Bæjarins besta - 13.10.1999, Blaðsíða 5
At-konur í sóknarhug
Námskeið í verð-
bréfaviðskiptum
- tilgangurinn að opna konum
dyr tjármálaheimsins
Námskeið í verðbréfavið-
skiptum, ætlað konum,
verður haldið í Landsbank-
anum á Isafírði að kvöldi
annars föstudags, 22. októ-
ber kl. 19.30. Frumkvæðið
að þessu framtaki er komið
frá samtökum At-kvenna á
Vestfjörðum og mun þetta
vera í fyrsta skiptið sem sér-
stakt kvennanámskeið á
þessu sviði er haldið hér-
lendis. Námskeiðið verður
í sal Landsbankans á Isa-
firði og leiðbeinandi verður
Árni S. Pétursson frá
Landsbréfum hf. Hann mun
leiða þátttakendur inn í
verðbréfaviðskipti á Vefn-
um, kynna þeim íslenska
verðbréfamarkaðinn svo og
erlenda markaði og ekki síst
kenna hvemig hægt er að
byrja að fikra sig inn í þessa
veröld sem má flestum
framar teljast heimur karla.
í tengslum við ráðstefn-
una Konurog lýðræði vinna
vestfirskarAt-konurað sér-
stökum verkefnum, annars
vegar um konur og viðskipti
og hins vegar konur og upp-
lýsingatækni. At-konur
segja að fjármálaheimurinn
sé að heita má lokaður kon-
um. Þær segjast ekki eiga
við að konur sem sækja um-
rætt námskeið þurfi endi-
lega að stökkva beint inn á
verðbréfamarkaðinn í Wall
Street, heldur sé verið að
opna þeim dyr inn í þennan
heim. Ef kona eigi t.d. tíu-
þúsundkall sem hún vill
gera eitthvað við, þá verði
hún fær um að gera það á
þessum vettvangi. „Á hverj-
um degi eru í blöðum og
sjónvarpi fréttir af verð-
bréfaviðskiptum og gengi
hlutabréfa og okkur finnst
eðlilegt að konur geti skilið
þessar fréttir rétt eins og
karlarnir. Við viljum stuðla
að því að konur geti stundað
verðbréfaviðskipti eins og
hver annar og fylgst með
því sem er að gerast í fjár-
málaheiminum. Námskeið-
ið er sérstaklega fyrir konur,
vegna þess að af einhverj-
um ástæðum hafa þær
miklu síður en karlmenn
lagt stund á bæði verðbréfa-
viðskipti og tölvutækni. Þá
eigum við ekki við rit-
vinnslu og þess háttar, held-
ur nýtingu hinnar nýju upp-
lýsingatækni, veraldarvef-
inn og það sem hann hefur
að bjóða." Skráning á nám-
skeiðið er í Landsbankan-
um á Isafirði og má geta
þess, að auk fræðslunnar
verður boðið upp á veiting-
ar.
At-konur eru sjálfseign-
arstofnun, sem konur á
Vestfjörðum settu á lagg-
irnar. Tilgangur hennar er
að efla og hlúa að atvinnu-
sköpun og menntun kvenna
á svæðinu. Markmið At-
kvenna er að styrkja vest-
firskar konur til áhrifa í
samfélaginu og þátttöku í
atvinnulífinu með fjöl-
breyttari atvinnutækifæri í
huga. At-konur eru einn af
stærstu hluthöfum í At-
vinnuþróunarfélagi Vest-
fjarða hf„ en félagið var
stofnað að frumvæði þeirra.
I stjórn At-kvenna eru sex
konur, þær Anna Lóa Guð-
mundsdóttir, formaður,
Guðrún Stella Gissurar-
dóttir, sem jafnframt er
stjórnarmaður í Atvinnu-
þróunarfélagi Vestfjarða
fyrir hönd hópsins, Sigur-
borg Þorkelsdóttir, Magda-
lena Sigurðardóttir, Sigríð-
ur Magnúsdóttir og Ingi-
björg Sigfúsdóttir. At-kon-
ur áttu fulltrúa á ráðstefn-
unni Konur og lýðræði um
síðustu helgi og sótti Guð-
rún Stella ráðstefnuna fyrir
þeirra hönd.
I byrjun þessa áratugar
komu saman nokkrarkonur
á Vestfjörðum til að ræða
bágar atvinnuhorfur
kvenna á svæðinu og geng-
ustíoktóber 1991 fyrirráð-
stefnu á Isafirði um at-
vinnumál kvenna. Efnt var
til tveggja ára átaksverk-
efnis í þessu efni og var
ráðinn sérstakur verkefnis-
stjóri.
Þetta átak var nefnt
Snerpa og þótti við hæfi að
gefa því nafn sem algengt
er að forystuær beri. Þegar
verkefninu lauk höfðu
nokkrar konur sett á lagg-
irnar smáfyrirtæki og all-
margir handverkshópar
orðið til. En ekki síst hafði
verið sáð fræjum bjartsýni
og trúar á ný tækifæri
kvenna.
Eigum laus pláss
á vorönn 2000.
TT y . y » , | .
Husstjornarskohnn
Hallormsstað
Qó'ður undandari í
fatahönnun, matreiðslu
nám eða eitt sér.
Allar frekari upplýsingar
og skráning á skrifstofu
skólans í síma
4711761,
Sigríður
Lmdmmí Maiids hf. et dtt t þfémmmfyfitmM
fáMdtÍm Isámiitpjml <f markaði þar mn stMugét
mýuttjfdt- em ag vá&i ÆtráMmái á komdodi árvm,
Ltm/issfmitm itírasi »ií að veMu tmá mtágatega
ffapxtíp/týifúmBtH smt v&r 'ee. é hmrfm. <úntti ttg nskmr eiM
jMIkmmmiit jffómMftitikvrfí heimsám.
ÞJÓNUSTUFULLTRÚAR
ÍSAFIRÐI
landssími Íslswfe M. éslcar ifllr aðrálátvi|
Sla if ng.fciiiR f ðd%. étnSiL
itói, AnoaniHéi
1 afpri&áj á «| fidteidáöiai
Sinans( ait wnarrar mievk^vMu úg fi Waidi vmémn.
Vtö tofent. il Ai|ep «JW, rem lieftir llaöbeo to!m)?8ter»í! [i]dnttft]lirKl
tiifni í Riarrt e»ni sanötrfum, Reynstó af. ttwtiSítistöffcm ísanl ipðíi
§\mnmmmrn m töbuþa^flau er aafctei-
í ísös m weltúfitl og atagauerfl wstóii ag enáirmainbjn
f starfi hjá framsækíÉ ffiiMí
&l6rl tigítta jatfré tatarti ím kgHum.
tonarí ý&ri'Æswar veítlr Sigiltar Öiafséiaif iiá RáflprS ht
i ö'ma. 4$14«o.
^nsarrtegsst im<M urssskm I RáSprfe M f;# 25. aktöber nUk, mertdar
„nitds$lmínsi * þjéituslBfallrtot krtttir
LANDtSfHI ftiANDSHF
Þorsteinn Jóhannesson, formaður læknaráðs FSÍ/HSÍ
Að gefiiu tilefhi
- varðar bréf Kristínar Jónsdóttur í BB
29.09.1999 undir heitinu „Nokkur síðbúin orð”
Ritstjóri Bæjarins besta á
Isafirði, bt. Sigurjóns J. Sig-
urðssonar, Sólgötu 9,400 ísa-
firði.
Vegna ofannefndrar greinar
biður læknaráð FSÍ / HSÍ þig
um að birta eftirfarandi álykt-
un sem samþykkt var á fundi
í ráðinu þann 8. október 1999:
„Læknaráð harmar að til
slíkra skrifa komi á opinber-
um vettvangi. Eðli málsins
samkvæmt þá getur læknir,
sem bundinn er þagnareiði,
ekki tekið þátt í skoðanaskipt-
um í fjölmiðlum um vandamál
eða sjúkdóma einstaklings.
Slík skrif sem áður er vitnað
til geta því aldrei gefið rétta
mynd af því sem málið snýst
um, þar sem upplýsingar eru
aðeins frá einu sjónarhorni.
Ef einstaklingar eru óá-
nægðir með samskipti sín við
lækni og / eða sjúkrahús /
heilsugæslu, þá er eðlilegast
að þeir leiti til yfirlæknis við-
komandi stofnunar eða snúi
sér beint með athugasemdir
eða kvartanir til landlæknis.”
Meðfyrirfram þökkfyrirbirt-
inguna. Þorsteinn Jóhannesson,
formaður lœknaráðs.
ísafjörður
Púttvölhir
a Torfnesi
Systkinin Margrét Jónsdótt-
ir og Vignir Jónsson hafa boð-
ið fram fjármagn til að koma
upp púttvelli á svæðinu frá
sjúkrahúsinu að leikskólanum
á Torfnesi.
Þetta kemur fram í bréfi frá
Golfklúbbi Isafjarðar til bæj-
aryfirvalda í Isafjarðarbæ. I
bréfinu óskar klúbburinn eftir
leyfi til að hefja framkvæmdir
sem og eftir aðstoða bæjarins
við uppbygginguna með því
að leggja fram gröfu við frá-
gang malarefnis og starfsfólk
við útlitsfrágang og snyrtingu
svæðisins á vori komanda.
Bæjarráð heimilar fyrir sitt
leyti framkvæmdina að feng-
inni samþykkt umhverfis-
nefndar. í svari bæjarráðs
kemur einnig fram að ekki sé
gert ráð fyrir meiri fjárfram-
lögum til Golfklúbbs Isafjarð-
ar í ár. Verður því væntanlega
ekkert af stuðningi bæjarins
við verkið.
ísaflörður
vai byggja
reiðhöll
Össur R Össurarson pípu-
lagningameistari á Isafirði
hefur sent bæjaryfirvöldum í
Isafjarðarbæ bréf þar sem ósk-
að er eftir lóð undir reiðhöll.
Fram kemur í bréfi Össurar
að efst á óskalistanum sé að
fá að byggja höllina í Tungu-
dal en aðrir staðir komi einnig
til greina.
Erindinu var vísað til um-
hverfisnefnar til umsagnar.
ísaflarðarbær
Bæjarráð
frestar fram-
kvæmdum
Meirihluti bæjarráðs Isa-
fjarðarbæjar hefur samþykkt
að fresta framkvæmdum upp
á fimm milljónir króna á þessu
fjárhagsári vegna erfiðar fjár-
hagsstöðu sveitarfélagsins.
Samþykkt var að fresta end-
urbótum á slökkvistöðinni á
Suðureyri en áætlaður kostn-
aður við þær framkvæmdir var
um ein milljón, þá var ákveðið
að fresta framkvæmdum við
göngustíg við Pollgötu fyrir
um 1,2 milljónir og fram-
kvæmdum við götulýsingu
við Ásgeirsgötu og Miðtúns-
brekku en kostnaður við það
verk var áætlaður 2,8 milljónir
króna.
Bæjarráð fól einnig bæjar-
stjóra að fara yfir verksamn-
inga og ræða við verktaka um
frestun framkvæmda og / eða
lengingu á framkvæmdatíma.
Bæjarstóri hefur þegar óskað
eftirþví við sviðsstjórabæjar-
félagsins að þeir dragi úr inn-
kaupum og hætti við þau, þar
sem þvf verður við komið.
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 5