Víðförli - 01.11.2005, Blaðsíða 8

Víðförli - 01.11.2005, Blaðsíða 8
8 VÍÐFÖRLI 24. ÁRG. 3. TBL. Starf Leikmannnaskólans Nú standa yfir í Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar síðustu námskeið þessa hausts. Góð aðsókn hefur verið að skólanum og hafa um 100 manns sótt opin námskeið í Grensáskirkju og Breiðholtskirkju. Einnig hafa safnaðarnámskeið verið haldin víða um land og má telja að allt að 200 manns hafa sótt þau námskeið Leikmannaskólans. Þar hefur verið boðið upp á námskeið m.a. um bænabandið, störf í sóknarnefnd- um, störf meðhjálpara, námskeið um útfarasiði og hið kunna sjálfstyrkingarnámskeið „Konur eru konum bestar". í janúar hefst dagskráin með námskeiði um konur í Biblíunni sem dr. Arnfríður Guðmundsdóttir hefur um- sjón með en síðan fylgja í kjölfarið fjögur önnur nám- skeið. Við bendum á að námskeiðið, Fjölskyldan, trúin og heimilið verður haldið í febrrúar en það var áður á dagskrá í október. Námskeiðið tengist áherslu í stefnu- mótun kirkjunnar 2005-2006 á fjölskylduna og heimilið. Við hvetjum presta, starfsfólk safnaðanna og sóknar- nefndarfólk að hafa samband og nýta sér þau námskeið sem í boði eru á vegum skólans. Einnig má nálgast upplýsingar á vef skólans, kirkjan.is/leikmannaskoli Tilraun með valsöfnuði rædd á Norska kirkjuþinginu Norska kirkjuþingið hittist í nóvember og ræddi þann mögu- leika að leyfa stofnun safnaða innan kirkjunnar sem ekki eru landfræðilega afmarkaðir, það er að segja með land- fræðileg sóknarmörk. Sóknarmörk í Norsku kirkjunni eru landfræðileg líkt og í Þjóðkirkjunni. Þó eru undantekningar, kirkja heyrnarlausra er söfnuður innan Norsku kirkjunnar sem ekki hefur land- fræðileg sóknarmörk. Umræðan nú er liður í almennri endurskoðun innan Norsku kirkjunnar. Tillaga liggur fyrir um að gefa leyfi til tilraunasafnaða sem ekki hafi landfræðilega afmörkun. Skilyrði fyrir stofnun slíkra valsafnaða er að safnaðar- meðlimir séu skírðir, prestur safnaðarins sé vígður og söfnuðurinn lúti tilsjón biskups. Valsöfnuðurinn getur ekki farið fram á styrk til starfsins frá hefðbundnum sjóðum kirkjunnar en þó þarf að vera möguleiki að tengja hann við svæðisbundið kirkjustarf. Meðlimir í söfnuðinum skrá sig úr heimasöfnuði sínum og ganga í valsöfnuðinn, burtséð frá búsetu. Námskeið í Biblíubrúðugerð Námskeið í Biblíubrúðugerð var haldið í Munaðarnesi í október, væntanlega það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Þátttakendur voru aðeins þrír enda um tilrauna- keyrslu á námskeiðinu að ræða. Leiðbeinandi var Regina Þorsteinsson en hún er viðurkenndur ABF leiðbeinandi. Biblíubrúður eru spennandi leið til þess að auka myndræna túlkun Biblíunnar og stefnt er á fleiri námskeið á næstunni. Biblíubrúðurnar eru til í nokkrum stærðum en þær al- gengustu eru 28 sentimetra háar og standa á blýfótum. Beinagrind brúðunnar er sveigjanlegur þráður. Þráðurinn er klæddur „holdi“ og saumaður er fatnaður á brúöurnar í samræmi við klæðnað á tímum Biblíunnar. Þær gefa mögu- leika á öðruvísi nálgun á sögum Biblíunnar. Börn og full- orðnir upplifa sögur úr Biblíunni, sem sagðar eru með stuðn- ingi Biblíubrúðanna, á lifandi og persónulegan hátt. Þannig opnast áhorfendanum ný sýn á biblíutextann því að brúð- urnar gefa mjög vel til kynna viðbrögð sögupersónanna í túlkun fræðarans. Biblíubrúður Með rætur á miðöldum Hefðin á bak við Biblíubrúðurnar er orðin mjög löng. Þegar á miðöldum tíðkaðist það að í klaustrum voru búnar til litlar styttur sem stillt var upp í kirkjunum á jólunum og sýndu Maríu, Jósef, vitringana, hirðana og jafnvel fleiri við jötu Jesú- barnsins. Með tilkomu betri föndurefna færðist þessi siður svo inn á heimili víða í Evrópu. Allt frá upphafi nítjándu aldar hafa svo þróast sveigjan- legar brúður í stað styttnanna. En þær hafa umfram allt þann kost fram yfir stytturnar að hægt er að segja sögu með brúðunni, þ.e. setja hana í nýja stellingu fyrir hvert atriði sögunnar. Elsta félagið sem stofnað hafa verið til þess að halda faglega utan um gerð og notkun Biblíubrúð- anna er ABF sem er með aðsetur sitt í Suður-Þýskalandi. Hér er komið ný og spennandi leið fyrir presta, djákna, æskulýðsfulltrúa og annað starfsfólk safnaða til þess að auka fjölbreytni í boðunarstarfi. Um leið er það holl og góð upplifuna að föndra sína eigin biblíubrúðu.

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.