Víðförli - 01.11.2005, Síða 9
NÓVEMBER 2005
VÍÐFÖRLI
9
Viðurkenning fyrir
djáknastarf
Djáknunum Unni Halldórsdóttur og Ragnheiði Sverrisdóttur
hefur verið veitt verðlaun fyrir að stuðla að eflingu kæleiks-
þjónustu í íslensku þjóðkirkjunni. Kærleiksþjónusta kirkj-
unnar er skilgreind sem umhyggja fyrir náunganum grund-
völluð á kærleika Krists sem er tjáð í lífi og starfi kirkjunnar.
Það er stofnunin Diakonistiftelsen Samariterhemmet í
Uppsölum í Svíþjóð sem veitti þeim þessa viðurkenningu
en þær stunduðu báðar djáknanám við þessa stofnun.
Unnur útskrifaðist þaðan 1965 og tók djáknavígslu til Hall-
grímskirkju sama ár. Ragnheiður lauk djáknanáminu 1980
og vígðist til starfa í Gottsundasöfnuði í Uppsölum en hefur
starfað hér á landi frá 1986.
Diakonistiftelsen veitir árlega „hönnorsstipendium",
heiðursverðlaun, til einhvers djákna sem þykir hafa skarað
frammúr í starfi sínu sem djákni. Þær Unnur og Ragnheiður
hlutu þau fyrir að hafa haft frumkvæði að því að íslenska
þjóðkirkjan hóf að kanna möguleika til djáknanáms á
Islandi árið 1991 en innan kirkjunnar hafði um langt skeið
verið áhugi á að efla kærleiksþjónustu hennar. Guð-
fræðideild Háskóla íslands tók upp nám í djáknafræðum
1993 og hafa um 80 manns lokið því.
í dag eru 23 djáknar að störfum í samtals 19 stöðu-
gildum á íslandi. Frá 1960 hafa 30 djáknar tekið vígslu.
Mun fleiri hafa lokið djáknanámi frá Háskóla íslands sem
gjarnan vilja vinna sem djáknar. Þó hafa nokkur tekið
námið sem símenntun til að efla sig í störfum sínum eins
og t.d. hjúkrunarfræðingar og kennarar. Djáknar hafa farið
til starfa í söfnuðum, á stofnunum og í félagasamtökum.
Sjá nánar á vef Djáknafélags íslands, www.kirkjan.is/di
Sænska kirkjan
semur form fyrir
staðfesta samvist
Sænska kirkjan samþykkti í dag að semja form fyrir bless-
unarathöfn staðfestrar samvistar fyrir samkynhneigða.
Þetta var samþykkt á kirkjuþinginu með tveimur þriðju
atkvæða. Allir biskupar kirkjunnar studdu málið.
Rrestar kirkjunnar hafa blessað staðfesta samvist sam-
kynhneigðra en ályktunin í dag snérist um að útbúið
verði form fyrir slíka blessun og sett í handbók kirkj-
unnar. Kaflinn um hjónavígslur mun því hér eftir fá yfir-
skriftina Vígslur og blessunarathafnir.
Þá var samþykkt að kirkjunni bæri að vinna gegn því
að samkynhneigðu fólki væri mismunað.
Andstæðingar ályktunarinnar færðu rök fyrir því að
þetta væri í andstöðu við Biblíuna og stefndi í hættu
samkirkjulegu samstarfi kirkjunnar.
Biskup vísiterar
í Húnaþingi
Biskup fslands, Karl Sigurbjörnsson, vísiteraði Húna-
þing á haustmánuðum. Fyrri hluti vísitasíunnar var 8.-
12. september og síðari hlutinn dagana 2. - 9. okóber.
Með biskupi í för voru eiginkona hans, Kristín Guð-
jónsdóttir og Guðni Þór Ólafsson prófastur í Húna-
vatnspróf astsdæm i.
í yfirreið biskups yfir prófastsdæmi, visitasíum, fer
hann í allar kirkjur svæðisins og ræðir við sóknar-
nefndinar. Einnig er lögð áhersla á að heimsækja skóla
og sjúkrastofnanir og ræða við fólk á staðnum. Dag-
skráin er því þétt skipuð.
í þessari vísitasíu biskup skoðaði biskup um 30
kirkjur, tók þátt í fjölda helgistunda og guðsþjónusta,
heimsótti átta skóla og þrjár sjúkrastofnanir og dvalar-
heimili. Mikilvægur þáttur í visitasíu er að ræða við
sóknarnefndafólk prófastsdæmisins og átti biskup
fjölda funda með þeim. Þá hélt hann kyrrðardag með
prestum prófastsdæmisins að Melstað þann 18.
nóvember.
Bloggað um biskupsheimsókn
Grunnskóli Hvammstanga var einn þeirra skóla sem
biskup heimsótti. f grunnskólanum sungu börnin fyrir
biskup en þar er venja að syngja morgunsöng. Biskup
spjaliaði síðan við börnin og birtist af því lítil saga á
bloggsíðunni Börnin á Bessó, sem fjallar um börnin á
Bessastöðum ( Húnaþingi vestra.
Biskup íslands hefur verið í „vísitasíu" hér í sveit
og bæ undanfarið. Nú í vikunni kom hann við í
Grunnskólanum á Hvammstanga. Þar sungu öll
börnin fyrir biskupinn og svo ræddi hann við þau
öll í dálitla stund. Hann spurði þau meðal annars
hvort þau þekktu Gullnu regluna. Helga Rún hélt
það nú og greindi biskup frá því hver hún væri.
Hann hrósaði henni fyrir og lagði út af reglunni og
spurði svo hvort þau vissu hver hefði kennt þeim
Guilnu regluna. Eitthvað vafðist það fyrir þeim,
nema Magnúsi sem sagði: „Helga systir mín“. Það
var kannski ekki alveg lærifaðirinn sem biskupinn
var að fiska eftir. Hann ræddi ýmislegt fleira við
hópinn. Þar á meðal hvort þau biðu ekki bænirnar
sínar áður en þau færu að sofa á kvöldin. Jú, flest
gerðu það, nema að Magnús sagði: „Ja, ég kann
engar bænir“. Þá sagði biskupinn: „Biddu þá
Helgu systir þína að kenna þér“.