Víðförli - 01.11.2005, Side 3

Víðförli - 01.11.2005, Side 3
NÓVEMBER 2005 V í Ð F Ö R L I 3 Frá Hjálparstarfinu: Gengur eitthvað á? Það er víst áreiðanlegt að það gengur mikið á þessar vik- urnar. Söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar er nýlokið og Eþíóparnir sem heimsóttu þau að tygja sig til heimferðar. Ekki var annað hægt en að gera átak í söfnunarmálum fyrir Pakistan. í viku auglýstum við grimmt söfnunarnúmerið 907 2002. Keppt er við tímann og við verðum að gera betur. Við erum í góðri aðstöðu til að koma fjármunum til skila. Hjálparstarf norsku kirkjunnar hefur starfað í 20 ár í Pakistan og World Church Service hefur verið það við þróunar- og hjálparstörf frá 1947. Öll erum við aðilar að ACT - Alþjóðaneyðarhjálp kirkna, og þannig búum við yfir allri þeirri reynslu og þekkingu sem nauð- synleg er til að koma fólki í neyð til hjálpar. Söfnunarféð fer óskert og rakleitt á áfangastað, SPRON sýndi stuðning í verki og borgaði allar auglýsingar. Og svo koma jólin. Glitrandi vatn Það er núna sem þú kemst að því hvort þú ert fastheldinn á gamalt, kannski frekar nægjusamur, opinn fyrir nýjungum eða spennufíkill. Með gíróseðlinum um mánaðamótin kemur ekki baukur eins og síðan þú líklega manst eftir þér, heldur..glitrandi vatnsdropi! Þessi jól söfnum við fyrir vatni í Afríku. Dropann er upplagt að hengja í gluggann eða á jólatréð og láta hann minna sig á allt það góða sem við njótum hér - og allt það góða sem við getum veitt öðrum. Sá sem greiðir jólagíróseðilinn frá kirkjunni getur eignast 1/50 hlut í brunni sem getur dugað allt að 1000 manns í áratugi. Já, það þarf ekki nema u.þ.b. 50 manns til að kostaeinn brunn. Og þar með betri heilsu, meiri starfsorku, nanum Afrlku vantar vatn Skrúfum frá Söfnunarféð rennur til þeirra Það er vlða nóg til af vatni I Afrftu - vandinn er að ná þvl. I Afrftu gufar vatn fljðtt upp af yfirborðinu eða slgur ofan I þurran ^rðvegna En þegar grafið er i jarðlögin og komið nAjr að grunnvatn sprettur fram hremt og gott vata Svona brunnur er um metri i þvetmál, stundwn rugir metra að djpt og fóðraður steyptum Imngum Dæfa knýr vatnið upp á yfrtorðið. Steypt k* og girðing í knng kemur f veg fyrir að óhreiniiKfi og bakterfur meng vatnið. Hjálparstarf yliy kirkjunnar tíma til að fara í skóla, til að sinna börnum og búi og betri afkoma. Hefði Winston Churchill lifað hefði hann e.t.v. geta endurtekið sín fleygu ummæli úr heimsstyrkjöldinni, að aldrei fyrr hefðu jafn margir átt jafn fáum, jafn mikið að þakka. Vatn er lífsnauðsynlegt. Það er auk þess sjaldan hægt að fá jafn verðmæta jólagjöf á jafn góðu verði. Kirkj- urnar fá áfram bauka í barnastarfið og öllum sem vilja send- um við bauk. Það skiptir máli að minna á söfnunina Hvettu vini þína til að slá saman í brunn með þér. Prestar, hvetjið kirkjugesti allan desember til að taka þátt í jólasöfnuninni. Það munar gríðarlega miklu að kirkjufólk sameinist um sitt hjálparstarf. Það skilar sér, ber árangur, gleður og gefur von. Það er treyst á okkur hér. Leggjum okkar af mörkum til þess að jólasöfnunin gangi vel. Anna M. Þ. Ólafsdóttir Samkirkjuleg bænavika 2006 Alþjóðleg, samkirkjuleg bænavika verður haldin dagana 22. - 29 janúar 2006. Bænavikan er haldin árlega um þetta leyti og er þá beðið fyrir einingu kristinna manna um heim allan. Það er Alkirkjuráðið (World Council of Churches) sem stendur að baki vikunnar um allan heim ásamt kaþólsku kirkjunni og bænarefni vikunnar kemur jafnan frá einhverjum aðildarkirkna. Að þessu sinni kemur það frá írlandi og var samið af fulltrúum frá rétttrúnaðarkirkju, lútherskri kirkju, presbyterian kirkju, meþódistakirkju, anglikönsku kirkjunni og kaþólsku kirkjunni. Yfirskrift vikunnar er „Hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra“. Hægt verður að nálgast alla ritningarlestra og stuttar hugleiðingar á vef þjóðkirkjunnar, www.kirkjan.is, í janúar 2006. Bænavikan hefur verið haldin árlega hér á landi frá árinu 1968. Undirbúningur bænavikunnar hérlendis er í höndum samstarfsnefndar kristinna trúfélaga. Aðild að nefndinni eiga: Aðventistar, Fríkirkjan Vegurinn, Hvíta- sunnukirkjan, Hjálpræðisherinn, (slenska Kristkirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan. Bænavikan hefst með útvarpsguðsþjónustu þann 22. janúar. Þá viku verða haldnar bænastundir og sam- komur bæði á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land, þar sem trúfélög sameinast um helgihald. Verður bæði um að ræða hádegisbænir og kvöldsamkomur. Dag- skráin verður kynnt í fjölmiðlum og á www.kirkjan.is

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.