Víðförli - 01.11.2005, Qupperneq 11

Víðförli - 01.11.2005, Qupperneq 11
NÓVEMBER 2005 VÍÐFÖRLI 11 að störfum á gömlum slóðum í Pókot héraði og Kristín Bjarnadóttir, kristniboði sem starfar við skóla norska kristni- boðsins í Nairobi í Kenýja. Ferðafélagarnir þrír frá íslandi dvöldu í norska kristniboðsskólanum áður en haldið var til Pókots héraðs, en þar dvöldu þeir hjá þeim hjónum Skúla og Kjellrun við gott atlæti. Kristín Bjarnadóttir var leiðsögumaður í ferðinni þangað upp i fjallasvæðið en þangað er dagsferð í vesturátt frá Nairobi, yfir stórbrotið landslag Kenýja. Sr. Sigurður sneri heim að lokinni biskupsvígslu en Þor- valdur og Jónas héldu áfram för sinni til Úganda til að huga að og kynnast af eigin raun því starfi er Hjálparstarf kirkj- unnar hefur stutt þar. Starfið er einkum í þágu fjölskyldna alnæmissmitaðra og ekki síst munaðarlausra barna. Því er stýrt af skrifstofu Lúterska heimssambandsins í höfuðborg- inni Kampala Börnin hafa misst foreldra sína vegna þessa skæða sjúkdóms er liggur sem dökkur skuggi yfir þessu frjósama landi og því góða fólki sem þar býr. Þorvaldur Karl Helgason Hlnn nývígðri biskup. Trú og trúariðkun auðgar samfélagið en ógnar ekki Höfuðbiskupar Lúthersku þjóðkirknanna á Norðurlöndum, lútherskra kirkna í Eystrasaltslöndunum og anglíkanskra kirkna í Englandi, Skotlandi, Wales og á írlandi hittust í Þrándheimi þann 11. október síðastliðinn. Þessar kirkjur eru aðilar eða áheyrnaraðilar að samkomulagi sem kallað er Porvoo samfélagið og er markmið þess að efla einingu þessara kirkna með samstarfi og viðurkenningu á em- bættum og sakramentum. í kveðju biskupanna til kirkna sinna segir meðal annars: „Kirkjurnar starfa í Evrópu á tímum mikilla breytinga. Einingarferli álfunnar er áskorun sem leiðtogar hennar þurfa að takast á við af hugrekki og vilja til að haida fast við sameiginleg grunngildi okkar um mannréttindi og frelsi. Við teljum að trú og trúariðkun sé ekki ógn heldur auðgi hún opinbert líf þjóða okkar og álfunnar allrar. Það er hlutverk okkar allra að bera vitni frelsi fagnaðar- erindisins, virðingu hverrar einstakrar manneskju og leggja okkar af mörkum til þessa að bæta líf allra íbúa álfu okkar. Mengun hefur alvarlega skaðað jörðina okkar og mis- skipting auðs er mikil í heiminum. Við skuldbindum okkur til að biðja fyrir og vinna að ábyrgri ráðsmennsku yfir sköpun Guðs. Við sem búum umhverfis höfin í Norður Evrópu ber- um fyrir brjósti lífið í þessum höfum sem eru uppspretta fæðu fyrir okkur öll. Hér á fundinum í Þrándheimi deilum við með þeim íbú- um lands okkar sem eru af asískum uppruna, þeirri sorg og ótta sem hamfarir jarðskjálfta í Asíu hefur valdið. Við biðjum fyrir fórnarlömbunum, fjölskyldum þeirra og hjálparstarfs- fólki. Neyðarhjálp frá öðrum löndum verður að vera nægi- leg og áreiðanleg." Biskupar Porvoo kirknanna á fundi í Þrándheimi, 11. október 2005. Fremri röð frá vinstri: Bruce Cameron, höfuðbiskup skosku biskupakirkjunnar, Jukka Parma, erkibiskup í Finnlandi, Ftowan Williams,erkibiskup af Kantaraborg, Englandi; Barry Morgan, erkibiskup f Wales, John Neill, Erkibiskup, írlandi. Aftari röð frá vinstri: Andres Pöder, erkibiskup í Eistlandi, Janis Vanacs, erkibiskup í Lettlandi, Finn Wagle, höfuðbiskup í Noregi, KG Hammar, erkibiskup í Svíþjóð, Mindaugas Sabutis, erkibiskup í Litáen, Karl Sigurbjörnsson, biskup íslands, Erik Norman Svendsen, biskup í Kaupmannahöfn. Á næsta ári eru tíu ár frá undirritun Porvoo samningsins og verður þess minnst með ýmsum hætti. Kirkjuleiðtogar munu koma saman í Wales í mars og meðal annars skoða hvernig kirkjurnar geta sameiginlega unnið að bættri leikmannaþjálfun, eflingu trúariðkunar og Biblíuþekkingar.

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.