Víðförli - 01.11.2005, Side 21

Víðförli - 01.11.2005, Side 21
NÓVEMBER 2005 V ÍÐ FÖ R LI 21 BIBLÍAN FRÁ GRUNNI EFTIR SIMON JENKINS Hvaða erindi skyldi Biblían eiga við nútímann? Lipur handbók við hæfi nútímamanna Hver varAbel? Og Kain? Af hverju fór Jósef til Egyptalands? Hver var þessi Gídeon? Og allir þessi spámenn? Jeremía...Jesaja? Afhverju eru guðspjöllin fjögur? Hver er þessi Pétur? Og þessi undarlegi maður, hann Páll postuli? Opinberunarbókin hefur vakið alls konar hugmyndir og margir hafa pælt i henni - en hvaða boðskap skyldi hún flytja? Oft heyrast þær raddir að Biblían sé torskilin bók, söguþráður flókinn og ekki aðgengilegur nútímamanninum. Auk þess sé letrið svo smátt og heimur hennar einkennilega framandi og ólíkur öld tækni og tölva. En þá kemur Biblían frá grunni, að góðum notum og svarar ýmsum spurningum sem brenna á okkur. Þessar spurningar og mikiu fleiri eru mörgum kunnar og kannski höfum við sjálf spurt þeirra einhvern tíma! Fáar bækur geyma jafn mörg nöfn og Biblían. Og fáar bækur segja jafn merkilega sögu og Biblían enda hefur hún ekki verið að ástæðulausu kölluð bók bókanna. Biblían frá grunni rekur í stórum dráttum efni allra bóka Biblíunnar og setur þær í sögulegt samhengi. Flún gefur greinargott yfirlit svo að lesandinn er miklu fróðari að lestri loknum og áttar sig smám saman á hvílíkan fjársjóð Biblían hefur að geyma og þá ekki aðeins hvað snertirtrú heldur líka menningu nútimans og sögu. Biblían frá grunni er öllum ætluð og er framúrskarandi handbók á sínu sviði og ætti að vera til á hverju heimili. Eins og símaskráin. Martin Lönnebo PÆNABANDIf) Ijálfun i lífsþrótli, lifslðugun, sjálfsstjórn pg i þvi að lifa i návisl Guös BÆNABANDIÐ Eitt andartak andspænis lífsspurningunum Talnabönd þekkja flestir. Þau eru ríkur þáttur í trúarlífi rómversk-kaþólskra og rétttrúnaðarkirkjunnar. Talnabönd eru hjálpartæki bænalífs, perlur á bandi sem maður rekur sig eftir um leið og farið er með bænir eða sannindi trúarinnar eru hugleidd. Bókinni Bænabandið fylgir bænaband, sem sænski biskupinn Martin Lönnebo kom fram með fyrir nokkrum árum. Það er byggt upp af átján perlum í ýmsum litum og gerðum. Hver og ein hefur sitt heiti og merkingu. Það hefur breiðst út til margra landa og verið tekið fagnandi af fólki með mismunandi trúarskoðanir, sem hefur viljað styrkja bænalíf sitt. Oft er erfitt að tengja hið kristna trúarlíf daglegu lífi og amstri. Bænabandið getur reynst gagnlegt til þess. Með því að feta leið bænabandsins frá perlu til perlu gefst tóm til að nema staðar eitt andartak andspænis lífsspurningunum og sjá þær sem það sem þær eru - sjá þær eins og perlur á bandi. Perlurnar eru ekkert í sjálfu sér, þær eru eins og smámiðarnir á ísskápshurðinni - áminning um það sem ekki má gleymast - orð og tilfinningar sem maður ber með sér, en sem maður gleymir ef til vill að íhuga og biðja fyrir. TÍÐAGJÖRÐ Tíðagjörð er sígild kristin bænagjörð. Uppi- staðan er m.a. Davíðssálmar og lestrar úr Biblíunni. Til notkunar í einrúmi eða í hópum. ORÐ í GLEÐI - METSÖLUBÓK! Þessi bók geymir gott veganesti út í dagsins amstur og eril. Bókin flytur glettin orð en þó alvörufull og djúpvitur sem ylja lesendum um hjartarætur og vekja bros á vör. Örsögur og íhuganir, myndbrot og Ijóð, spekiorð og bænir sem styrkja og næra hugann. HUGGUN I SORG Huggunarorð í formi íhugunar, bæna og orða Biblíunnar sjálfrar um sorg og missi, huggun og von. Textar bókarinnar orða hugsanir þegar hugurinn leitar hjálpar í hugarneyð, þegar sorgin sækir að. HUGGUN í SORG HUGLEIÐINGAR OG BÆNAORÐ KARL SIGURBlORNSSON

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.