Víðförli - 01.11.2005, Side 15

Víðförli - 01.11.2005, Side 15
NÓVEMBER 2005 V í Ð F Ö R L I 15 Af Kirkjuþingi 2005 Kirkjuþing 2005 fjallaði um nokkuð mörg mál að þessu sinni eða alls 24. Þingið samþykkti frumvarp að breytingu á þjóðkirkju- lögunum, nokkrar ályktanir, þ. á m. um Hjálparstarf kirkj- unnar og fjármál þjóðkirkjunnar, tvo nýja bálka starfsreglna svo og ýmsar breytingar á gildandi starfsreglum. Þá sinnti þingið hefðbundnu eftirlitshlutverki sínu, m.a. með því að fjalla um skýrslu Prestssetrasjóðs og reikninga kirkjunnar. Ef farið er yfir helstu samþykktir þingsins má fyrst nefna að Kirkjuþing lýsti yfir stuðningi við þá stefnu sem Hjálpar- starf kirkjunnar hefur mótað um eflingu starfseminnar til ársins 2010, meðal annars um þreföldun söfnunarfjár. Kirkju- þing samþykkti að hvetja söfnuði, prestaköll og prófast- dæmi til þess að taka virkan þátt í hjálparstarfinu á kom- andi árum og beindi Kirkjuþing því til safnaða að gera alþjóðlegt hjálparstarf að reglulegu verkefni í starfsemi sinni. í þessari ályktun Kirkjuþings var fjallað um margt fleira sem þýðingarmikið má telja á sviði kærleiksþjónustu kirkjunnar, sem ekki er rúm til að fjalla um hér. Þróunarverkefni um svæöabundið samstarf Þingið ályktaði að koma á þróunarverkefni um svæða- bundið samstarf er nái til allra sókna og prestakalla í land- inu. Felst m.a. í þessu að efla samvinnu sókna og presta- kalla og þar með þjónustu kirkjunnar og að nýta mannauð og fjárhagslega burði út fyrir sóknarmörk. Prófastar skulu hafa umsjón með þróunarverkefninu og Biskupsstofa veita faglega ráðgjöf. Samþykkt var að beina því til Biskups íslands að loka- tillaga að fjölskyldustefnu, markmiðum og leiðum, verði lögð fyrir Kirkjuþing 2006. Þýðingarmikið mál sem þingið afgreiddi var frumvarp til laga um breytingu á þjóðkirkjulögum nr. 78/1997, en frum- varpið var samið á vegum kirkjunnar. Er um að ræða tilmæli þingsins til dóms- og kirkjumálaráðherra, um að flytja frum- varp þetta. Frumvarpið felur m.a. í sér að vald Kirkjuþings er aukið frá því sem nú er. Verði frumvarpið að lögum mun Kirkjuþing eftirleiðis ákvarða skipan kjördæma Kirkjuþings, í stað þess að það er lögboðið í dag. Jafnframt mun Kirkju- þing ákvarða fjölda fulltrúa á þinginu, en áfram verður þó lögboðið að leikmenn skuli vera fleiri en vígðir menn. í stað þess að ræða um kjördeild presta eins og nú er verður um kjördeild vígðra manna að ræða, þ.e. djáknar bætast I hóp prestanna. Vonast er tii að Alþingi veiti frumvarpinu brautar- gengi og jafnframt að unnt verði að samþykkja það fyrir ársbyrjun 2006, m.a. vegna þess að gengið er til kosninga á næsta ári til Kirkjuþings. Auka kirkjuþing á vormisseri Verði frumvarpið samþykkt sem lög frá Alþingi verður auka Kirkjuþing kallað saman snemma á næsta ári til að fjalla um nauðsynlegar breytingar á starfsreglum kirkjunnar, sem eru háðar því að frumvarpið öðlist lagagildi. Þessar breytingar varða annars vegar reglur um kjör til Kirkjuþings og hins vegar þingsköp Kirkjuþings, en núgildandi starfsreglur um þessi mál er að finna í starfsreglum um Kirkjuþing nr. 729/1998. í sjálfu sér er um nauðsynlegar tæknilegar breyt- ingar að ræða fyrst og fremst en jafnframt varð úr að endur- skoða tiltekna þættti núgildandi fyrirkomulags. I fyrsta lagi er lagt til að kjörgengi verði víkkað út meðal leikmanna þannig að allir leikmenn í Þjóðkirkjunni, sem upp- fylla skilyrði til að sitja í sóknarnefnd, geti gefið kost á sér til Kirkjuþings, eftir ákveðnum skilyrðum. Þeir sem áhuga hafa á að bjóða sig fram verða að snúa sér til sóknar- nefndar sinnar og lýsa yfir áhuga sínum. í öðru lagi verður sóknarnefndum heimilt, samkvæmt tillögunum, að tilnefna kjörgenga menn til kjörs í kjör- dæminu eftir nánari reglum, en í dag eru það leikmenn á héraðsfundum sem tilnefna. Sóknarnefndir geta þá t.d. tilnefnt þá sem kunna að hafa gefið sig fram og lýst áhuga eða leitað til tiltekinna einstaklinga. í þriðja lagi er lagt til að fulltrúum á þinginu verði fjölgað úr 21 í 29 þ.e. að atkvæðisbærir fulltrúar verði 12 vígðir menn og 17 prestar. Eftir sem áður situr Biskup íslands þingið með málfrelsi og tillögurétt auk vígslubiskupa, full- trúa dóms- og kirkjumálaráðherra og guðfræðideildar. Þingið fjallaði um skýrslu nefndar þeirrar sem kosin var á þinginu í fyrra til að fara yfir skipan kjördæma Kirkjuþings og kosningafyrirkomulag en frumvarpið og þessi tvö þing- mál sem rakin hafa verið eiga rót að rekja til starfa nefndar- innar. Ein ályktun sem samþykkt var er einnig afleiðing af starfi nefndarinnar, en það er um að fela Kirkjuráði að skipa nefnd til að fara yfir kirkjustjórn í héraði. Einkum er um að ræða verksvið prófasta og vígslubiskupa, ekki hvað síst fyrirkomulag sáttaumleitana í deilumálum og athuga skal hvort setja eigi reglur um meðferð héraðssjóða o.fl. Samþykktar voru starfsreglur um Samkirkjunefnd Þjóð- kirkjunnar og má segja að nefndin hafi fengið þannig traust- ari stöðu í stjórnkerfi kirkjunnar, en vægi og þýðing sam- kirkjumála hefur aukist umtalsvert á undanförnum árum. Raufarhafnarprestakall lagt niður Kirkjuþing samþykkti að leggja niður Raufarhafnarpresta- kall frá 1. júní nk. og mun þjónusta Raufarhafnarsókn verða í Skinnastaðaprestakalli eftirleiðis. Tillaga um Kirkjumiðstöð á Akureyri hefur fengið tölu- verða umfjöllun. Kirkjuþing beindi því til Kirkjuráðs að fram færi nánari skoðun og meiri undirbúningur að málinu. Verður væntanlega næsta ár notað til að fara yfir málið og kanna það samkvæmt samþykktum þingsins. Samþykkt var að Kirkjuráð, í samstarfi við Kirkjugarða- ráð, hlutist til um að gengið verði kerfisbundið til verks um skipulag á kirkjustöðum í samstarfi við hagsmunaaðila. Tryggt verði að kirkjur og kirkjugarðar fái skýrt afmarkað land eða helgunarsvæði og að önnur réttindi kirknanna á stöðunum og framtíðarhagsmunir sóknarbarnanna gagn- vart þeim verði tryggð. Bent skal á að fram komu ýmsar gagnlegar ábendingar

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.