Bæjarins besta - 24.05.2000, Blaðsíða 10
Til sölu er lítið, ódýrthjól-
hýsi. Einnig 31" sumar-
dekk undir jeppa. Uppl. í
síma 456 6S21.
íbúð óskast til leigu, iielst
á Eyrinni á Ísaíirði, ekki
minni en 3ja herb. Kaup
koma einnig til greina ef
gott tilboð fæst. Upplýsing-
ar í síma 451 3480.
Handverkshópurinn Karí-
tas óskar eftir húsnæðitil
leigu undir söluvöru sína.
Upplýsingar í símum 456
3821 og 456 3834.
Ættingjar og vinir ínu og
Úlfars. Skoðið heimasíð-
unaþeirraá slóðinni http:/
/www.snerpa.is/ulfar
Mig vantar tvö hálfshtin
33" dekk með heilsárs-
munstri. Uppl. í símum
456 4353 og 892 3356.
Tapast hefur Daiwa veiði-
stöng við brúna í Álftaflrði.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband við Slavko í
síma 456 5328.
Til söluerMMC L300 árg.
1988. Á sama stað er til
sölu Nissan Terrano árg.
1991 í góðu standi. Upplýs-
ingar í símum456 3041 og
456 4041.
Bráðvantar2jaherb. íbúð
til leigu á ísafirði. Uppl. í
símum 867 7734 og 862
6035 eftir kl. 15.
Óska eftir lítilh einstakl-
ingsíbúð eða íbúð með her-
bergi, baði og eldunarað-
stöðu á Eyrinni á ísafirði
sem allra (yrst. Er reglu-
söm. Skilvísum greiðslum
heitið. Upplýsingar í síma
456 4064 e. kl. 18.
Óska eftir ræstingar-
vinnu eða annarri vinnu á
kvöldin. Upplýsingar í síma
456 4434 eftir kl. 19.
Til sölu er tölva án skjás
á kr. 22 þús. Uppl. gefur
Sammi í síma 456 6238.
Til sölu er 2ja tonna tré-
hátur án veiðileyíis. Vagn
fylgir. Upplýsingar í síma
894 5834.
Til sölu er nýlegur horn-
sófi og glerborð í stofu.
Uppl. í simum 456 4627
og 869 4768.
Aðalfundur Sæfara, félags
sportbátaeigenda verður
haldinn 3. júní kl. 17 í
Skipasmíðastöðinni við
Suðurtanga. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf
ásamt útvíkkun á starfsemi
til sjósports. Nýir félagar
velkomnir.
Þriggja herhergja ibúð á
jarðhæð að Miðtúni 27 er
tilleigufljótlega. Uppl. gef-
ur Bára í síma 456 3535
eftirkl. 17.
Ég er tæplega 13 ára stelpa
sem óskar eftir að passa
harn í sumar, helst yngra
en 3ja ára. Uppl. gefur
Kristjanaí síma456 4319
Til sölu er MMC Lancer
4x4, station, árg. 1987.
Qóður bíll sem fæst iyrir
lítinnpening. Upplýsingar
í síma 456 4186.
Góður ísskápur fæst gef-
ins gegn því að hann verði
sóttur. Upplýsingar í síma
456 4186.
Mig vantar Barhí-hús.
Uppl. í síma 456 5199.
Til sölu eru tvær furukoj-
ur, barnarúm úr furu sem
hægt er að stækka. Dýnur
geta fylgt. Einnig er til sölu
Simo kerra með svuntu á
kr. 8 þús. Upplýsingar í
síma 456 7473.
Til sölu er Toyota Corolla
GTI árg. 1988, ekinn 168
þús. km. á vél. Tilboð
óskast. Uppl. í síma 868
\2955 og 869 6210.
'Vcirftm
máátt í
Hafstein Vilhjálmsson
þekkja flestir, en hann hefur
rekið heildverslun á Isafirði í
tæp 20 ár. Hann er fæddur ár-
ið 1944 í Reykjavík þar sem
hann ólst upp, en faðir hans,
Vilhjálmur Angantýsson var
fæddur á Snæfjallaströnd í
ísafjarðardjúpi. Hafsteinn er
einnig þekktur fyrir starf með
litla leikklúbbnum, Golf-
klúbbi Isafjarðar, auk þess
sem hann heldur ofsaleg garð-
partí.
Verslunin var
í kjallaranum
„Við hjónin fluttum hingað
vestur 1. júní 1977,Við vorum
orðin leið á Reykjavík og
langaði út á land. Ég sá auglýst
starf úti á landi,vissi ekki ná-
kvæmlega hvar, en ákvað að
sækja um og komst síðan að
því að starfið var hjá Sandfelb
á Isaftrði.
Ég flutti vestur með fjöl-
skyldu minni og vann í Sand-
felli í 5 ár undir stjórn Ólafs
B. Halldórssonar. Þar sá ég
um innkaup og sölumennsku
á matvörum, en þá var Sand-
fell að flytja töluvert inn af
matvörum og öðru sem ekki
þykir lengur hagkvæmt að
flytja inn.
Eftir fimm ára starf hjá
Sandfelli ákvað ég að breyta
til og kom á fót minni eigin
heildverslun. Fyrst um sinn
var hún í kjallaranum heima
hjá mér en fluttist fljótlega í
skúríFjarðarstrætinu. Þareftir
var ég með verslunina inn á
Grænagarði, en að lokum end-
aði hún í Suðurgötu, þar sem
hún er enn þann dag í dag.“
Mikil þjónusta
viö eitt skip
Fyrstu tíu árin segir Haf-
steinn að vel haft gengið og
heildverslunin á stöðugri upp-
leið. „Eftir tíu ára rekstur hélt
verslunin beinu striki í nokkur
ár, en þessi síðustu ár hefur
heldur hallað undan fæti. Það
hafa orðið miklar sviptingar í
atvinnulífinu eins og flestir
hafa tekið eftir, svo og margar
rækjuverksmiðjur eru farnar,
tvö frystihús og ótal skip. Fólk
gerir sér ekki grein fyrir því
hversu mikil þjónusta er við
eitt skip, þannig að brotthvarf
þess hefur áhrif á fleiri en
sjómenn og fiskverkafólk.
Ekki nóg með að skipið kaupa
kostinn hjá mér, heldur eru
það líka smiðjurnar, versl-
anirnar, veiðarfærasölurnar og
síðast en ekki síst pöbbarnir
sem fá viðskipti þegar skip er
í landi.“
Menn hafa tekið eftir því
að rækjuveiði í Isafjarðardjúpi
sem og annars staðar hefur
verið í mikilli lægt að undan-
förnu. Það kemur niður á Haf-
steini eins og fleirum. „Fægð-
in í rækjuveiðunum þýðir að
engin aðkomuskip koma til
bæjarins og ekki er mikið að
gera hjá þeim skipurn sem
hér eru. Þannig minnkar þjón-
ustan hjá mér.“
Reyni að halda velli
Hafsteinn segir að ekki sé á
dagskránni hjá honum að loka
versluninni og setjast í helgan
stein. „Ég hef þurft að draga
saman seglin að undanförnu
og býst við að þurfa þess
áfram. Þessi rekstur hjá mér
miðast aðallega við að þjóna
útgerðum. frystihúsum og
rækjuverksmiðjunum. Ég var
að þjóna matvöruverslunun-
um á meðan þær voru sjálf-
stæðar einingar, en nú er það
orðið svo að nær allar versl-
anir eru útibú af keðjum fyrir
sunnan og fá öll sín aðföng
þaðan. Ég þjónusta þó ein-
staka verslun, sem og sjopp-
urnar og veitingastaðina. Ég
hef starfsmenn sem ég ætla
að reyna að halda eins og ég
get. Ég verð þó að miða minn
rekstur við þær aðstæður sem
eru fyrir hendi, draga saman
og reyna að halda velli.“
„Við höfum okkar
Braga kaffi“
„Mér hefur lengi fundist
vanta þennan norðlenska
hugsunarháttí margaVestfirð-
inga, þ.e.a.s. að menn haldi
tryggð við það sem heima er.
Ég ky nntist þessum hugsunar-
hætti þegar ég var í sveit í
Svarfaðardal. Ég heyrði einu
sinni sögu af sölumanni sem
kom norður á Akureyri og
reyndi að vera með kynningu
á Kaaber kaffi. Þá kom að
honum gamall maður og
sagði: „Við þurfum ekkert
Kaaber kafft, við höfum okkar
Braga kafft.“ Svona er þeirra
hugsunarháttur. A Vestfjörð-
um hefur mér fundist margir
hugsa öfugt. Því lengra að sem
varan kemur, því betri hlýtur
hún að vera. Ég veit um menn
sem borga jafnvel rneira fyrir
vöru, bara af því að hún kemur
að sunnan.
Vestfirðingar verða að passa
upp á sitt, þvt annars eru þeir
að brjóta niður þjónustu sem
þeir þurfa síðan á að halda
seinna. Ég veit um fyrirtæki
hér í bæ sem pantar allt að
sunnan, en ef það vantar eitt-
hvað í sendinguna, koma þeir
til mín, ætlast til að ég eigi
hlutinn og saka mig um lélega
þjónustu ef ég get ekki reddað
þeim á stundinni."
F asteignamark-
aðurinn er sirkus
Hafsteini líður vel á Isaftrði
og segist ætla að búa hér
áfram. „Það var mjög vel tekið
á móti okkur hjónunum þegar
við komum. Konan mín varð
fljótlega mjög virk í litla leik-
klúbbnum og náði að draga
mig inn í hann líka. Þar eign-
uðumst við marga góða vini
sem við eigum enn þann dag í
dag. Ég hef töluvert verið við-
loðandi klúbbinn í þessi 23 ár
sem ég hef verið hérna á Isa-
ftrði, staðið í reddingum fyrir
hann og unnið rnikið á bakvið
tjöldin. Aldrei hefur þó tekist
að véla mig upp á svið.“
Hafsteini finnst fasteigna-
verð á Islandi í dag mjög und-
arlegt. „Ég var fasteignasali í
Reykjavík í fleiri ár og hef
aldrei séð markaðinn svona
undarlegan. Hann er jafn skrít-
inn hér á Isafirði eins og í
Reykjavík, en í hina áttina.
Ég vona að þetta lága fast-
eignaverð hér og hið háa í
Reykjavík eigi eftir að draga
fólk hingað.
Mér finnst Iíka undarlegt
hvernig peningarnir virðast
verða til af engu í Reykjavík.
Mér var kennt sem ungum
manni að það yrði að búa til
peningana áður en hægt væri
að höndla þá. Núna virðist
það vera þannig, sérstaklega
fyrir sunnan, að menn skrifa
tölur á blað og blása upp
blöðrur til að búa til peninga.
Allir ætla að verða ríkir á við-
skiptum, en enginn ætlar að
búa peningana til.
Það er til fjöldinn allur af
mönnum sem hafa komist yfír
milljarða verðmæti á nokkrum
árum sem varla bera verka-
mannaskatt."
Pólitíkusar segja
fólki fyrir verkum
Hafsteinn hefur mjög
ákveðnar skoðanir á pólitík.
„Mér fmnst undarlegt að hægt
sé að demba hlutum yfir á
sveitarfélögin sem þau fáekk-
ert fyrir. Gott dæmi um þetta
er hér á ísaftrði, þar sem bæj-
arfélagið hefur tekið á sig
margvíslega þjónustu sem það
stendur að sjálfsögðu ekki
undir þegar það fær ekkert til
baka.
Mér finnst líka skrítið að
það skuli vera pólitíkusarnir
sem segja fólki fyrir verkum
en ekki öfugt. Ég hef alltaf
staðið í þeirri meiningu að
það væru atkvæðin sem drifu
pólitíkusa áfram, en ekki póli-
tíkusar atkvæðin. Maður sér
hvernig flokkarnir, þá sérstak-
lega Framsóknarflokkurinn,
hafa skellt hér niður mönnum
og skipað Vestfirðingum að
kjósa hann.“
F é lagsmálagolfar i
Auk þess að vera heildsali
og áhugamaður um leiklist,
er Hafsteinn Vilhjálmsson
golfari. „Ég átti þátt í að stofna
Golfklúbb ísafjarðar á sínum
tíma og var lengi í stjórn hans.
Ég hef nú ekki haft mikinn
tíma til að stunda golftð sjálf-
ur, er frekar eins konar félags-
málagolfari. Ég hef mikið
unnið í félagsstarfi klúbbsins,
skipulagt samkomur og fleira.
Það var mikil barátta við
bæjarfélagið að koma upp
golfvelli í Tungudal á sínum
tíma. Þeir voru til sem gátu
ekki hugsað sér að hafa golf-
völl íTungudal, en nú held ég
að flestir séu sammála um að
þessi völlur er hin mesta bæj-
arprýði.“
Margur ökumaðurinn óskar
golfurum Isafjarðar grafar og
dauða þegar hann keyrir veg-
inn inn Tungudal, en Golf-
klúbbur Isafjarðar plantaði
húsi á miðjan veg svo að fyrir
ofan hús kom ein undarlegasta
blindhæð sem vitað er um.
„Þannig var, að samkvæmt
skipulagi átti vegurinn að
liggja ofar, en bæjarfélagið
hefur ekki séð sér fært að ráð-
ast í þær framkvæmdir ennþá.
Klúbburinn fékk hús úr Hnífs-
dal í fyrra og gat ekki verið að
bíða eftir því að bærinn færði
veginn og varð að setja húsið
niður á gamla veginn. Ég við-
urkenni að þetta er hálfgert
klúður en annað var ekki
hægt.“
Sniglaband
í garðpartíi
Hafsteinn er að sögn þeirra
sem hann þekkja, rnikill gleði-
maður og hafa hann og kona
hans verið þekkt fyrir að halda
árlega garðveislu. „Síðasta
garðveislan verður í júlí.
Hætta skal hverjum leik þá
hæst hann stendur. Við höfum
haldið þessi partí í tíu ár og
alltaf veriðglatt áhjalla. Upp-
haflega var þetta bara fyrir
starfsfólk og vini okkar, en
hefur hlaðið eitthvað utan á
sig. Einn frændi minn er í
hljómsveitinni Sniglabandið
og stundum hefur hittst þannig
á að þeir eru að spila á sama
tíma og partíið er. Þá hafa þeir
komið hingað og haldið uppi
fjörinu.
Við eigum okkar garðhýsi
úti í garði sem nýtist okkur
eins og sumarbústaður. Þang-
að förum við á sumrin og eld-
um. Það hús hefur líka nýst
vel í garðveislunum.
ww w.l ib.i is
- (f&W MífiýíWýMÍðill
friéttvi eOzyCey<z
www.lib.is
Véðrið nœstu daga
Horfur á fimmtudag:
Norðaustlæg átt og síðan
norðlæg átt, 10-15 m/s
norðvestan til, en yfirleitt
5-8 m/s sunnan- og austan-
lands. Rigning um landið
norðanvert, og slydda eða
snjókoma undir kvöld, en
þurrt að kalla sunnanlands.
Hiti 0-8 stig, hlýjast um
landið sunnanvert.
Horfur á föstudag:
Norðanátt, 8-13 m/s vestan-
til, en 5-8 austantil. Slydda
eða snjókoma um landið
At-Ánn /~xrr Olietom/Prt Pfl
þurrt suðvestanlands. Hiti
nálægt frostmarki norðan-
lands, en hiti 3-6 stig annars
staðar.
A laugardag, sunnudag
og mánudag:
Norðaustlæg átt, 5-10 m/s
og vætusamt. Áfram kalt.
10 MIDVIKUDAGUR 24. MAÍ 2000