Víðförli - 01.02.2002, Blaðsíða 12

Víðförli - 01.02.2002, Blaðsíða 12
12 VÍÐFÖRLI 21. ÁRG. 1. TBL. „Adrenalín gegn rasisma“ Fjölmenningarlegt unglingastarf í miðborg Reykjavíkur Viðfangsefni þessa verkefnis er hin breytta mynd íslensks samfélags í ljósi vaxandi fjölda nýrra íslendinga frá öllum heimshornum. Þessar aðstæður kalla á nýtt samtal með þjóðinni. Það samtal er þekkingarleit og sú leit er skammt á veg komin. „Adrenalín gegn rasisma11, sem er fjölmenn- ingarlegt unglingastarf í miðborg Reykjavíkur, er grasrótar- starf þar sem unglingum af ólíkum uppruna er skapaður vettvangur til umræðu um raunveruleg lífsgildi, siðferði og framtíðarsýn. Adrenalín'hópurinn hóf að vinna saman á síðastliðnu ári en kemur nú saman tvisvar í mánuði á Ömmukaffi, Austurstræti 20, þar sem haldin eru fjölmenningarkvöld. Verkefnið er á vegum Miðborgarstarfs KFUM&.K í sam- vinnu við Laugarneskirkju, Laugalækjarskóla, innflytj' endadeild Austurbæjarskóla, Alþjóðahúsið, prest innflytj- enda, félagsmiðstöðina Þróttheima o.fl. Flópurinn hefur það að markmiði að vinna gegn for- dómum og efla virðingu milli unglinga af ólíkum uppruna. Unglingunum gefst tækifæri á að að vera saman á sínum eigin forsendum þar sem þau geta tjáð sig um sitt líf og sína menningu. Markmiðið er að þau kynnist og eigi möguleika á að sjá það sem sameinar þau og jafnframt að bera virð- ingu fyrir því sem er ólíkt. Þau sem taka þátt í verkefninu eru unglingar úr innflytj- endadeild Austurbæjarskóla, sem hingað eru komin frá ýmsum löndum heims, og unglingar úr 9. og 10. bekk Laugalækj arskóla. Fjölmenningarkvöldin eru bæði til skemmtunar og fræðslu, enda er það samdóma álit þeirra sem reynslu hafa af starfi með innflytjendum hér á íslandi og víðar að fræðsla sé veigamikill þáttur bæði í forvörnum og til að vinna á þeim fordómum sem þegar hafa fest rætur. Þess vegna mun annað kvöldið verða helgað fræðslu en hitt skemmtun. Fræðslan verður að mestu í höndum unglinganna sjálfra, þar sem sú sköpunargleði og kraftur sem í þeim býr fær að njóta sín enda eru þau sjálf besta heimildarfólkið um eigin áhugasvið. Form fræðslunnar verður því fjölbreytt og helgast af þeirra eigin reynsluheimi. Eftir því sem að- stæður leyfa verður leitað eftir stuðningi utanaðkomandi fólks sem hefur reynslu af því að fræða unglinga í þessum aðstæðum. Fimmtudagskvöldið 21. febrúar munum við vinna að fræðslu með aðstoð myndasagna. Við höfum fengið til liðs við okkur Búa Kristjánsson teiknara sem hefur í samvinnu við Jean A. Posocco undirbúið fræðsluefni kvöldsins og munu þeir leiða okkur inn í heim myndasögunnar, en það má með réttu segja að það myndmál og sá heimur sem þar er að finna henti einkar vel til að brúa það bil sem getur verið á milli fólks sem talar ólík tungumál. Sömuleiðis reynir vinnsla af þessu tagi á tjáningu ólíkra tilfinninga og er farvegur fyrir ólíka reynslu. Hitt kvöldið í mánuðinum verður skemmtikvöld þar sem verður „tsjillað" eins og sagt er. Bryddað verður upp á ýmsu til skemmtunar, möguleikarnir eru óþrjótandi, „the sky is the limit“. Að auki verður síðan boðið upp á tvö ferðalög fram til vors. Fyrst verður farið á fjölþjóðahelgi í Vatnaskógi 8.-10. mars og í maí verður farið í „Adrenalíh' ferð“ þar sem reynir á styrk, þor, samvinnu og létta lund. Eygló Bjarnadóttir, verkefnisstjóri I Sýningu í Þjóðmenningar- húsinu lýkur í vor Sýningin var opnuð 17. júní árið 2000 og fjallar hún á áhrifarlkan hátt um áhrif kristni á íslenskt þjóðlíf í þús- und ár. Kristnihátíðarnefnd, Þjóðskjalasafn og Þjóð- menningarhúsið höfðu samstarf um þetta viðamikla verkefni. Sýningin er tvíþætt: Annars vegar er minnst atburðarins er íslendingar lögbundu kristna trú á Al- þingi árið 1000 og gætt að fýrstu áhrifum kristni á líf fólksins f landinu fram til þess er varðveittar heimildir komu til skjala. Hins vegar er stiklað á stóru í þúsund ára kristnisögu íslendinga eins og hún hefur varðveist í skjölum og heimildum og er reynt að bregða Ijósi á þau áhrif sem kristin trú hafði á íslenskt þjóðlíf í gegn- um aldirnar. Þar er meðal annars bent á að kirkjunni fylgdi lestrarkunnátta og ritlist og að kirkjan varð fyrst til að varðveita skjöl með skipulögðum hætti. Hugað er að ýmsum þáttum, s.s. menningu og list- um, trúarlífi og helgihaldi, eftirlitshlutverki kirkjunnar með lífi og framferði þjóðarinnar frá vöggu til grafar, fjallað er um kaþólsku kirkjuna og siðaskiptin árið 1550 og um lútherska tímann allt til okkar daga. Brugðið er upp svipmyndum af mönnum og atburð- um úr sögunni með einföldum sviðsetningum, búning- um og munum, svo og ríkulegu myndefni af ýmsu efni sem kemur við sögu kristni og kirkju á Islandi í þúsund ár. Sýningin er ógleymanleg öllum þeim sem sjá hana og hvetur Víðförli lesendur sína til að láta hana ekki framhjá sér fara. Hún hentar bæði börnum og fullorðn- um! 1000 ár Kristn

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.