Víðförli - 01.11.2005, Page 6

Víðförli - 01.11.2005, Page 6
6 24. ÁRG. 3. TBL. V ÐFORLI Yfirlýsing um vatn fyrir alla Undirrituö samtök vilja með sameiginlegri yfirlýsingu þessari vekja athygli ríkisstjórnar, sveitarstjórna, stofnana, fyrir- tækja og almennings á mikilvægi og sérstöðu vatns fyrir land, þjóð og lífríki. Þótt enginn vatnsskortur sé á íslandi þá er staðan önnur víðast hvar í heiminum. Gnótt vatns gefur því ekki tilefni til skeytingarleysis af okkar hálfu. Þvert á móti ber okkur að færa lagaumgjörð um vatn í þann búning að hún tryggi rétta forgangsröðun varðandi vatnsvernd og nýtingu og geti verið öðrum þjóðum til fyrirmyndar. Flugsa verður til framtíðar og hafa almannahagsmuni og náttúru- vernd að leiðarljósi. Vatn er takmörkuð auðlind og almannagæði sem er undir- staða alls lífs og heilbrigðis. Vatn er frábrugðið öðrum efnum að því leyti að það finnst náttúrulega í föstu, fljótandi og loftkenndu formi og er aldrei kyrrt á einum stað eða einu eignarlandi heldur á stöðugri hringrás um heiminn. Undirrituð samtök telja að aðgangur að vatni sé grund- vallarmannréttindi, eins og kveðið er á um í samþykktum Sameinuðu þjóðanna sem ísland hefur undirgengist. Sérhver maður á því rétt á aðgengi að hreinu drykkjarvatni og vatni til hreinlætis og heimilishalds. Líta ber á vatn sem félagsleg, menningarleg og vistfræði- leg gæði sem ekki má fara með eins og hverja aðra versl- unarvöru. Nýting vatns skal vera sjálfbær og aðgengi að því tryggt með lögum fyrir núlifandi kynslóð og kynslóðir framtíðar- innar. Það er skylda stjórnvalda að tryggja þegnum sínum þennan rétt án mismununar. Það er hlutverk stjórnvalda að tryggja verndun vatns sem náttúruverðmæta sem og að tryggja hollustu og dreif- ingu vatns til allra þjóðfélagsþegna með fjárfestingu í mann- virkjum og mengunarvörnum. Vatnsveitur verði því reknar á félagslegum grunni, taki mið af almannahagsmunum og tryggi rétt einstaklinga til nægilegs hreins vatns til drykkjar og hreinlætis á viðráðanlegu verði. Það er jafnframt hlut- verk stjórnvalda að tryggja að við nýtingu vatns verði öðrum náttúruverðmætum ekki spillt. Stjórnvöldum ber að tryggja almenningi aðgengi að öllum upplýsingum er varða verndun og nýtingu vatns og stuðla að aukinni virkni almennings og meðvitund um mikil- vægi vatns, náttúru og réttrar umgengni við landið. Vegna mikilvægis vatns fyrir íslenska þjóð og lífríki land- sins telja undirrituð samtök nauðsynlegt að fest verði í stjórnarskrá íslands ákvæði um skyldur og réttindi stjórn- valda og almennings hvað varðar réttindi, verndun og nýt- ingu vatns. Lög og reglugerðir um nýtingu vatns taki því mið af ákvæðum sem viðurkenna rétt einstaklinga til vatns sem og lögum er varða verndun vatns og náttúru. Til að tryggja skilvirka verndun og nýtingu vatns ber stjórnvöldum að skipuleggja stjórnsýslu þannig að eðlilegt jafnvægi sé á milli þessara þátta og réttar einstaklinga til aðgengis að vatni. BSRB, Kennarasamband íslands, Landvernd, MFÍK, Náttúruverndarsamtök íslands, SÍB, Þjóðkirkjan. Samþykkt á ráðstefnu um vatn, 29. október 2005 Kirkjugestum fjölgar í Reykjavík Undanfarin þrjú ár hefur verið gerð könnun á kirkjusókn í Reykjavíkurprófastsdæmum fyrstu vikuna í október. Talið hefur verið, hve margir mæta í helgihald og athafnir, barna og unglingastarf, tónlistastarf, fullorðinsfræðslu og ferðamenn. Nú liggja tölur fyrir með samanburði við síðastliðin tvö ár, og eru gröf kirkna í Reykjavíkurpró- fastsdæmi vestra aðgengileg á vefnum www.kirkjan.is/ vestra. Síðar koma þar inn tölur úr Reykjavíkurpró- fastsdæmi eystra. Aukning varð um 28% á fyrstu viku október í ár miðað við sömu viku í fyrra í báðum prófastsdæmum. Heildarfjöldi kirkjugesta í Reykjavík án ferðamanna var 25.013. Ferðamenn voru 4.541 og þar af 4.300 í Hallgrímskirkju. Fjöldinn í vestra var 12.772 en í eystra 12.241. Kennaraverkfallið í fyrra hafði greinileg áhrif á slakari mætingu, sérstaklega í barnastarfi kirknanna. Þrátt fyrir það er mæting í ár betri en bæði árin 2004 og 2003. Nývígðir prestar og djáknar Sunnudaginn 18. september vígði Jón Aðalsteinn Bald- vinsson vígslubiskup Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur guð- fræðing til prestsþjónustu við Akureyrarkirkju. Þann 26. september síðast liðinn var Sigurlín Huld fvars- dóttir guðfræðingur vígð sem djákni i ensku biskupakirkj- unni. Vígslan er ávöxtur þess samstarfs sem Porvoo samþykktin gerir mögulegt og fór fram í St Johns Notting Hill í London. Biskup íslands, Karl Sigurbjörnsson, predik- aði og annaðist vígslu ásamt biskupnum af London Hr Richard Chartres. Djáknavígslan er fyrsta skref til prests- vígslu í ensku biskupakirkjunni. Prestsvígsla fór fram í Skálholtsdómkirkju þann 9. októ- ber sl. Þá vígði sr. Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup, Birgi Thomsen, guðfræðing, sem hefur verið settur prestur að Sólheimum í Grímsnesi. Sunnudaginn 30. október kl. 16 vígði Karl Sigurbjörns- son, biskup íslands, Hólmgrím Elís Bragason, guðfræðing, sem ráðinn hefur verið héraðsprestur í Austfjarðaprófasts- dæmi.

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.