Bæjarins besta - 11.08.1999, Qupperneq 2
Útgefandi: Ábyrgðarmenn:
H-prent ehf. Sigurjón J. Sigurðsson
Sólgötu 9, 400 ísafjörður Haildór Sveinbjörnsson
•b 456 4560 Ritstjóri:
0456 4564 Sigurjón J. Sigurðsson
Netfang prentsmiðju: Blaðamaður:
hprent@snerpa.is Hljniur Þór Magnússon
Stafræn útgáfa: Netfang ritstjórnar:
http://www.snerpa.is/bh bb@snerpa.is
Bæjarins Þesta er í samtökum úæjar- og héraðs-
fréttahlaða. Eftirprentun, Ujóðrltun, notkun ljósmynda
og annars efnls er óheimil nema heimilda sé getið.
Þar liggur hund-
urinn grafinn
Ovænt eignarhald Orca S.A. í Lúxemborg á 26,5%
hlutatjár í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins strekkti heldur
betur á taugum margra spekúlanta í fjármálaheiminum.
Kannski var það lítillæti kaupenda að vilja ekki láta nafns
síns getið sem kom forsætisráðherra til að tjá sig um
óæskilegt veldi fárra í fjármálakerfinu. Otti hans er skilj-
anlegur. Það er yfirlýst stefna stjórnvalda að bankar verði
almenningseign á íslandi. En nú er komið á daginn að
margt fer öðruvísi en ætlað er. Peningavaldið hefur enn
eina ferðina sannað að fáir finnast þeir þröskuldar sem
því verður fótaskortur á.
„Það má vel vera að staðan sé sú að sú aðferð okkar að
reyna að koma út með dreifðum hætti [eignaraðild að
bönkunum] haldi ekki til lengdar og þá þarf kannski að
kanna hvort aðrar lagaforsendur þurfi að vera fyrir hendi
sem tryggi hreinlega að eignaraðild að fjármálakerfínu í
þessu landi sé dreifð. íslenska þjóðríkið er þannig vaxið
að það er ekki hollt fyrir það að vera í höndunum á mjög
fáum aðilum“ sagði forsætisráðherra. Og hann kveður
hættu á að mjög stórir aðilar í bankakerfinu gætu í eigin-
hagsmunaskyni átt það til að taka ákvarðanir sem stríddu
gegn hagsmunum bankanna og lítilla eigenda þeirra.
Viðbrögðin við ummælum forsætisráðherra hafa verið
á báða vegu. Ekki verður þó annað séð í fyrstu en að við-
horf forsætis- og viðskiptaráðherra liggi um krossgötur,
hvað sem síðar kann að verða. Þeir skáldlegustu í brans-
anum benda á að menn skipti ekki um hross í miðri á.
En hvað sem því líður er rétt að staldra við þau orð
ráðherrans að „íslenska þjóðríkið [sé] þannig vaxið að
það er ekki hollt fyrir það að vera í höndunum á mjög
fáum aðilum.“
Það skyldi nú aldrei vera að einmitt þannig sé búið að
koma því fyrir að „eignarhaldsréttur" á stærstu auðlind
þjóðarinnar, fiskinum íhafinu í kringum landið, sé kominn
í hendur mjög fárra aðila? Ekkert lát er á samþjöppun fyr-
irtækja í sjávarútvegi. Þar berjast stærstu og fjársterkustu
aðilarnir um að gleypa hvert smáfyrirtækið á fætur öðru.
Erfingjar útgerðarfyrirtækja flýja stöðugt greinina með
milljónatugi í vasanunt. Og hæla sér af. Þarna þurfa menn
ekki á nafnleynd að halda. Þar eru engir huldumenn.
Forsætisráðherra hefur ekki áhyggjur yfir fámennis-
yfirráðum í sjávarútvegi. Þau eru í samræmi við stefnu
íslenskra stjórnvalda. Meirihluti þingmanna telur þetta
fyrirkomulag hollt fyrir íslenska þjóðríkið.
Þar liggur hundurinn grafinn.
—s.h.
OÐÐ VIKUNNAR
Loftnet
Á stórhátíðum og við útlendinga er stundum sagt að tslenskt mál
hafi varðveist óbreytt í þúsund ár. Þar er talsvert ofmælt.
Framburður hefur breyst verulega. Þótt ekki séu til teip með
Gretti eða Snorra má m.a. ráða breytingar á framburði af þrælrím-
uðum kveðskap þeirra. Olíklegt er að við gætum skilið óforvarendis
upplestur Ara fróða úr eigin verkum.
Breytingar á samfélagi og tækni hafa einnig leitt til breytinga á
orðaforða. Orð hafa dáið, önnur fæðst eða verið ættleidd og merk-
ing margra hefur breyst. Hætt er við að partíljóninu Agli Skalla-
Grímssyni yrði tregt tungu að hræra í geðveikt skemmtilegum sam-
kvæmum nú á dögum og sennilega myndi hann telja að loftnet væri
útbúnaður til fuglaveiða.
Rækjuverksmiðja Bakka hf. í Boiungarvík
Afköstín tvöfaldast
um mánaðaniótin
- og verða orðin fjórföld eftir hálft ár
Eftir þrjár vikur tvöfaldast
afkastageta rækjuverksmiðju
Bakka hf. í Bolungarvík og
síðan á hún að tvöfaldast á ný
eftir hálft ár. í byrjun mars var
frá því skýrt hér í blaðinu, að
ætlunin væri að fjölga pillun-
arvélum fyrirtækisins úr
þremur í sex og klárast sú
vinna um næstu mánaðamót.
í lok febrúar í vetur eiga
vélarnar síðan að verða komn-
ar upp í tólf, að sögn Egils
Guðna Jónssonar, stjórnarfor-
manns Nasco ehf., sem er eig-
andi Bakka hf.
Egill Guðni sagði í samtali
við blaðið að ekki væri langt
síðan ákveðið hefði verið að
halda áfram að stækka verk-
smiðjuna. „Við teljum skyn-
samlegast að halda áfram að
efla þessa verksmiðju enn
frekar og ætlum að gera það.
Þarna er að verða til mjög
öflugt stóriðjufyrirtæki og það
kallar vissulega á að við þurf-
um að fá bæjaryfirvöld til liðs
við okkur, einkum til þess að
fá meira vatn fyrir vinnsluna."
Stefnt er að því að verk-
smiðjan verði keyrð 16 tíma á
sólarhring, að minnsta kosti
virka daga, 47-48 vikur á ári.
Þegar l'ullum afköstum verður
náð eftir stækkun í tólf vélar
ættu afköstin að verða 18 þús-
und tonn yfir árið og velta
Bakka hf. um fjórir milljarðar.
Fjöldi starfsmanna verður þá
um hundrað.
A undanförnum mánuðum
hefur verið nokkrum erfiðleik-
um bundið að fá nægilegt
starfsfólk í Bolungarvík og
helst þurft að byggja á inn-
flutningi á vinnuafli. Egill
Guðni segir að það sé vissu-
lega nokkurt áhyggjuefni þeg-
ar litið er til stækkunarinnar.
„Þetta hefur valdið okkur
nokkrum þönkum en okkur
sýnist að það hafi staðið til
bóla. Til að mynda er nokkuð
af erlendu verkalölki búsett á
svæðinu. Mér sýnist að verði
til frambúðar og þetta fólk
hefur meira og meira verið að
koma til okkar.“
Egill Guðni segir horfurnar
í sölumálum góðar og fyrir-
tækið hafi trausta kaupendur.
Einnig segir hann að hráefn-
isöflun fyrirtækisins sé trygg
til að hægt verði að halda uppi
fullri vinnslu árið um kring,
Bakki á helmingshlut í þremur
skipum sem veiða fyrir vinnsl-
una, síðan eru samningar við
önnur skip sem Nasco hefur
lagt til veiðileyfi gegn löndun
og í þriðja lagi kaupir fyrir-
tækið á markaði.
„Ég hygg að staða og sam-
keppnishæfni Bakka ætti að
vera mjög góð eftir þessar
breytingar", segir Egill Guðni.
„ Vonandi er það sem við erum
að gera jákvætt innlegg í um-
ræðuna á Vestfjörðum sem
hefur ekki verið alltof björt.
Maður hefur verið ósáttur við
fréttaflutninginn að vestan.
Það þjónar vissulega ekki
okkar hagsmunum að þar sé
allt á niðurleið. Ég vona að
svæðið í heild muni njóta góðs
af þessari verksmiðju.“
Samkoma í Reykjanesi
Til heiðurs sr. Baldri
Knattspyrna 3. deiid
KÍB í 2. sæti
Sunnudaginn 15. ágúst
gangast sóknarnefndir við
Inn-Djúp fyrir samkomu í
Reykjanesi til heiðurs prest-
hjónunum, sr. Baldri Vil-
helmssyni og Olafíu Salv-
arsdóttur, þar sem nú er að
ljúka 43 ára starfi þeirra í
Vatnsfirði.
Vonast aðstandendur sam-
komunnar til að sem flest
sóknarbörn hans og nem-
endur frá Reykjanesskóla,
heima og heiman, sjái sér
fært að mæta.
Fyrirhugað er að koma í
Vatnsfjarðarkirkjukl. 13:30,
skoða kirkjuna og halda
þaðan út í Reykjanesskóla
til veislu.
Sameiginlegt lið ísafjarð-
ar og Bolungarvíkur (KIB)
var í 2. sæti 3. deildar -A
þegar ein umferð var eftir af
mótinu.
Liðið tapaði öðrum leik
sínum á tímabilinu á föstu-
dag er það sótti Aftureld-
ingu heim. Lokatölur leiks-
ins urðu 1-0 fyrir heima-
menn. Afturelding er nú í
efsta sæti með 26 stig eftir
10 leiki og KIB kemur næst
með 25 stig eftir 11 leiki.
Síðasti leikur KIB fór
fram á Skeiðisvelli í gær-
kvöld og lágu úrslit ekki fyr-
ir er blaðið fór í prentun. í
þriðja sæti eru Haukar, þá
koma Fjölnir og KFR.
Amar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
F asteignaviðskipti
Eftirtaldar eignir eru einungis sýnishorn úr sölu-
skrá okkar, leytið nánari upplýsinga á skrifstofu.
ÍSAFJÖRÐUR:
Grundargata 2: Rúml. 60 fm 2ja
herb. íbúð á I. hæð.
Verð kr. 3.800.000.- Laus.
Hlíðarvegur 16: Lítil 3ja herb. íbúð
á 2. hæð í tvíbýlishúsi. Verð kr.
3.800.000,- Laus þ. 1/1 I nk.
Hafnarstræti 6: 5-6 herb. íbúð á 2.
og 3. hæð. Getur verið laus strax.
Verð kr. 6.800.000,-
Aðalstræti 13: Efri hæð í
tvíbýlishúsi ásamt hálfum kjallara og
tvöföldum bílskúr.
Hlíðarvegur 14: Einbýlishús -
kjallari, hæð og óinnréttað ris.
Grunnflötur ca. 90m2. Húsið er
nýuppgert að mestu.
Verð: 10.400.000,-
Heiðarbraut 12: Rúmlega 220m2
tvílyft einbýlishús ásamt bílskúr. Geta
verið tvær íbúðir. Laust fljótl. Verð
kr. I 1.500.000,- Skipti á minni eign
koma til greina.
Kirkjubær: Lítið einbýlishús. Laust.
Mánagata 6: Efri hæð I55m2 5-6
herbergja. Laus fljótlega.
Mjallargata 6, norðurendi: Lítil 3-
4 herb. íbúð ásamt tvöföldum bílskúr.
Laus fljótlega.
Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á 3.
hæð. Verð: 3.600.000,-
Stakkanes 6: Rúmlega I40m2
raðhús ásamt bílskúr og sólstofu.
Urðavegur 24:
240m2 raðhús með bílskúr.
Seljalandsvegur 22: Rúmlega 130 m2 einbýlishús, nýstandsett
að utan og innan. Verð 10.500.000,-
Verð I 1.500.000,-
Stórholt II: 3ja herbergja íbúð á
3. hæð fyrir miðju. Laus.
Verð: 4.300.000,-
Stórholt 13:4ra herb. íbúð á 2. hæð
ásamt bílskúr. Skipti á ódýrari eign
eða jafnvel bíl komatil greina. Ibúðin
er laus. Verð kr. 7.800.000
Strandgata 5: Hnífsdal, 2ja herb.
íbúð 65 m2 á 2. hæð í sambýlishúsi.
íbúðin er laus. Verð kr. 1.000.000
BOLUNGARVÍK:
Hafnargata 7: Efri hæð í
tvíbýlishúsi.
Verð: 2.800.000,-
Höfðastígur 6: Rúmlega 170m2 íbúð
á efri hæð og séríbúð í kjallara. Selst
sitt í hvoru lagi.
Þuríðarbraut 9: Rúmlega I20m2
einbýlishús úr timbri ásamt mjög
stórum bílskúr (hátt til lofts). Húsið
getur verið laust fljótlega. Hagstæð
greiðslukjör - engin útborgun.
Búðarkantur 2: Rúmlega 200m2
stálgrindarhús.
Holtabrún 5: Ca. I40m2 ein-
býlishús ásamt bílskúr.
Stigahlíð 2 og 4: 2ja og 3ja herb.
íbúðir. Verð: 1,5 til 3 milljónir.
Traðarland 10: Einbýlishús ásamt
bílskúr. Verð: 7,2 milljónir.
Vitastígur 9: 2 x 75m2 parhús.
Nýuppgert og mjög vandað.
Völusteinsstræti 28: 150m2
einbýlishús á tveimur hæðum ásamt
bílskúr. Verð: 7.000.000,-
Völusteinsstræti 3: Einbýlishús
ásamt bílskúr.
Hjallavegur 14 og 16: Lítil raðhús
á einni hæð.
Hjallavegur 18: Efri og neðri hæð í
tvíbýlishúsi.
Hjallavegur 20: Efri hæð í tvíbýlis-
húsi
Góð áhvílandi lán fylgja öllum
eignunum á Flateyri.
Sætún 6: Raðhús. Laust.
Hjallavegur I I: Einbýlishús, 160-
170m2, illa farið. Verð kr. 2 millj., allt
áhvílandi.
2
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999