Víðförli - 01.11.2005, Síða 14
14
VÍÐFÖRLI
24. ÁRG. 3. TBL.
Vinna gegn fordómum í Evrópu
35. aðalfundur Samkirkjulegra æskulýðssamtaka í Evrópu
(Ecumenical Youth Council of Europe, EYCE) var haldinn í
Turku í Finnlandi dagana 24.-30. október. ÆSKR á aðild að
þessum samtökum síðan 1993 og hefur tekið virkan þátt í
starfi þeirra. Á fundinn voru mættir fulltrúar frá aðildar-
samtökum EYCE víðs vegar úr Evrópu til þess að taka þátt
í að móta framtíð EYCE. Fjögur ný aðildarfélög voru tekin
inn í EYCE á fundinum og var það mikið ánægjuefni fyrir
samtökin.
Nefndir störfuðu meðan á fundi stóð. Meðal þess sem
rætt var þar voru efni á borð skiptingu auðvalds í heim-
inum, samtal trúarbragða, hlutskipti EYCE í Evrópu, aðild
að EYCE, samkirkjumál og fjármál. Nefndirnar skiluðu hver
og ein skýrslu að nefndarstörfum loknum og má finna
upplýsingar um þær á www.eyce.org.
Ný stjórn var kjörin og er óhætt að segja að hún sé afar
vel skipuð samkirkjulega séð. í henni sitja fulltrúar frá
Waldesísku kirkjunni, lúthersku kirkjunni, rétttrúnaðarkirkj-
unni, anglikönsku kirkjunni og rómversk-kaþólsku kirkj-
unni.
Eitt af megin verkefnum EYCE næstu árin verður að
styrkja tengslin við ungmenni af öðrum trúarbrögðum.
EYCE lítur á þetta verkefni sem mikilvægt til þess að vinna
gegn fordómum og ófriði í Evrópu og bindur miklar vonir
við það. EYCE hefur einnig undanfarið unnið að því að
auka þátttöku ungmenna úr austur-Evrópu í námskeiðum
og var fyrsta skrefið að stofna sérstakan sjóð sem ætlaður
er til þess að styrkja þáttöku þeirra. Þátttakendur í
námskeiðum hafa verið duglegir að leggja fé í þennan sjóð
og lét aðalfundurinn ekki sitt eftir liggja. Á fundinum
söfnuðust tæpar 300 evrur í sjóðinn. Þakka má fram-
kvæmdastjóra EYCE og gjaldkera EYCE fyrir það en þeir
voru tilbúnir að taka þátt í smá sprelli ef rétt upphæð
næðist til þess. Klæddi gjaldkerinn, sem er heldur stór-
vaxinn, sig upp í kvenmannsföt en framkvæmdastjórinn
rakaði af sér skeggið í fyrsta sinn í tíu ár. Vakti þetta uppá-
tæki mikla kátínu en það sem betra er, er að sjálfsögðu féð
sem safnaðist í sjóðinn góða. EYCE hefur einnig skipulagt
sérstaka heimsókn á Balkanskaga til þess að styrkja betur
sambönd við ungmenni þar. EYCE stefnir svo á að halda
námskeið í Úkraínu á næsta ári, en á því námskeiði verður
fjallað um ungmennalýðræði.
Sjöfn Þór, fyrrverandi stjórnarmeðlimur í EYCE
Pistlar um þjóðmál,
kirkju og trú
í nóvember var opnaður nýr Pistlavefur á www.tru.is/
pistlar. Þar eru birtir 2-3 pistlar vikulega um ýmis efni
sem varða kirkju og trú. Boðið er upp á umræður um
efni pistlanna og við hvetjum lesendur Víðförla til að
leggja endilega orð í belg. Á undanförnum vikum hafa
birst pistlarnir:
Svavar A. Jónsson: Eigum við að trúa fjölmiðlunum?
Þórey Guðmundsdóttir: Þorum að axla ábyrgð sem
uppalendur
Axel Árnason: Huggun 1
Anna M. Þ. Ólafsdóttir: Þegar dyrabjallan hringir...
Jónas Þ. Þórisson: Neyðin kallar í Pakistan
Kristján Valur Ingólfsson: Marteinn bróðir minn
Sigurður Árni Þórðarson: Kaþarsis - hreinsun
Kristín Þórunn Tómasdóttir: í upphafi var vatnið
Irma Sjöfn Óskarsdóttir: Hrópum og hlustum
Árni Svanur Daníelsson
Upptökur af
Kirkjuþingi
Sú nýbreytni var tekin upp á Kirkjuþingi í október að
upptökur frá umræðum á þingfundum voru gerðar
aðgengilegar á vef þingsins. Þannig gátu allir sem
fylgjast vildu með einstökum málum kynnt sér hvernig
fjallað var um þau. Umræðurnar eru enn aðgengilegar
á www.kirkjan.is/ kirkjuthing/?upptokur/2005. Gerður
var góður rómur að þessu og hafa einstakar skrár
verið sóttar um 700 sinnum. Á vef þingsins er jafnframt
hægt að nálgast málaskrá Kirkjuþings og bráða-
birgðaútgáfu af gerðum þingsins. Þá er stefnt að því
að setja gerðir Kirkjuþings frá upphafi á vef þingsins á
næsta ári.
Árni Svanur Daníelsson