Víðförli - 01.11.2005, Side 5
NÓVEMBER 2005
VÍÐFÖRLI
5
Yfir 320 manns á Landsmóti
Yfir 320 manns tóku þátt í landsmóti æskulýðsfélaga sem
haldið var á Akureyri 14. — 16. október. Mótið var meðal
fjölmennustu landsmóta frá upphafi. Þátttakendur komu
frá 22 æskulýðsfélögum og voru kirkjunum sínum og
sjálfum sér til mikils sóma. Yfirskrift mótsins var ,,í örmum
Guðs”.
Mótið hófst seint á föstudagskvöldi með mótssetningu,
helgistund og kvöldvöku, auk þess sem boðið var upp á
lofgjörðarstund I Glerárkirkju. Dagskrá laugardagsins hófst
með fræðslustund í Glerárkirkju þar sem lögð var rík
áhersla á virka þátttöku unglinganna allra. Þannig kynntust
þátttakendur nokkrum persónum Biblíunnar sem fólki í
örmum Guðs og svöruðu þeirri spurningu í samvinnu og
samræðu við aðra þátttakendur hvort og þá hvernig þau
líktust eða vildu líkjast þeim. Einnig var unnið með sýning-
una „Kristur um víða veröld” og þeirri spurningu velt upp
hvaða mynd sýndi best það að vera í örmum Guðs.
Að hádegisverði loknum var boðið upp á fjölbreytt
hópastarf þar sem hægt var að velja um gönguferðir, klifur,
kvikmyndasýningu, föndur, hárgreiðslu og biblíuspjall svo
eitthvað sé nefnt. Síðdegis var búningakeppni og ólympíu-
leikar landsmótsins en kvölddagskráin samanstóð af ferð á
skautasvellið, kvöldvöku og leynigesti sem reyndist vera
Jónsi úr í svörtum fötum. Mótinu lauk með guðsþjónustu í
Glerárkirkju fyrir hádegi á sunnudeginum þar sem sr.
Arnaldur Bárðarson og Rétur Björgvin Þorsteinsson djákni
leiddu helgihaldið með dyggum stuðningi unglingakórs
Glerárkirkju.
Undirbúningur mótsins var í höndum Ásdísar Björns-
dóttur, Ólafs Jóhanns Borgþórssonar og sr. Sólveigar Höllu
Kristjánsdóttur og voru þau Ólafur og sr. Sólveig Halla
einnig mótsstjórar. Af orðum leiðtoga og þátttakenda að
móti loknu má skilja að mikil ánægja ríkir með mótið,
aðstöðuna í Síðuskóla og Glerárkirkju, dagskrána og ekki
síst frammistöðu mótsstjóranna sem skiluðu hreint frábæru
starfi.
Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar er árlegur við-
burður þar sem að fræðslusvið Biskupsstofu býður kirkjum
landsins að senda unglinga úr starfi safnaðanna á mót
sjálfum sér til uppbygginginar en um leið virka mótin sem
mikil vitamínsprauta í starfið því að unglingarnir koma fullir
áhuga og hugmynda til baka.
Pétur Björgvin Þorsteinsson