Víðförli - 01.11.2005, Síða 7

Víðförli - 01.11.2005, Síða 7
NÓVEMBER 2005 V í Ð F Ö R L I 7 Verndum bernskuna - og verum til staðar fyrir barnið Þjóðkirkjan gengst fyrir átaki undir yfirskriftinni Verndum bernskuna ásamt forsætisráðuneytinu, umboðsmanni barna, Heimili og skóla, og Velferðarsjóði barna. Tilgangur- inn er að styrkja foreldra og uppalendur í því verkefni að koma börnum til manns. Nú í haust kom út bæklingur með yfirskriftinni Verndum bernskuna sem dreift var inn á hvert heimili í landinu. Þar var að finna tíu heilræði um uppeldi. Bæklingurinn hefur síðan verið notaður til kynningar á verkefninu á ýmsum stöðum þar sem foreldrar og börn koma saman, m.a. í kirkjum landsins. Þannig hafa prestar verið hvattir til að nota þetta efni á fundum með foreldrum fermingarbarna, foreldrum sunnudagaskólabarna og á foreldramorgnum. Nú á aðventunni er áherslan á heilræðið _Verum til staðar fyrir barnið“. Við þekkjum öll annríkið sem einkennir komu jólanna. Stundum vill það gleymast á þessum tíma þegar við undirbúum komu jólabarnsins að vera okkar eigin börnum nær, að verja tímanum í skemmtilegar og uppbyggilegar stundir með þeim. Börnin þurfa mikinn tíma. Það er mikilvægt að við gefum okkur tíma til að njóta samvista við þau, taka eftir því sem þau eru að gera og deila með þeim gleði og sorgum. Fullorðið fólk gegnir mörgum ólíkum hlutverkum sem oft getur reynst erfitt að samræma. Tímaskortur og streita bitna oft á þeim sem síst skyldi, börnunum. Þess vegna er mikilvægt að forgangsraða í lífinu og ákveða hvað skiptir mestu máli. Þess vegna beinum við sjónum okkar að tímastjórnun núna í desember þegar við hugleiðum heilræðið Verum til staðar fyrir barnið. Tímastjórnun er þegar öllu er á botnin hvolft, spurning um að raða því fyrst sem við teljum mikilvægast í lífi okkar. Eru það börnin, eða er það vinnan og áhugamálin? Nánari upplýsingar um átakið Verndum bernskuna er að finna á vefslóðinni; http://verndumbernskuna.is/ Halldór Reynisson Nýr söngmálastjóri Kristján Valur Ingólfsson, verkefnisstjóri helgihalds, Hörður Áskelsson söngmálastjóri og Karl Sigurbjörnsson biskup gleðjast yfir fyrsta starfsdegi Harðar. Hörður Áskelsson organisti og kórstjóri Hallgrímskirkju í Reykjavík hóf störf á Biskupsstofu í október sem nýr söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar í hálfu starfi. Hlutverk söngmálastjóra er að hafa umsjón með kirkju- tónlistinni og framfylgja stefnu Þjóðkirkjunnar í kirkjutón- listarmálum, vera ráðgefandi um kirkjutónlistarmál við biskupsembættið og hafa umsjón með tónlistarstarfi safn- aðanna. Söngmálastjóri heyrir beint undir biskup íslands. Meðal verkefna nýs söngmálastjóra verða að hans sögn að auka fjölbreytni í messusöngvum og sálmasöng. Þá nefndi Hörður að efla þyrfti almennan safnaðarsöng og útgáfu á nýju efni fyrir kirkjukórana til að koma í staðinn fyrir fjögurra radda sálmasöng. Einnig mun hann huga sérstaklega að orgeltónlist, barnakórum og tengslum við barnastarf, svo og útgáfu á tónlistarefni með tilliti til markmiða tónlistarstefnu Þjóðkirkjunnar. Hörður Áskelsson hefur verið organisti Hallgrímskirkju frá árinu 1982. Sama ár stofnaði hann Listvinafélag og Mótettukór Hallgrímskirkju og setti á laggirnar Kirkjulista- hátíð og sumarkvöld við orgelið. Þá stofnaði Hörður kammer- kórinn Schola cantorum 1996. Hann hefur kennt orgelleik og kórstjórn við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og á árunum 1985-95 var hann lektor í litúrgískum söngfræðum við guð- fræðideild Háskóla íslands. Hann hefur hlotið fjöldamargar viðurkenningar fyrir störf sín að tónlistarmálum. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir Digital klassískt orgel til sölu Til sölu 38 radda digital klassískt orgel, 3ja borða með fullum pedal. Gerð: Johannus Opus 30. Hentar minni eða millistóru rými, eða sem æfingahljóðfæri fyrir orgelnema. Verð 700.000 eða tilboð. Upplýsingar í síma 898 2016.

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.