Bæjarins besta


Bæjarins besta - 25.08.1999, Side 5

Bæjarins besta - 25.08.1999, Side 5
Lögreglumennirnir með hjólin sín við Sveinseyri á leiðinni út með Dýrafirði. Frá vinstri: Snjólaug Birgisdóttir, Jón Svanberg Hjartarson, Birgir Hilmarsson, Rósamunda Baldursdóttir, Rögnvaldur Olafsson og Unnar Már Astþórsson. Lögreglumenn í hjólreiðaferð Slunkaríki Færeyskir listamenn á ferðinni Tvöhundruðasta sýningin í Slunkaríki á Isafirði verður opnuð nk. laugardag, 28. ágúst, og getur þar að líta graf- íkmyndir færeysku listakon- unnar Astri Luihn. Sýningin er sú fyrsta af fjórum í sýn- ingaröð sem Slunkaríki stend- ur fyrir á færeyskri myndlist dagana 28. ágúst til 25. októ- ber. Listamennirnir sem sýna eru, aukAstri Luihn, þauAase Bömler Olsen, Torbjörn Olsen og Olivur við Neyst. Astri Luihn er fædd árið 1948. Hún hefur haldið einka- sýningar m.a. í Þýskalandi og tekið þátt í fjölda samsýninga á Norðurlöndum. Listamennirnir verða allir viðstaddir opnun sýningarinn- ar á laugardaginn og því gefst kjörið tækifæri til að kynna sér stöðu myndlistar í Færeyj- um. Fyrsta sýningin í Gallerí Slunkaríki var opnuð í mars- byrjun árið 1985 og þvi er ekki nema liðlega hálft ár í 15 ára afmæli þessa einstæða sýningarsalar. Eins og áður segir er sýning Astri Luihn nr. 200 frá upphafi Slunkaríkis og hafa sýningarnar því verið um 14 á ári að jafnaði. Vestfirðir Fjarnám við Háskóla íslands Háskóli Islands mun halda áfram tilraun til fjarkennslu á haustmisseri 1999. Boðið verður upp á fjarnám á stuttum hagnýtum námsbrautum í ferðamálafræði og hagnýtri ís- lensku. Þessar námsbrautir eru 45 einingar og þeim lýkur með diplóma-prófi. Frekari upp- lýsingar er að fmna á vefsíð- unni http://www.hi.is/stiorn/ sam/namsleidir.html. svo og hjá Dagnýju Sveinbjörnsdótt- ur hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða og á heimasíðu fé- lagsins hjá Snerpu. Vestfírðir Vel gengur að ráða kennara Ástandið í ráðningamálum kennara í grunnskólum á norðanverðumVestfjörðum er nú betra en þekkst hefur í manna minnum. Óvenjulega vel hefur geng- ið að fá fólk til starfa og þar við bætist að um níu af hverj- um tíu hafa full kennslurétt- indi. Flestir hinna tiltölulega fáu leiðbeinenda hafa há- skólapróf. Nokkrir lögreglumenn á Isafirði, tvær konur og fjórir karlar, hjóluðu um daginn hringinn frá Þingeyri og um Svalvoga og aftur til Þingeyrar, alls um 50-60 krn leið. Ferð þessi var aðallega farin til skemmtunar en líka öðrum þræði til þess að halda sér í líkamlegri þjálfun. „Maður sér landið með allt öðrum hætti með því að hjóla heldur en að ferðast með bíl, sagði Birgir Hilmarsson", einn hjólreið- amannanna. Mannskapurinn fór fremur hægt yftr og naut náttúrufegurðarinnar á leiðinni. Lagt var af stað laust fyrir níu urn morg- uninn og komið aftur til Þingeyrar um sjöleytið urn kvöldið. Vestfírðir Rúmar 12 milljónir í ágóðahlut Eignarhaldsfélagið Bruna- bótafélag Islands greiðir í ár samtals rúmlega 12 milljóna króna ágóðahlut til sveitarfé- laga á Vestfjörðum sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBI. Þar af renna 6,2 milljónir til Isafjarðarbæjar, tæplega 2 milljónir til Vesturbyggðar og 1,4 milljónir til Bolungarvík- urkaupstaðar. Sveitarfélögin fá greitt í samræmi við eignar- hlut sinn í sjóðnum. I samræmi við samþykktir félagsins er mælst til þess, að sveitarfélögin verji umrædd- um fjármunum til forvarna, til greiðslu iðgjalda af trygg- ingum sveitarstjórna og til brunavarna. Vestfirðir Sveitir GÍ sigruðu í klúbba- keppninni A-sveit Golfklúbbs Isa- fjarðar sigraði á 255 höggum án forgjafar í klúbbakeppni Vestfjarða sem haldin var á golfvellinum í Tungudal sl. laugardag. Sveitina skipuðu þeir Krist- inn Kristjánsson, Gylfi Sig- urðsson, Ingi Magnfreðsson og Halldór Bjarkason. I öðru sæti varð A-sveit Golfklúbbs Patreksfjarðar á 273 höggum og í þriðja sæti A-sveit Golf- klúbbsins Glámu á Þingeyri á 277 höggum. I keppni með forgjöf sigraði D-sveit GI, í öðru sæti varð A-sveit Glárnu og í þriðja sæti A-sveit GÍ. Alls tóku þátt í mótinu 47 keppendur frá öllurn golf- klúbbum á Vestfjörðum. fsaQarðarkirkja Ómur lið- innaalda Síðustu sumartónleikarnir í Isafjarðarkirkju að þessu sinni verða í kvöld, miðvikudags- kvöld, og hefjast kl. 20.30. Þar munu hjónin Camilla Söd- erberg blokkflautuleikari og Snorri Örn Snorrason lútu- og gítarleikari endurvekja óm lið- inna alda með flutningi gam- allar tónlistar á hljóðfæri þeirra tíma, en efnisskráin spannar tónlist frá 14. öld og til okkar daga. Tónleikarnir í kvöld eru haldnir í samvinnu Tónlistar- félags Isafjarðar og Isafjarð- arkirkju og njóta stuðnings Fé- lags íslenskra tónlistarmanna. ísaQarðarkirkja Tónleikar með Ólöfu og Eddu Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Edda Erlendsdóttir halda tónleika í Isafjarðarkirkju nk: laugardag kl. 17. Tilefni tónleikanna er út- koma geisladisks þar sem þær flytja íslensk einsöngs- lög saman. Á efnisskrá tón- leikanna verður hluti þessara sönglaga auk ljóða eftir Hugo Wolf og Sergey Rachmani- nov en þau eru sungin f ís- lenskri þýðingu. Framkvæm á Óshlíöarv Nú urn nokkurt skeið hafa vélar og menn verið að störfum víða við Óshlíðar- veg við margvíslegar lag- færingar. Rásir ofan við veg- inn hafa verið hreinsaðar og dýpkaðar, skriðum mokað í burtu, varnarnet bætt og grjótpylsur lagfærðar. Auk þess hefur verið lagt nýtt slitlag á talsverðan hluta vegarins um Óshlíð. Á ntyndinni er vélskófla að hreinsunarstarfí í skriðunni ofan vegskálans við Steins- ófæru, sem byggður var árið 1986. fyrstur af fjórum sem nú eru á Óshlíðarvegi. Útsalan hefst á morgun, funmtudag. 40% afslátiur af blómapotfum, pýramídakertum, kertahringjum og servíettum. 30% afsláttur af englum Blómahorniö O.þ.h. frá Gæfumunum. Hafnargötu 46, Bolungarvík Opið virka daga kl. 13-18, laugardaga kl. 10-16 og sunnudaga kl. 13-16. sifYif 456 7021 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 5

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.