Víðförli - 01.11.2005, Side 22

Víðförli - 01.11.2005, Side 22
22 VÍÐFÖRLI 24. ÁRG. 3. TBL. fJVerju- afi? AF HVERJU, AFI? í þessari bók talar afi við börn sem hlakka til jólanna. Aftur og aftur hljómar spurningin: Af hverju afi? Af hverju? Börnin spyrja afa um jólin í gamia daga og um fyrstu jólin þegar Jesús fæddist. Þau spyrja um gjafir, gamla jólasiði og gömul orð úr Biblíunni og kunnum jólasálmum eins og: Afi, hvað er þetta meinvill í myrkrunum lá? Afinn í þessari bók er Sigurbjörn Einarsson, biskup. Orð hans bera með sér hlýju og kímni ásamt visku hins aldna. Bókin svarar ekki síður spurningum fullorðinna um tíma sem er liðinn og skildi svo margt eftir handa börnum á öllum aldri. Bókin kom fyrst út árið 1984 og hefur lengi verið ófáanleg. Hún er sígild bók og ómissandi dýrgripur á aðventu og jólum. JOLAHREINGERNING ENGLANNA Trú, Von og Kærleikur eru englar sem fá það erfiða verkefni að taka til í veröldinni fyrir jólin. Þeir hitta alls konar furðufólk, fýlupoka, ólátabelgi, frekjudósir, væluskjóður, kjánaprik, hrekkjalóma, blaðurskjóður, kjaftaskúma og letipúka og prakkarastrik! Skondin saga fyrir börn á ýmsum aldri, sannkölluð lífsleiknibók! GEISLADISKURINN SÖGUR OG SÖNGVAR Á AÐVENTU OG JÓLUM JÓLASÖGUR FRÁ ÝMSUM LÖNDUM Sögur og sígíld ævintýri. Jólasögur sem höfða til allra aldurshópa! MYNDSKREYTT BIBLÍA FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA Hefur þig langað til þess að lesa Biblíuna en ekki komið þér að verki? Lestu þá þessa bók... Hér eru sögur Bibliunnar endursagðar á skýran og einfaldan hátt sem hentar bæði börnum og fullorðnum. Fjöldi mynda prýðir frásögnina og glæðir hana kraftmiklu lífi. Barnabiblía (PB ; nfl

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.