Víðförli - 01.11.2005, Qupperneq 19
NÓVEMBER 2005
V í Ð F Ö R LI
19
Úrvalslið íslenskra hugsuða íhuga lífið,
tilveruna og trúna í nýrri bók
Hvar býr hamingjan?
Eru börn óvitar?
Eru englar alls staðar?
Kanntu að meta þögnina?
Þykir þér gaman í erli dagins?
Var ekki gott að vakna í morgun?
Hvað kostar fjögurra dyra, sjö ára gömul Lada?
Hvers virði er fjölskyldan, makinn og börnin?
í bókinni í dag, um lífið tilveruna og trúna má finna þessar
spurningar og margar fleiri. Þeim er varpað fram og svarað
af 179 konum og 187 körlum. Alls er um 366 hugleiðingar
að ræða, ein fyrir hvern dag ársins - líka hlaupársdag.
Höfundar eru á öllum aldri og margir þeirra þjóðkunnir.
En flestir þeirra eru í hópi hversdagslegs fólks sem sækir
ekki í sviðsljósið en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa
af miklu að miðla, lífsþekkingu sem sprottin er upp úr
önnum dagsins og öllu því sem lífið hefur upp á að bjóða,
hamingju jafnt sem ögrunum.
Umfjöllun og efnistök sýna á skýran hátt hvað hverjum
og einum er hjartfólgnast og hugleiknast í lífinu. Oft rifja
höfundar upp minningu sem virðist í fyrstu hversdagsleg
en verður lærdómsrík. Allt er hér sett fram á látlausan hátt
og gjarnan með bros á vor, sögur um litla sigra, vonbrigði
og lífsreynslu sem geta reynst drjúg hjálp fyrir þann sem
veltir fyrir sér tilgangi lífsins.
Á meðal höfunda eru blaðamenn, prestar, listamenn,
framkvæmdastjórar, Ijósmæður, ráðgjafar, leikarar, arki-
tektar, kennarar, hjúkrunarfræðingar.verkalýðsforingjar, al-
þingismenn, dagskrárgerðarfólk og þannig mætti lengi
telja. Þeir koma af nánast af öllum sviðum mannlífsins.
Bókin I dag er á vissan hátt þverskurður af hugsun
Tugir höfunda komu í Kirkjuhúsið á útgáfudegi til að sækja
eintak sitt af bókinni í dag.
nútíma íslendingsins, sýnir hvaða augum hann lítur lífið og
hvað honum er efst í huga. Segja má að hér sé á ferð
úrvalslið íslenskra hugsuða sem deila með lesendum
hugsunum sínum þar sem margt óvænt og lærdómsríkt
kemur í Ijós. Lífsspeki hversdagsins sem vekur til um-
hugsunar.
Nota má bókina í dag á margan hátt. Að sjálfsögðu má
lesa hana spjaldanna á milli. Einnig er hægt að velja
hugleiðingu fyrir daginn hvort sem er samkvæmt dagatali
eða af handahófi. Til viðbótar þessu er svo hægt að skrá í
bókina afmælisdaga. Á hverri síðu er enn fremur að finna
ritningarorð úr Biblíunni, sem draga rauðan þráð í gegnum
bókina, uppörvandi orð sem hægt er að fletta upp og
kynna sér nánar ef áhugi vaknar.
Næring í
dagsins önn
Almanak kirkjunnar er birt daglega á vefnum. Gott er
aö líta þar við í upphafi dags og sækja sér næringu
fyrir dagsins önn. Við birtum þar stutta morgun- og
kvöldlestra, bæn dagsins, sálmvers dagsins og stuttan
pistil eða fróðleiksmola. Einnig er hægt að skrá sig á
póstlista almanaksins á www.kirkjan.is/almanak. Þeir
sem slíkt gera fá sendan morgunlestur og bæn í tölvu-
pósti á hverjum dagi.
Árni Svanur Daníelsson
Nýr fræðslufulltrúi
Hans G. Alfreðsson guðfræðingur hefur verið ráðinn fræðslu-
fulltrúi á fræðslusviði Biskupsstofu með æskulýðsmál að
aðalviðfangsefni frá og með 1. október n.k. Um er að ræða
tímabundna ráðningu í hálft starf til eins árs.
Hans útskrifaðist úr guðfræðideild H.í. árið 2000 og
starfaði tvö næstu árin sem meðferðarráðgjafi á Stuðlum,
meðferðar- og greiningarstöð fyrir unglinga. Hann tók við
starfi æskulýðsfulltrúa Dómkirkjunnar haustið 2002 og
hefur haft þar umsjón með öllu barna- og unglingastarfi
síðan. Hans mun starfa þar áfram í hálfu starfi. Að auki
hefur hann verið í starfshópi um lífsleikniverkefni Þjóð-
kirkjunnar í framhaldsskólum.