Víðförli - 01.11.2005, Side 17
NÓVEMBER 2005
VIÐFORLI
17
Norrænt æskulýðsmót í Svíþjóð
Hulda Líney Magnúsdóttir, æskulýðsfulltrúi Landakirkju,
segir frá ferð á æskulýðsmót:
Æskulýðsfélag Landakirkju og Kfum&k í Eyjum fór
síðastliðið sumar á Norrænt æskulýðsmót sem haldið var á
eynni Barnes Ö í Svíþjóð. Eyjahópurinn samanstóð af 14
meðlimum æskulýðsfélagsins og fimm leiðtogum. Aðrir frá
íslandi voru fimm félagar úr æskulýðsfélagi Mosfellsbæjar
ásamt fararstjóra ferðarinnar, Hreiðari Erni Stefánssyni og
fjórir úr Skógarvinum ásamt tveimur leiðtogum.
Flogið var til Kaupmannahafnar og gist nokkrar nætur á
FDF. Þaðan farið á rútu á mótið, 12 klukkustunda ferð í 30
stiga hita. Áfangastaðurinn var Barnes Ö sem er ákaflega
falleg eyja í sænska skerjagarðinum.
Þátttakendur voru frá öllum Norðurlandaþjóðum nema
Grænlandi. Þeim var skipt í hópa þar sem reynt var að
blanda þátttakendum frá öllum þjóðum saman. Dagurinn
byrjaði alltaf á samverustund sem þjóðirnar skiptust á að
halda. Á hverjum degi var boðið upp á þrjú mismunandi
verkefni og skiptust hóparnir á að leysa þau svo að allir
fengu að prófa allt. Það sem var í boði var meðal annars
kennsla á kanó og í dýfingum, ströndin (sandkastalakeppni
og sólbað), mismunandi leikir, tálga, dorgveiðar, ýmsir
sirkusleikir, umræðuhópar, dans og gítarkennsla. Á kvöldin
var endað á léttri kvöldvöku þar sem sungið var undir
gftarspili tveggja íslenskra leiðtoga. Flenni lauk síðan með
bíblíustund.
Um mitt mót var mótið brotið upp og farið í allsherjar
sjóræningjaleik sem byggðist upp á þrautum og keppnum
milli liða. Það tókst með eindæmum vel og höfðu þátttak-
endur gaman af þó þeir blotnuðu oft. Á meðan þátttak-
endur leystu mismunandi verkefni voru aðstoðarleiðtogar á
leiðtoganámskeiði. Enduðu þeir síðan þjálfunina með því
að skipuleggja eina kvöldstund sem tókst mjög vel.
Á milli verkefna var góður frítími. Þá var gott að fara á
ströndinni og í sjóinn. Ekki veitti af að kæla sig þar sem
frábært veður var allan tíma og sást ekki skýjahnoðri á
himni og hitinn var á milli 28 - 32 stig. Þann 10. júlí endaði
mótið og haldið var aftur til Kaupmannahafnar. Þá tóku
aftur við skelfilegir 12 tímar í rútu í 35 stiga hita og nær
engin loftræsting. Æskulýðsfélagar gerðu gott úr því og
sváfu á milli þess sem gert var grín og sungið. í Kaup-
mannahöfn var gist á FDF eins og á útleið og höfðu félagar
mikið af frjálsum tíma á milli þess sem farið var á tækni-
safn, Tívolí, siglingu um Nýhöfn og Kristjanía skoðuð. En
alltaf kemur að ferðalokum. Haldið var sem heim lá með
lceland Express þann 13. júlí og komið til Eyja það kvöld.
Ferð þessi tókst mjög vel myndaðist gott samband milli
allra þátttakenda. Margir mynduðu vinatengsl og eru enn í
sambandi bæði í gegnum msn, síma en einnig hafa nokkrir
af islensku félögunum hist í litlum hópum. Þessi ferð verður
lengi í minningu höfð.