Bæjarins besta - 14.07.1999, Blaðsíða 1
MYNDAALBÚM
fyrir 200 myndir
2 stk. aðeins fcr. 590.
Sími3123
Stofnaö 14. növember 1984 • Sími 45E 45B0 • Fax 45B 4564 • Netfang: bb@snerpa.is • Verö kr. 200 m/vsk
Mjög góð sala hefur verið á fasteignum á ísafirði að undanfórnu.
Fjörkippur í fasteignasöiu á ísafirði
Mikil hreyfing
á stærrí eignum
„Ég man ekki eftir fast-
eignasölunni eins líflegri síð-
ustu fjögur-fimm árin“, sagði
Tryggvi Guðmundsson, lög-
fræðingur og fasteignasali á
ísafirði í samtali við blaðið.
Ástæðuna telur hann ekki
síst almenna bjartsýni, - „að
menn séu ekki að taka mikið
mark á þessu fjölmiðlavæli
sem gengur yfir landið“. Hann
segir að þessi fjörkippur sé
fyrst og fremst bundinn við
ísafjörð sjálfan, miklu frekar
en byggðarlögin í kring.
Að sögn Tryggva hefur
þessi aukna sala ekki enn haft
verðhækkanir í för með sér.
„Nei, ekki beint, enda hefur
fasteignaverð hér á ísafirði
verið alveg í þokkalegu lagi,
nema hvað segja má að verð á
einbýlishúsum hafi verið
heldur lágt, væntanlega fyrst
og fremst vegna þess að fram-
boð hefur verið meira en eftir-
spurn. Núna sýnist mér þetta
vera að snúast við. Það hefur
selst það mikið af einbýlis-
húsum hér síðustu tvær til
þrjár vikurnar, að mér þykir
ekki ólíklegt að verðið á þeim
eigi eftir að stíga eitthvað.
Hreyfingin nú hefur verið
miklu meiri en áður á stærri
eignum en hins vegar hefur
verið ágætis hreyfing á minni
eignum líka. Fólk er að festa
sér húsnæði og svo virðist sem
bylgjan sem kom í Reykjavík
fyrir um hálfu ári sé að skila
sér hingað núna.
Einnig eru lánakjörin orðin
rýmri með tilkomu viðbótar-
lánakerfisins. Isafjarðarbær
eins og mörg önnur stærri
sveitarfélög sýndi ákveðna
framsýni með því að ganga
inn í það kerfi. Við erum ekki
enn búin að nýta allan þann
kvóta sem við eigum og ég sé
ekki annað en þessi hreyfíng
á fasteignum eigi að geta verið
töluvert mikil næstu mánuði.
Eftir því senr okkur finnst á
þeim sem eru að koma til okk-
ar, bæði ungu fólki og eldra,
þá er hér alls ekki á ferðinni
sá uppgjafartónn sem virðist
ráða ríkjum í fjölmiðlum.“
- sjá viötal við Guðrúnu Guðleifs
Bjarnadóttur (Dúdú), eina af
SÍÐASTI
GEIRFULGINN
í FISKVERKUN
Á ÍSAFIRÐI?
- SPJALLAÐ VIV GUNNAR
H. GUÐM UNÐSSON HJÁ
FISKTAKI EHF. I MIÐOPNU
„Hornapúkunum" á bls. 4 og 5
Básafeii hf.
Halldóri og
Eggert sagt
upp störfum
Bræðrunum, Haildóri
Jónssyni, vinnslustjóra
rækjuvinnslu hjá Básafelli
hf. og Eggert Jónssyni,
útgerðarstjóra, var sagt upp
störfum á fimmtudag í síð-
ustu viku. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins, tengjast
uppsagnirnar ágreiningi
þeirra bræðra við stjórnend-
ur vegna sölu Sléttaness.
I samtali við Morgunblað-
ið segist Halldór vera mjög
ósáttur við þá leið sem fyrir-
tækið hafí ákveðið að fara
við lækkun skulda. Hann
segist hafa reynt að hafa
áhrif á ákvörðunina um sölu
Sléttanessins og því sé það
einkennileg tilviljun að
nrenn skuli vera látnir hætta
með slíkum látum ef það
tengist ekki mótmælunum.
Halldór segir stjórnendur
fyrirtækisins hafa verið í
tímahraki og því hafí verið
tekin sú ákvörðun að losa
sig við seljanlegustu eign-
irnar.
Fiateyri
Missti hand-
legg í slysi
Pólsk kona á fertugsaldri
missti handlegg í vinnuslysi
hjá Vestfirskum skeltiski á
Flateyri á föstudag. Hún
mun hafa lent með hand-
legginn í hakkavél.
Konan var flutt á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Isafirði
og þaðan með sjúkraflugi til
Reykjavíkur þar sem gert
var að sárum hennar.
HAMRABORG
Sími: 456 3166
nv nnvvn un cn
AD HALDA ÁFRAM!
PAO ER DÁLÍTIL
NORN í ÖLLUM
KONUM!
FINA LilÐIN Tll
AÐ HALDA LÍFI ER
OUT LOUD M HAlM AFJtAM,