Víðförli - 01.11.2005, Page 23

Víðförli - 01.11.2005, Page 23
NÓVEMBER 2005 VÍÐFÖRLI 23 Bækur fyrir börn „Aö læra að biðja er að læra að sjá heiminnn eins og hann lítur út frá himni.“ Bænabók barnanna er safn 150 bæna og versa sem Karl Sigurbjörnsson hefur tekið saman. Þessar perlur varpa Ijóma inn í hinar ólíkustu aðstæður lífsins og eru hver með sínu móti, en umfram allt eru þær einfaldar, látlausar, einlægar og minnisstæðar. 3.TÍU B0Ð0RÐ GUÐS Tíu boðorð Guðs - leiðsögn á vegi lífsins heitir ný bók frá Skálholtsútgáfunni. Bókin endursegir á einfaldan hátt texta boðorðanna tíu þannig að börn geta skilið. 2. JESÚS ER BESTIVINUR BARNANNA - GLUGGABÓK Sögur um Jesú með gluggum til að opna. Þessi gluggabók geymir sögur af Jesú sem eru heppilegar fyrir yngri börnin. Sagt er frá fæðingu Jesú, vinum hans, kraftaverkum og upprisu. Börnin læra um leið að telja, þekkja litina og hvað afkvæmi dýra heita. Það eru 45 gluggar til að opna og þá komast börnin að ýmsu skemmtilegu. Lifandi bók og litrík. 4. ÓSKIR TRJÁNNA Einu sinni stóðu þrjú lítil tré uppi á fjalli nokkru og létu sig dreyma um hvað biði þeirra þegar þau yrðu stærri... Þannig hefst þessi hrífandi saga af þremur trjám og óskum þeirra - sem rætast á undraverðan hátt... Saga sem börn heillast af.

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.