Víðförli - 01.11.2005, Síða 2
2
VÍÐFÖRLI
24. ÁRG. 3. TBL.
Helgihald heimilanna á aðventu
Aðventan eða jóla-
fastan er í hugum
okkar undirbúnings-
tími fyrir jólahátíðina.
Mikill tími fer í hinn
ytri undirbúning fyrir
hið ytra jólahald. Ekki
þarf að segja lesend-
um þessa pistils að
einnig sé nauðsyn-
legt að undirbúa hið
innra jólahald, og þar
með að búa sig undir
að mæta kjarna há-
tíðarinnar í heilagri messu á jólum. Helgihaldið í kirkjunni
lifir og nærist af helgihaldi heimilisins.
Helgihald heimilanna er hinsvegar víðast hvar bundið
við bænastund við barnarúm. Þegar barnið stækkar er
hætta á að þessar stundir hverfi einnig.
Aðventan er góður tími til að hefja aftur bænahald á
heimilinu, eða til þess að auka við þær bænastundir sem
fyrir eru. Hér fylgja því nokkrar ábendingar um það hvernig
þessu helgihaldi gæti verið háttað.
Tilefni og tækifæri til helgistunda á aöventu:
Á jólaföstunni eru einkum tvö atriði tengd þeim tíma sér-
staklega sem sjálfsagt er að tengja bænahaldi heimilanna.
Þetta eru aðventukransinn, og söfnun Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Þar sem enn eru börn á heimilinu getur helgihaldið
á aðventunni verið tvíþætt: Kvöldbænin við rúmið og
bænagjörð við aðventukransinn. Sjálfsagt er að vanda sér-
staklega til kvöldbænarinnar og tengja hana einnig að-
ventunni: Dvelja örlitlu lengur við rúm eða vöggu, kveikja á
kerti við rúmið meðan kvöldbænirnar eru lesnar.
Ef lesin er (eða sögð) saga fyrir svefninn þá gerum við
þann mun á að kveikja ekki á kertinu fyrr en kemur að
bænastundinni.
Auk þess að minnast fjölskyldunnar, ættingja og vina,
sjúkra og einmana og þurfandi, takið þá áhersluefni
söfnunar Hjálparstarfsins og gerið þau að fyrirbænarefni.
Aðventukransinn gefur sérstakt tilefni til helgihalds, - og
þótt hann væri ekki, er hægt að kveikja á kerti á sunnu-
dögum aðventunnar og hafa stutta helgistund. Þar sem
börn eru á heimilinu, veljið þá stundina vandlega, og haldið
ykkur við sömu stund alla sunnudagana. Reynið ekki að
skapa spennu á milli helgistundarinnar og sjónvarpsefnis.
Veljið stund þegar hvort sem er er slökkt á sjónvarpinu.
Hugsanlegt er að tengja hana aðalmáltíð dagsins.
Tillögur að helgihald á aðventu er að finna undir
kirkjustarf á vefnum www.kirkjan.is og í Bænabók eftir Karl
Sigurbjörnsson biskup sem Skálholtsútgáfan gaf út 1992.
Kristján Valur Ingólfsson
Menningardagur í kirkjum
á Suðurnesjum
Árviss menningardagur í kirkjum á Suðurnesjum var hald-
inn 23. október og sóttu um 1200 manns atburðina í átta
kirkjum Suðurnesjamanna. Dagskráin var mjög fjölbreytt
og var víðast fullt út úr dyrum.
Megas fyllti Hvalsneskirkju upp í rjáfur þegar hann söng
til séra Hallgríms Péturssonar Passíusálmana og fleiri lög
sín sem tengjast kveðskap Hallgríms. Syðri-ár flokkurinn
spilaði með Megasi og var hreint frábær stemming á þess-
um tónleikum. Séra Gunnar Kristjánsson flutti mjög gott
erindi um Hallgrím áður en tónleikarnir byrjuðu.
Karlakór Keflavíkur söng rammíslensk sjómannalög eins
og Stjána Bláa í Útskálum fyrir troðfullri kirkju en þar hélt
prófessor Gísli Gunnarsson erindi um sjómenn „Feigum
verður forðað.“
Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar sungu í Ytri Njarð-
víkurkirkju og er það ekki í fyrsta sinn sem Guðrún syngur
lögin hennar Ellýjar Vilhjálms en með henni söng Friðrik
Ómar lögin hans Vilhjálms og voru um 300 manns í kirkjunni.
Barnakór Akurskóla í Innri-Njarðvík söng sig inn í hjörtu
kirkjugesta í kirkjunni í Innri-Njarðvík en þar var einnig
fyrirlestur Guðmundar Inga Leifssonar skólastjóra um fyrrum
rektor Skálholtsskóla Jón Þorkelsson en hann ánafnaði
íslenskum börnum eftir sinn dag milli 200-300 milljónum
króna á núvirði.
Á fyrirlestri í Kirkjuvogskirkju um landnám á Reykjanesi
kom fram að sennilega hefur Reykjanesið verið numið um
871 ef miðað er við kolefnisrannsókn sem tekin hafa verið
úr grunni húsarústa sem hafa verið grafin upp í Höfnum.
Dagskrá um Sigvalda Kaldalóns fyllti kirkjuna í Grinda-
vík og var þar mjög fjölbreytt dagskrá flutt af grindvískum
listamönnum. í Keflavíkurkirkju flutti Hákon Leifsson erindi
um kórtónlist á íslandi.
Töluverður hópur fólks fór í fleiri en eina kirkju og mátti
sjá andlit sem voru í öllum kirkjunum átta. Þetta kirkjurallí
stóð frá kl. 10 um morguninn og endaði í Grindavík nú sem
fyrr þar sem Kristján Pálsson formaður undirbúnings-
nefndar sleit menningardeginum þegar klukkan var gengin
í 10 um kvöldið.
Kristján Pálsson