Víðförli - 01.11.2005, Side 20
20
VIÐFORLI
24. ÁRG. 3. TBL.
Bækur Skalholtsútgáfunnar
Kirkjuhúsið, Laugavegi 31 - Sími 552
366 ÍSLENDINGAR ÍHUGA LÍFIÐ, TILVERUNA
0G TRÚNA í NÝRRI BÓK
í bókinni I dag, um lífið tilveruna og trúna eru 366
hugleiðingar, ein fyrir hvern dag ársins.
Höfundar eru á öllum aldri og margir þeirra þjóðkunnir.
Allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa af miklu að miðla,
lífsþekkingu sem sprottin er upp úr önnum dagsins og
öllu því sem lífið hefur upp á að bjóða, hamingju jafnt sem
ögrunum.
Á meðal höfunda eru blaðamenn og bændur, listamenn
og Ijósmæður, framkvæmdastjórar, ráðgjafar og leikarar,
alþingismenn og arkitektar, kennarar og hjúkrunarfræðingar,
verkalýðsforingjar og dagskrárgerðarfólk, sjómenn og
skrifstofufólk, og þannig mætti lengi telja. Þeir koma af
nánast af öllum sviðum mannlífsins.
Umfjöllun og efnistök sýna á skýran hátt hvað hverjum
og einum er hjartfólgnast og hugleiknast í lífinu. Oft rifja
höfundar upp minningu sem virðist í fyrstu hversdagsleg en
verður lærdómsrík. Allt er hér sett fram á látlausan hátt og
gjarnan með bros á vor, sögur um litla sigra, vonbrigði og
lífsreynslu sem geta reynst drjúg hjálp fyrir þann sem veltir
fyrir sér tilgangi lífsins.
Nota má bókina / dag á margan hátt. Að sjálfsögðu má
lesa hana spjaldanna á milli. Einnig er hægt að velja
hugleiðingu fyrir daginn hvort sem er samkvæmt dagatali
eða af handahófi. Til viðbótar þessu er svo hægt að skrá í
bókina afmælisdaga. Á hverri síðu er enn fremur að finna
ritningarorð úr Biblíunni, sem draga rauðan þráð í gegnum
bókina, uppörvandi orð sem hægt er að fletta upp og kynna
sér nánar ef áhugi vaknar.
Meðal höfunda í bókinni eru Árni Tryggvason leikari, Einar
Kárason rithöfundur, Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, Guðrún Bergmann hótelhaldari, Gunnar Hersveinn
heimspekingur, Jón Ólafsson tónlistarmaður, Halldóra
Geirharðsdóttir leikkona, Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður,
Ingólfur Margeirsson rithöfundur, Jón Ársæll Þórðarson
sjónvarpsmaður, Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur,
afreksfólkið Ólafur Stefánsson og Kristín Rós Hákonardóttir,
Fréttamennirnir Sigmundur Ernir og Ómar Ragnarsson,
Jónína Leósdóttir blaðamaður og Vigdís Finnbogadóttir.
ÞANKAGANGUR JÓNS GNARR
Það er list að fjalla um málefni trúar og samfélags af kímni og
alvöru án þess að kjarni málsins fjari út í góðlátlegu brosi eða
kafni undar þunga alvörunnar. List að setja brennandi mál líðandi
stundar undir Ijós trúarinnar - velta fyrir sér þýðingu hennar í
lífi nútímamanna sem eru í kapphlaupi við tímann og sjálfa sig.
Skoða á einlægan hátt og gagnrýnan samfélagið sem við lifum
og hrærumst í. Láta kímnina og alvöruna vega salt og varpa Ijósið
hvora á aðra svo til verði nýtt sjónarhorn.
Þetta tekst Jóni Gnarr í nýrri bók sinni, Þankagangur. Hann staldrar
við í önnum dagsins og virðir fyrir sér líf sitt og samferðamanna
sinna. Líf sem oft er flókið og krefjandi - líf sem oft virðist vera
jafnvel fáránlegt og geggjað. Hversdagsleg atvik sem við öll
þekkjum verða honum tilefni til að skoða lífið út frá því sjónarhorni
þar sem jafnvægi milli kímni og alvöru ríkir. Þess vegna er texti
hans snarpur og hristir duglega upp í lesendum. Hann er einlægur í
trú sinni og djarfur vegna þess að trúin er lifandi í brjósti hans
og heil.
Þankagangur er bók sem kemur öllum í gott skap -
alla til umhugsunar.
bók sem vekur