Bæjarins besta - 14.07.1999, Blaðsíða 12
Bæjarins besta
Stofnað 14. nóvember 1384* Sími 45B 45B0 *Fax 45B 45B4 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk
GoiFSETT - áim smmm
eoifWKAn - ooimmm
eoiFSKó* - mmmm
ísafjörður
Bíræfinn
þjófnaður
Bíll ók á ljósastaur á
Hnífsdalsvegi um þrjú-
leytið sl. föstudag. Ekki
urðu slys á fólki. Aðeins
unt 20-25 mínútur munu
hafa liðið frá árekstrinum
og þangað til bfllinn var
fjarlægður af staðnum.
Sá tími nægði þó ein-
hverjum til þess að stela
geislaspilara út bílnum á
meðan, jafnvel þótt lög-
reglan hefði verið við
hann verulegan hlutatím-
ans og stöðug umferð um
veginn eins og venjulega
um þetta leyti.
Tryggingafélag bílsins
biður hugsanleg vitni að
því að menn hafi verið að
sniglast við bílinnn eða
gramsa í honum að hafa
samband við lögreglu.
Þingeyri
Guðni inn
í rekstur
Unnar?
Fyrir nokkru leituðu
fors varsmenn Un nar ehf.,
sem rekur fískverkun á
Þingeyri, til Guðna G. Jó-
hannessonar á ísafirði,
um að hann kæmi inn í
reksturinn.
Að sögn Guðna er
þessa dagana verið að
vinna að úttekt á stöðu
fyrirtækisins og mun
hann taka ákvörðun þegar
hún liggur fyrir. Vænta
má niðurstöðu í þessari
viku.
Eins og kunnugt er var
öllum starfsmönnum
Unnar ehf. sagt upp fyrir
fáum vikum vegna hrá-
efnisskorts. Samkvæmt
heimildum blaðsins staf-
ar sá hráefnisskortur af
því, að fyrirtækið hefur
ekki bolmagn til þess að
kaupa fisk til vinnslunnar.
Bátur frá Suðureyri sökk vegna ofhieösiu árið 1997
Réttindalaus skipstjóri
sýknaður í Héraðsdómi
- sakarefni þóttu liggja fyrir en málið var fyrnt
TriIIukarl á Suðureyri var í
síðustu viku sýknaður í Hér-
aðsdómi Vestfjarða af ákæru
urn að hafa ofhlaðið bát sinn,
Blossa GK 060, með þeim
afleiðingum að báturinn sökk,
og að hafa farið sem skipstjóri
í liðlega tuttugu dagróðra frá
Suðureyri á tímabilinu frá
nóvember 1996 til mars 1997
án þess að hafa öðlast tilskilin
skipstjórnarréttindi. Sakarefni
þóttu liggja fyrir en brot
mannsins voru fyrnd.
Síðdegis 15. mars I997
sökk Blossi GK, sem var 7,85
brúttórúmlestir, djúpt út af
Súgandafirði. Ákærði, sem
fór með stjórn bátsins, og há-
seti, sem með honum var, fóru
í gúmbát og var þeim bjargað
eftir um hálfa klukkustund.
I dómnum segir: „Oumdeilt
er í málinu, að ákærði hafði
ekki fengið útgefið skírteini
hjá sýslumanni um réttindi til
að stjórna skipi, allt að 30
rúmlesta, en hafði þó lokið
námi hjá Farskóla Vestfjarða,
sem fullnægði áskilnaði /.../
til að öðlast slík réttindi."
Einnig segir í dómnum: „í
samræmi við ofmat sitt á burð-
argetu skipsins ofhlóð ákærði
það í umrætt sinn og telja hinir
sérfróðu meðdómsmenn það
hafið yfir skynsamlegan vafa
að ofhleðslan, sérstaklega
með þeim frágangi sem
ákærði hafði á farmi, með því
að fylla lestina aftast með
lausum steinbít, hafi leitt til
þess að Blossi seig skyndilega
bakborðsmegin að aftan og
sökk síðan. /.../ Eftir framan-
sögðu braut ákærði gegn
skyldu sinni samkvæmt 6. gr.
siglingalaga til að annast um
að skip væri ekki offermt. /.../
...verður fallist á það sjónar-
mið sem frarn kom af hálfu
fulltrúa ákæruvaldsins við
aðalmeðferð málsins að refs-
ing sú sem ákærði hafi unnið
til með háttsemi sinni eigi ekki
að fara fram úr sektum. /.../
...fyrnist sök ákærða því á
tveim árum. /.../ Við sjópróf
þann 8. apríl 1997 varákærði
yfirheyrður sem vitni og
einnig við skýrslutökur hjá
lögreglu þann 16. mars það
ár. Samkvæmt þessu kemur
ekki til álita að fyrningu hafi
verið slitið við rannsókn máls-
ins, þar sem ákærði kom
hvorki fyrir dóm né lögreglu
sem sakborningur. Ákæra í
máli þessu var gefin út þann
l. mars sl. og send til sýslu-
mannsins á Isafirði, sem af-
henti hana héraðsdómi þann
10. s.m. Fyrirkall var gefíð út
þann 12. mars, það birt ákærða
16. s.m. og málið þingfest
þann 23. mars sl. og kom
ákærði þá fyrir dóm. Var fyrn-
ingu sakarinnar þá fyrst slitið,
en þá var hún fyrnd...“
Dóminn kváðu upp Erling-
ur Sigtryggsson, dómstjóri,
ásamt skipstjórunum Hjalta
Má Hjaltasyni og Theodór R.
Theodórssyni.
Ketill Helgason fyrir framan húsnœði Rauðsíðu ehf. cí Þingeyri.
Greiðsiustöðvun Rauða hersins runnin út
Nýir fjárfestar í stað lánsins
sem Byggðastofiiun neitaði um?
Greiðslustöðvun fyrirtækja að ekki yrði óskað eftir gjald- þrjá daga til umhugsunar. reiðubúniraðleggjaframfjár-
Rauða hersins á Vestfjörðum þrotaskiptum strax að lokinni Stöndugir fjárfestar hefðu muni sem svöruðu til þeirrar
er runnin út. Ketill Helgason greiðslustöðvun, heldur lýst áhuga sínum á þátttöku í lánsbeiðni til Byggðastofn-
lét svo ummælt á sunnudag, myndu menn taka sér tvo til rekstrinum og væru jafnvel unar sem synjað var um.
Yirka
SP
k!» m* 23
kl, I
BjömslNijll
///
SAMKAUP
Virka daga
kl. 09 - 21
Laugardaga
kl. 10 - 18
Sunnudaga
kl. 12 - 18
(/er/df
Go Ifferð
til FraMdands
29. s eptember
Samvinnuferðir
Landsýn
Söluskrilstofa • Halnarstræti 7
l'safiröi • Slmi 456 5390
Árnagata 3 • Isafirði “ símf456 5500
SÓLPALLAEFNI, INNVEGGJAEFN/
OG PLASTPARKET Á WIJÖG HAGSTÆÐU VERÐI!
LÁTIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐI