Víðförli - 01.11.2005, Qupperneq 4

Víðförli - 01.11.2005, Qupperneq 4
4 24. ÁRG. 3. TBL. VÍÐFÖRLI Fer ekki örugglega einhver fullorðinn með ykkur? Hvernig er að hverfa úr asa Kirkjudaga og öflugu æsku- lýðsstarfi höfuðborgarsvæðisins í sveitakyrrð á Barða- strönd? Hvernig líður ungum, nývígðum presti þegarfyrstu jólin nálgast. Sjöfn Þór var vígð í september til Reykhóla- prestakalls. Við fengum hana til að deila með okkur hugs- unum sínum. Stór ákvörðun Það var nokkuð stór ákvörðun að sækja um brauð úti á landi. Á meðan ég var í guðfræðideildinni hafði ég alltaf ætlað mér að verða prestur þar sem mín væri þörf en þegar ég hóf störf sem fræðslufulltrúi hjá Kjalarness- prófastsdæmi að námi loknu breyttust hugmyndirnar talsvert. Ég var í stjórn Ecumenical Youth Council in Europe sem breytti líka áhugasviði mínu töluvert. Hugurinn var farinn að stefna til útlanda, jafnvel til frekara náms. Ég vann mikið við æskulýðsmál og fannst þau skemmtileg blanda með evrópska samkirkjustarfinu. Þegar Reykhólar voru svo auglýstir vöknuðu blendnar tilfinningar hjá mér. Mig langaði til þess að fást við prest- starfið í heild sinni og ég sá líka fyrir mér margar jákvæðar breytingar fyrir litla fjölskyldu. Það er yndislegt að búa á Reykhólum. Ég vissi svo sem alveg að hverju ég gekk, ég er alin upp úti á landi og hef alltaf kunnað betur við taktinn á landsbyggðinni. Mér bregður stundum við þegar ég er á síðasta snúningi með eitthvað að geta ekki bara farið og reddað því strax með því að skjótast í búð og ég sakna svolítið félagsskaparins við leiðtogana sem ég starfaði mikið og náið með. Kostirnir við að búa hér eru þó vafalítið mun fleiri en að búa á höfuð- borgarsvæðinu. Ég hef greiðan aðgang að börnum og foreldrum þeirra í gegn um skólann og hið daglega líf. Nándin við sóknarbörnin er mikil og það kann ég afar vel við. Fólkið í sókninni er einnig greiðasamt og hjálplegt og hefur jákvætt viðmót. Auðvitað spilar líka inn í að ég hef gott húsnæði og get unnið mikið heima. Fimm hópar í viku í barna- og æskulýðsstarfi Það sem ég hef einna helst verið að einbeita mér að síðan ég kom hingað er að koma barna- og æskulýðsstarfi og starfi fyrir eldri borgara í gang. Eftir áramótin stefni ég svo á að setja af stað námskeið fyrir fullorðna. Enginn organisti er í prestakallinu og gerir það starfið ögn erfiðara en fólk hefur tekið því vel að ég sé bara með gítarinn með mér. En það hefur komið mér á óvart hversu vel fólk tekur hug- myndum mínum og þeim breytingum sem ég hef stungið upp á. Barna og æskulýðsstarfið gengur vonum framar. Oftar en ekki er full mæting hjá mér í allt starf, en ég er með fimm hópa í viku. Það þýðir að ég næ til allra barna í sókninni í hverri einustu viku og ég er mjög ánægð með það. Það er Sjöfn t.h. og undirbúningshópur fyrir Kirkjudaga íjúní 2005 svolítill munur að þekkja börnin betur en bara með nafni, það er gott að vita hvar þau eiga heima og hverjir foreldrar þeirra eru því þá get ég haft samband beint við foreldrana ef eitthvað á að gera sem er óvenjulegt. Jólaundirbúningurinn er kominn á fullt. Það er að mörgu að huga þegar sinna þarf sjö sóknum og ég býst við því að ég verði frekar upptekin yfir jólin, en það verður bara gaman. Fer ekki einhver fullorðinn með ykkur? Það er skemmtilegt að segja frá því að lokum að það er ekki alltaf heppilegt að líta út fyrir að vera yngri en maður er. Ég er svo sem ekkert gömul en um daginn var ég á dvalarheimilinu að segja frá því að ég væri á leiðinni á Landsmót æskulýðsfélaga. Fólkinu fannst þetta merkilegt og ég sagði þeim frá því að það væri von á meira en 300 unglingum og að ég ætlaði að fara með 15 unglinga með mér. Þá sagði einn dvalarheimilismannanna: „Fer ekki örugglega einhver fullorðinn með ykkur?“ Ég tók þessu nú ekkert illa og gat alveg hlegið að þessu en hef sannarlega reynt að verða fullorðinslegri þó ekki nema væri í klæða- burði á dvalarheimilinu. Þegar öllu er á botninn hvolft þá líður mér vel hérna í sveitinni. Hér er meira en nóg að starfa og hér er gott að vera.

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.