Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.12.2000, Síða 8

Bæjarins besta - 06.12.2000, Síða 8
Framhaldsnámið var „samsu skiptafræðum og alþjóðastjo s - segir Unnar Hermannsson, forstöðumaður Islenskra verðbi Hingað til hafa verðbréfa- viðskipti ekki verið það fyrsta sem menn tengja viðVestfirði. Þó fór svo fyrir skemmstu að fyrirtækið Islensk verðbréf hf. hóf starfsemi í Bolungarvík en Unnar Hermannsson veitir skrifstofunni þarforstöðu. Nú eiga Vestfirðingar í fyrsta skipti að geta nýtt sér ráðgjöf og þjónustu sérhæfðs verð- bréfafyrirtækis heima í héraði. Mönnum frjálst að „skoða“ íslensk verðbréf hf. eru með skrifstofu í húsnæði Spari- sjóðs Bolungarvíkur. Þar geta menn m.a. leitað sér ráðlegg- inga og keypt og selt verðbréf. „Fólk þarf ekki að mæta með fulla skjalatösku af peningum á fyrsta degi - þó að vissulega sé það ekki verra“, segir Unn- ar og hlær við. „Mönnum er vitaskuld full- komlega frjálst að „skoða“, eins og það væri kallað í versl- unum, þ.e. líta inn eða slá á þráðinn og ræða horfur á mörkuðum, hvort heldur hér heima eða erlendis, og velta fyrir sér þeim möguleikum sem kunnaað verafyrirhendi. Við hjá Islenskum verðbréfum leggjum mikla áherslu á traust gagnvart okkar viðskiptavin- um. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að slíkt traust byggist ekki upp á einni nóttu, heldur kemur það til með að taka tíma. lafnframt þarf að sýna viðskiptavinum fram á að við séum traustsins verðir. Hér fyrir vestan mun ég leggja mesta áherslu á það fyrstu mánuðina að byggja upp þetta traust sem er svo nauðsynlegt íþessum viðskiptum. Árangur Islenskra verðbréfa hf. á Norð- urlandi gefur okkur hins vegar tilefni til bjartsýni. Ég held að það hafi verið löngu tímabært að bjóða þessa þjónustu á Vestfjörðum. Is- lensk verðbréf eru með höf- uðstöðvar á Akureyri og hafa vaxið mikið frá því að fyrir- tækið var stofnað árið 1987. Þetta er eina verðbréfafyrir- tæki landsins sem er með höf- uðstöðvar utan höfuðborgar- svæðisins og má með réttu kalla landsbyggðarfyrirtæki. Það er í eigu sparisjóða og stærri fjárfesta á borð við líf- eyrissjóði, einkum af Norð- urlandi, en þó einnig vest- firskra aðila. Nú starfa um tutt- ugu manns hjá fyrirtækinu á Akureyri en einungis einn hér á Vestfjörðum, enn sem komið er. Ég reikna þó fastlega með því að við bætum við okkur starfsfólki innan tíðar ef áætl- anir okkar ganga eftir." Framhaldsnám á Englandi Unnar er sonur þeirra Her- manns Hákonarsonar og Sig- urveigar Gunnarsdóttur á Isa- firði. „Ég flutti með foreldrum mínum til Isafjarðar þegar ég var sex ára gamall. Á ísafirði gekk ég í skóla þar til ég lauk stúdentsprófi hjá Birni Teits- syni árið 1994. Að menntaskóla loknum fór ég í Háskóla Islands. Þar lærði ég stjórnmálafræði og lauk BA-námi í þeim vísind- um árið 1997. í framhaldi af því fór ég í framhaldsnám á Englandi. Ég hlaut mjög góð- an námsstyrk frá breska sendi- ráðinu sem gerði mér kleift að nema við London School ofEconomics og lærði þar eins konar samsuðu af viðskipta- fræðum og alþjóðastjómmál- um. Þar lauk ég framhalds- námi og útskrifaðist með MSc.-gráðu sumarið 1998.“ Alþjóðatengsl háskóla Þegar heim til íslands var komið fór Unnar að vinna hjá alþjóðaskrifstofu Háskólans. „Þar er unnið að tengslum há- skóla um allan heim. Ég ann- aðist alls kyns stúdentaskipti og fleira er varðaði alþjóðlegt samstarf háskóla. Þegar ég hætti þar fór ég að vinna hjá menntamálaráðuneytinu. Þar vann ég sem áður að háskóla- tengdum málum.“ Athyglisvert tækifæri - En hvernig kom það til að Unnar var ráðinn forstöðu- maður Islenskra verðbréfa á Vestfjörðum? „Ég hafði heyrt að fyrirtæk- ið hefði uppi áform um að færa út kvíarnar og voru Vest- firðir m.a. nefndir í því sam- hengi. Ég setti mig í samband við fyrirtækið og spurðist fyrir um fyrirætlanir þeirra. Þessar þreifingar enduðu með því að mér var boðin staðan. Líkt og ilestir vita er ekkert offramboð af atvinnutæki- færum áVestfjörðum fyrirfólk með sérhæfða menntun. Ég sá þetta tilboð þess vegna sem athyglisvert tækifæri til að koma heim aftur og takast á við spennandi verkefni á ögr- andi vettvangi.“ Opel Corsa 3ja dyra 1 dagur kr. 989,- kr. 38,- hver km m/vsk Opel Astra 3ja dyra 1 dagur kr. 989,- kr. 42,- hver km m/vsk. Opel Astra station 1 dagur kr. 989,- kr. 48,- hver km m/vsk. AVIS Góður kostur fyrir lands- byggðarfólk Ötvegum einnig bíla erlendis Innifalið t verðum eru tryggingar og skattur Sími: 533 1090 Dugguvogur 10 - E-mail: avis@avis.is - www.avis.is Fax: 533 1091 Umboðsmaður á ísafirði: 456 3800 Hafa trú á svæðinu Aðstaða Islenskra verð- bréfa hf. í Bolungarvík var opnuð með pompi og prakt í fyrri viku. „Viðtökurnar hafa verið framar vonum og fjöl- margir hafa litið inn og kynnt sér þá kosti sem í boði eru. Þessi viðbrögð þykja mér lofa mjög góðu um framhaldið. Útibúið er rekið í góðu sam- starfi við Sparisjóð Bolungar- víkur. „Við hjá Islenskum verðbréfum hf. höfum verið mjög ánægðir með samstarfið. Allt starfsfólk sparisjóðsins og ekki síst Ásgeir Sólbergs- son sparisjóðsstjóri hafa tekið mér opnum örmum. Þetta við- mót gefur góð fyrirheit um samstarfið. Stefnt er að því að færa út kvíarnar og opna fljót- lega aðstöðu á Isafirði í sam- starfi við sameinaðan Spari- sjóð Vestfirðinga. Forsvarsmenn Sparisjóðs Vestfirðinga hafa lýst yfir áhuga sínum á samstarfi við Islensk verðbréf. Ég get fullyrt að sá áhugi er gagnkvæmur. Undirbúningsvinna er þegar hafin vegna opnunar á ísafirði og hefur þar febrúar verið nefndur. Það verður að koma í ljós hvort þær áætlanir stand- ast en allir sem að málinu koma eru staðráðnir í því að opna á ísafirði eins fljótt og hægt er. Ég hef þá trú að það verði mikill styrkur fyrir svæðið að hafa öflugan sam- einaðan sparisjóð áVestfjörð- um. Við hjá Islenskum verð- bréfum væntum a.m.k. mikils 8 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.