En allar
slíkar hugmyndir kalla á fé
og það er af skornum skamm-
ti. Sveitarfélagið Isafjarðar-
bær og félagasamtökin sem
standa að varðveislu Skrúðs
eru þess ekki megnug að halda
garðinum við sem skyldi og
er skemmst frá því að segja
að sjóðir Skrúðs duga ekki
fyrir nauðsynlegu viðhaldi í
dag.
Skrúðmælgi
dugir skammt
Orð eru til alls fyrst en
skrúðntælgin ein dugir
skammt ef takast á viðhalda
þeirri gersemi sem Skrúður
sannarlega er. Beinharðir
peningar eru betur til þess
fallnir. Okkur gefst nú tæki-
færi til að renna styrkari
stoðum undir rekstur Skrúðs
svo hann verði áfram minn-
isvarði um brautryðjenda-
starf í garðrækt á Islandi en
ekki síður vitnisburður um
fjölbreytileika vestfirskrar
flóru og um leið flóru fs-
lands. Framlag hvers og eins
þarf ekki að vera hátt ef allir
taka höndum saman. Eg
ætla að leggja mitt af mörk-
um og vona að þú sjáir
ástæðu til að gera slíkt hið
sama.
- Birna Lárusdóttir.
Heimsókn danska sendiherrans tii ís
Blásarakvintett úr
varðasveit drottnin
éendum vestfirskum sjómönnum
og fjölstyldum þeirra bestu
kveðjur é <sjómannadaginn
^7
BASAFELL HF.
Sendiherra Danmerkur á
íslandi, Flemming Mprch, og
eiginkona hans, Hanne
Mprch, koma í heimsókn til
ísafjarðar á laugardag og
dveljast hér vestra fram yfir
helgi, eins og greint var frá
hér í blaðinu í síðustu viku.
Fjölmargt verður á dagskrá
sendiherrans, sem skipulögð
er af ræðismanni Danmerkur
á ísafirði, Fylki Ágústssyni.
Den Kongelige Livgardes Messingensemble verður íföru-
neyti danska sendiherrans og tekurþátt í hátíðahöldum sjó-
mannadagsins á ísafirði.
í föruneyti sendiherrans
verður málmblásarakvintett
hinnar konunglegu lífvarða-
sveitar (Den Kongelige Liv-
gardes Messingensemble).
Kvintettinn skipa sem vænta
má úrvalstónlistarmenn og
munu þeir leika fyrir ísfirð-
inga í tengslum við dagskrá
sjómannadagsins.
Vikan
framundan
Miðvikudagur 2. júní
Þennan dag árið 1934 varð
Dalvíkurskjálftinn, einn
stærsti jarðskjálfti sem átt
hefur upptök nærri þéttbýli,
fannst kl. 12:43. Hann var
um 6,2 stig. Á Dalvík og í
nágrenni skemmdust á
annað hundrað hús.
Fimmtudagur 3. júní
Þennan dag árið 1946 varð
mikill eldsvoði á ísafírði
þegar íbúðarhúsið Fell brann
og þrjú önnur hús við Hafn-
arstræti. Fimm manns fórust
og fimmtíu manns urðu
heimilislausir.
Föstudagur 4. júní
Þennan dag árið 1959 var
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra, stofnuð til að hafa
forystu í baráttu fatlaðs
fólks fyrir auknum réttind-
um og bættri aðstöðu í þjóð-
félaginu.
Laugardagur 5. júní
Þennan dag árið 1975 sigr-
uðu Islendingar Austur-
Þjóðverja í landsleik í knatt-
spyrnu í Reykjavík með
tveimur mörkum gegn einu.
Þetta var talinn einn stærsti
dagur í sögu íslenskrar
knattspyrnu.
Sunnudagur 6. júní
Þennan dag árið 1914 var
bifreið notuð til að aka brúð-
hjónurn til vígslu, í fyrsta
sinn hér á landi. Vígslan fór
fram í Dómkirkjunni í
Reykjavík en brúðhjónin
voru Guðrún Einarsdóttir og
Gísli Sveinsson, síðar sendi-
herra.
Mánudagur 7. júní
Þennan dag árið 1992 kom
nýr Herjólfur til Vestmanna-
eyja. Skipið sem enn er í
notkun er 70 metra langt og
getur flutt 480 farþega og 62
fólksbíla.
Þriðjudagur 8. júní
Þennan dag árið 1789 hófst
jarðskjálftahrina á Suður-
landi, frá Selvogi til Þing-
valla. I heila viku voru
skjálftar með allt að tíu mín-
útna ntillibili. „Land seig
norðan Þingvallavatns milli
Almannagjár og Hrafnagjár
um rúma 60 sentimetra,
vellirnir urðu að mýrlendi
og mun það meðal annars
hafa orðið átylla til að leggja
þinghald þar niður árið
1800,” segir í Náttúru
Islands.
Auglýsingar
og áskrift
sími 456 4560
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 1999
5