Bæjarins besta - 13.10.1999, Page 1
ORÐAIÆKUR Á
TÖLVUTÆKU FORM!
VERÐ KR. 6980,*
BOLHLADAN
SÍMI456 3123
Stofnað 14. ntvember 1984 • Sími 458 45B0 • Fax 450 4504 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/irsk
A föstudaginn var fóru nemendur 1. og 2. bekkjar Grunnskóla ísafjarðar í heimsókn
í Isafjarðarkirkju. Sr. Magnús Erlingsson sóknarprestur tók á móti börnunum og
rœddi við þau. Þá sungu þau lag sem þau hafa œft að undanförnu og fóru með bœn.
Myndin var tekin afbörnunum við það tœkifœri.
Fjórðiingsþing Vestfirðinga haldið á Tálknafírði
Skólaskrifstofan lögð niður
Meðal þess helsta sem til sérfræðiþjónustu á sviði Vestfjarða niður í lok yfir-
umfjöllunar var á 44. Fjórð- skólamála, félagsþjónustu og standandi skólaárs.
ungsþingi Vestfirðinga um málefna fatlaðra. Samþykkt Sjá nánar á bls. 2.
síðustu helgi var breytt skipan var að leggja Skólaskrifstofu
Krafa fræðslustjóra Vestflarðaumdæmis um biðlaun
Ríkissjóður sýknaður
Hæstiréttur hefur með dómi
7. október sl. sýknað ríkissjóð
af kröfu Péturs Bjarnasonar,
fyrrum fræðslustjóra Vest-
fjarðaumdæmis, um greiðslu
biðlauna eftir að staða hans
var lögð niður 1. ágúst 1996.
Dómurinn klofnaði í afstöðu
sinni og stóðu tveir dómarar
að niðurstöðunni en einn skil-
aði séráliti og taldi að taka
bæri kröfu Péturs um biðlaun
til greina.
Pétri var tilkynnt í septem-
ber 1995 að staða hans yrði
lögð niður 1. ágúst 1996. Ein-
um mánuði áður en til þess
kom, eða 1. júlí 1996, tóku
gildi ný lög þar sem réttur til
biðlauna var skertur verulega,
og komu þau lög í stað laga
frá 1954.1 málinu vareinkum
tekist á um það hvort Pétur
nyti réttar skv. hinum eldri
lögum, þar eð honum hafði
verið tilkynnt um starfslok og
þar með í raun verið sagt upp
störfum áður en hin nýju lög
tóku gildi.
Niðurstaða meirihluta
Hæstaréttar var í samræmi við
dóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur 30. nóvember sl.
Verðum að styrkja
sérkennin okkar
- sjá viótal viö Soffíu VaKns-
dóttiir uin htigsjónir og sjálf-
stætt fólk, frama, skilnaö,
sktliiing og lleira t iiiiöopnu
- sjá spjall við leikskólakennara-
nema frá Akureyri sem eru í verk-
námi í ísatjarðarbæ á bls. 4
Vestfirðir
Heilbrigðis-
stofnanir
sameinaðar?
Að frumkvæði heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytis-
ins er til athugunar hvort
heppilegt muni teljast að sam-
eina heilbrigðisstofnanirnar í
Bolungarvík og ísafjarðarbæ.
Ráðuneytið hefur ritað bæj-
aryfirvöldum hér vestra vegna
þessarar hugmyndar og óskað
eftir afstöðu þeirra til hennar.
Þorbjörn hf.
Kaupir
Sléttanesið
Þorbjörn hf. í Grindavík
hefur gert samkomulag við
Ingimund hf. í Reykjavík um
kaup á frystitogaranum Slétta-
nesi ÍS, ásamt 719 tonna afla-
hlutdeild í þorskígildum. Ingi-
mundur hf. kaupir á móti ís-
fisktogarann Skúm GK af Þor-
birni hf. án aflahlutdeildar.
Sléttanesið verður þriðji
frystitogari Þorbjarnar hf. en
fyrir eru Hrafn Sveinbjarnar-
son GK og Gnúpur GK.
Skúmur GK hét áður Oseyri
IS og eignaðist Þorbjörn hf.
skipið þegar fyrirtækið sam-
einaðist Bakka hf. í Bolung-
arvík. Sléttanesið eignaðist
Ingimundur hf. fyrr á þessu
ári en það var áður í eigu Bása-
fells hf.