Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.07.1999, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 14.07.1999, Blaðsíða 2
XTtgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 ísaflörður ■tt 456 4560 0456 4564 Netfang prentsmiðju: hprent@snerpa.is Stafræn útgáfa: http://wrww.snerpa.is/bb Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson Halldór Sveinbjörnsson Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson Blaðamaður: Hlynur Þór Magnússon Netfang ritstjórnar: bh@snerpa.is Bæjarinsbesta er í samtökum'bæjar- og héraðs- fréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annars efnis er óheimil nema heimllda sé getið. limiWilMI Undan þeírrí ábyrgð fá þeir ekki vikist Formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, Kristinn H. Gunnarsson, kallaði söluna á Sléttanesinu skemmdarverk og sakaði Landsbankann um að mismuna viðskiptavinum eftir búsetu. Síðan tók þingmaðurinn flugið og talaði um útgerðarmann, sem fékk væna sendingu á silfurfati. Það er létt verk að ásaka Landsbankann fyrir að vilja gæta hagsmuna sinna. Er þó ekki ýkja langt um liðið síðan síðan ýmsir vinnufélagar þingmannsins töldu ekki ofgert þar á bæ í þeim efnum. En um leið og þingmaðurinn kveður upp áfellisdóm yfir bankanum ætti hann að ritja upp hvernig lánastofnanir komust í þá stöðu að geta krafið fyrirtæki um sölu áaflaheimildum til skuldalækk- unar. Ræða Þorsteins Pálssonar, þáverandi sjávarútvegsráð- herra, á sjómannadaginn 1996, um þjóðareign á auðlind- inni í hafinu, ómaði enn þegar þáv. Seðlabankastjóri og nú flokksbróðir Kristins birtist í sjónvarpinu og grátbað stjórnvöld um lagabreytingar svo unnt yrði að veðsetja kvótann. Bankastjóranum var mikið niðri fyrir, bankanir í hættu, þeir höfðu lánað mikla peninga út á þinglýsta samninga, sem voru ekki pappírsins virði. Bankastjórinn átti hauk í homi, forsætisráðherra. Tæpu ári síðar, í skjóli nætur, samþykkti Alþingi Islendinga lög sem heimiluðu að veðsetja aflaheimildir. Þá nótt var lítið minnst á stjórnarskrána. Fjórir þingmanna Vestfirðinga guldu þessu jáyrði og hinn fyrsti þeirra í röðinni komst svo að orði: ,,Þetta frumvarp er ekki á nokkurn hátt líklegt til að festa í sessi núverandi skipulag veiðanna. Þessu er þvert á móti þveröfugt farið og núverandi ástand líklegra til að festa tangarhald bankanna.” Og nú áttu menn að geta stundað eðlileg bankaviðskipti í samræmi við „eign” sína, þ.e. kvótann, í friði. Kristján Pálsson, þingmaður, sagði hins vegar af sama tilefni: „Eg er ekki viss um að allir þingmenn geri sér grein fyrir hvað þeir voru að samþykkja.” Hvað sem hverjum og einum kann að finnast um sölu einstaklinga og fyrirtækja á aflaheimildum, eða kröfum lánadrottna á hendur þeim í þá veru, þá eru þeir að nýta það eitt, sem þingmenn eru búnirað færaþeim á silfurfati, svo notað sé orðalag þingmannsins: Otakmarkað vald til að ráðskast með auðlindina, óveidda fiskinn í sjónum. Formanni sjávarútvegsnefndar tekst ekki að hvítþvo þingmennina með ásökunum á hendur Landsbankanum. Sú óburðuglega tilraun er feilspark. Abyrgðin er þingmai.na, sem hina örlagaríku nótt á vordögum 1997 framseldu frumburðarrétt íslensku þjóðarinnar til fárra útvaldra gæðinga. Undan þeirri ábyrgð fá þeir ekki vikist. s.h. OÐÐ VIRUNNAÐ Út-utan Strandlengja Noregs liggur að mestu að vestri. Þegar farið var út að sjó eða út á haf\ar að jafnaði farið í vesturátt. Þess vegna skap- aðist þarsú málvenja, aðúf tókað merkjaveiíMr. Andstæðan viðúr er að utan eða utan. Þessa málvenju tóku norskir landnámsmenn íslands út með sér. Þeir fóru út til Islands en frá Islandi fóru þeir utan. Noregur var í austri og því voru Norðmenn á Islandi nefndir Austmenn. Suðvestanátt er enn kölluð úísynningur og norðvestanátt ú/nyrðingur. Noregur var hins vegar landið í austri og því heitir suðaustanátt /nnJsynningur og norðaustanátt /unJnyrðingur. ' ; \ Basafell Engínn fundur í bráð? Knattspyrnulið KÍB Sigurgangan heldur áfram Ekki hafði verið boðað til stjórnarfundar í Bása- felli hf. þegar blaðið fór í prentun og stjórnarmaður sem blaðið ræddi við hafði ekki heyrt um nein áforrn um að halda fund. Umtöluð sala á togar- anum Sléttanesi er eins og kunnugt er háð sam- þykki stjórnar fyrirtækis- ins. Samkvæmt óstaðfest- um heimildum blaðsins í gær var stjórnarformað- urinn, Ragnar Bogason hjá Olíufélaginu, að fara í þriggja vikna frí til út- landa. Suðureyri Sæluhelg- in byrjar Sæluhelgin árvissa á Suðureyri byrjar á morg- un. og stendur frarn á sunnudagskvöld. Hún hefst kl. 15 með fjall- göngu upp á Hádegishorn undir leiðsögn Kjartans Ólafssonar rithölundar og verður lagt af stað frá flug- vellinum. Um kvöldið kl. 20 verður frumsýning á Línu langsokk. Eftir hádegi á föstudag skemmtir tjöllistahópur- inn Morrinn á götum bæj- arinsenkl. 16 verðurfjöl- skylduferð til Norðureyr- ar. Á laugardagsmorgun er messa í Suðureyrar- kirkju en eftir hádegi verður mansakeppni og reiðhjóla- og kassabíla- rall og dansleikir fyrir börn og fullorðna um kvöldið. Fátt ef nokkuð virðist geta komið í veg fyrir, að lið Knattspyrnubandalags Isa- fjarðar og Bolungarvíkur (KÍB) komist í úrslitakeppn- ina um sæti í 2. deild að ári. Liðið hefur nú leikið átta leiki af tólf í A-riðli 3. deild- ar, unnið sjö og gert eitt jafntefli og markatalan er 40:6. Markahæstir eru Pétur Geir Svavarsson og Atli Vil- helmsson með 6 mörk hvor en Guðbjartur Flosason er með 5 mörk. Tveir síðustu leikir KÍB voru heimaleikir og spilaðir í Bolungarvík. Um fyrri helgi var Augna- blik lagt að velli 13:1 og um síðustu helgi sigraði KÍB Fjölni 5:0. Næsti leikur er útileikur gegn Haukum. Hóima víkurrallið Páll og Jóhannes sigruðu Páll Halldór Halldórsson stóð við stóru orðin í BB um daginn er hann sagðist ætla að sigra í Hólmavíkurrallinu sem háð var um sfðustu helgi. Hann og aðstoðarökumað- ur hans, Jóhannes Jóhannes- son óku af öryggi eins og venjulega og sluppu við óhöpp og bilanir. Helstu keppinautar þeirra, feðgarnir Jón og Rúnar urðu hins vegar fyrir því óláni að velta bifreið sinni. Bílbe/tanotkun á Vestfjörðum Flateyri best, Bfldudalur verstur Könnun var gerð á bíl- beltanotkun í átta byggðar- lögum á Vestfjörðum dagana 1.-12. júlí. I heildina kom Flateyri best út en Bíldudal- ur verst. Á Flateyri og ísafirði reyndust 79% ökumanna vera með belti, á Þingeyri 78%, í Bolungarvík 65%, á Patreksfírði 62%, á Hólma- vík 60%, á Bíldudal 55% og á Suðureyri 54%. Á Flateyri voru 86% far- þega í framsæti með belti, á Patreksfirði 84%, á ísafirði 83%, á Hólmavík og Þing- eyri 79%, í Bolungarvfk 74%, á Suðureyri 65% og á Bíldudal 53%. Á Flateyri voru 94% far- þega í aftursæti með belti, á Patreksfirði 92%, á ísafírði 87%, í Bolungarvík og á Þingeyri 78%, á Suðureyri 72%, á Hólmavík 70% og á Bfldudal 57%. Júlíus Ólafsson, umferðar- öryggisfulltrúi á Vesttjörð- um sá um könnunina sem framkvæmd var af slysa- varnafólki á Vestfjörðum. Júlíus sagði í samtali við blaðið, að menn í sendibíl- um allskonar væru oftast ekki í beltum og varpaði fram þeirri spurningu, hvort þeir teldu sig ódauðlega. ísafjörður Jakob Falur að- stoðarmað- ur ráðherra Jakob Falur Garðars- son, stjórnmálafræðingur hefur verið ráðinn aðstoð- armaður Sturlu Böðvars- sonar samgönguráðherra. Jakob Falur er 33 ára ísfirðingurog stjórnmála- fræðingur frá Háskólan- um í Kent á Englandi. Síð- ustu árin hefurhann starf- að sem framkvæmdastjóri ICEPRO, nefndar um raf- ræn viðskipti. Sambýliskona hans er Vigdís Jakobsdóttir leik- stjóri og eiga þau einn son. Laxveiði Glæðist í Laugardal Á mánudag voru komn- ir 54 laxar á land í Laug- ardalsá. Sjö dögum fyrr voru aðeins komnir 30 laxar á land á tæpum mán- uði og má því segja að veiðin hafi tekið kipp und- anfarna daga. Það voru Englendingar sem luku veiði í ánni á sunnudag og fengu þeir tólf laxa. Þeir munu hafa sett í fjölmarga laxa til viðbótar sem þeir slepptu. Á mánudag hófu ítalir veiðar í ánni.Auk laxanna 54 hafa þrír laxar komið á land í Laugabólsvatni. Engar fréttir hafa borist af veiði í Langadalsá, en þar voru sex laxar komnir á land fyrir viku. fimmtudag, föstudag og laugardag JON WGUNNA Ljóninu, Skeiði, ísafirði, sími 456 3464 LEGGUR OG SKEL fcitciverslun barnannci Ljóninu, Skeiði, sími 456 4070 2 MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1999

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.