Víðförli - 01.11.2005, Side 10
10
VÍÐFÖRLI
24. ÁRG. 3. TBL.
Biskupsvígsla í Kenýja
Fjöldi manns fylgdist með vígslunni
Sr. Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, tók þátt
í biskupsvígslu í Pókot héraði í Kenýja sunnudaginn 18.
september s.l. William Lopeta, sem vígðist til biskups, á trú
sína að þakka íslensku kristniboði í Kenýja og hefur komið
hingað til lands á vegum kristniboðsins.
íslendingar hófu kristniboð í Kenýja árið 1978 og hafa
starfað þar síðan, mestmegnis í Pókothéraði í Norðvestur-
hluta landsins. Mikill vöxtur er í kirkjunni þar og hafa nýir
söfnuðir sprottið upp mjög víða. (slenska kristniboðið er
unnið í samstarfi við Lúthersku kirkjuna í Kenýju sem telur
55 þúsund manns. William Lopeta kemur úr söfnuði sem
Ragnar Gunnarsson kristniboði stofnaði með heimmönn-
um árið 1991 í Lain, sem var hluti af starfssvæði íslenska
kristniboðsins í Chepareria. Það er því óhætt að segja að
William Lopeta tengist íslensku kristniboði sterkum bönd-
um. Hann hlaut menntun síðan í fræðslumiðstöð kirkjunnar
í Kapenguria í Pókot héraði og síðan í prestaskóla kirkj-
unnar í Matongo í SV hluta landsins.
Auk þess að vera vígsluvottur, predikaði sr. Sigurður við
biskupsvígsluna. Fleiri íslendingar voru viðstaddir vígsluna,
sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, Jónas Þ. Þóris-
son, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar og formaður
Sambands íslenska kristniboðsfélaga, Skúli Svavarsson,
kristniboði sem er ásamt konu sinni Kjellrun Langdal á ný
Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup setur
biskupsmýtuna á höfuð William Lopeda