Bæjarins besta - 06.12.2000, Blaðsíða 12
r r
Iris Sveinsdóttir, heilsugæslulæknir í Bolungarvík og sambýliskona Lýðs Arnasonar, læknis á Flateyri
Klippir kvikinyiid ii* og tónlist-
armyndbönd í tómstundum
íris Sveinsdóttir, heilsu-
gæslulæknir í Bolungarvík,
kom til Vestfjarða fyrir nokkr-
um árum. Hún settist að á
Flateyri með sambýlismanni
sínum, Lýð Árnasyni, en þau
eru bæði læknar. Þó að hún
hafi ekki verið eins fyrirferð-
armikil í félagslífinu og maður
hennar, þá hefur hún unnið
með honum að flestum þeim
verkefnum sem hann hefur
orðið þekktur fyrir. Þannig tók
hún þátt í uppsetningu popp-
messunnar, vann að útgáfu
tveggja hljómplatna og er um
þessar rnundir að klippa kvik-
mynd eftir Lýð og Jóakim
Hlyn Reynisson, sem er ætt-
aður úr Hnífsdal.
Langt læknis-
fræðinám
Iris býr í læknisbústaðnum
í Bolungarvík með dóttur
sinni Lovísu og hundinum
Mola. „Reyndar er Moli nú
meira hjá Lýð pabba sínum.
Það er ekki verra að ala upp
hunda en börn í litlum bæjum.
Hundinn þarf að viðra oft á
dag og miklu styttra og auð-
veldara er að fara til slíkra
verka hér en fyrir sunnan.
Iris er fædd og uppalin í
Reykjavík. „Ég hef reyndar
búið hér og þar, meðal annars
í Danmörku. Ég hlaut mína
framhaldsskólamenntun í
Flensborg í Hafnarfirði og fór
síðan í Háskóla Islands að
læra læknisfræði. Foreldrar
rnínir fluttu til Svíþjóðar og
þess vegna bjó ég á stúdenta-
garði mestan þann tíma sem
ég stundaði námið í háskól-
anum.
Það tekur ógurlega langan
tíma að klára læknisfræðinám.
Sex ár situr maður í skóla og
lærir. Að þeim tíma loknum
tekur við eins árs kandídats-
nám og að lokum fimm til sex
ár í sérfræðimenntun. Sú
menntun fer reyndar að mestu
fram í formi vinnu og starfs-
reynsla er mikils metin.“
íris kaus að sérmennta sig í
heimilislækningum og segist
Glæsile^t tölvvtilboð
með ISDN
■Æ
Jf
Gateway tölva
VERÐ KR. 179.900,-
Tilboðs
800 MHz Plll örgjörvi, 133 BUS
128 Mb SDRAM vinnsluminni, PC133
20 Cb harður diskur, 7200 rpm
32 Mb TNT2 skjákort AGP
1 i6x DVD geisladrif
■ Sound Blaster hljóðkort
1 56 kb mótald
• Windows ME
• Word 2000, Works, Atlas o.fl.
• MS Intellimús með hjóli, Gateway
lyklaborð
■ Turnkassi, 4 USB tengi
• Boston Acoustics hátalarar
■ Gateway 17" EV700 skjár
Frí internetáskrift í tvo mánuði frá Símanum Internet fylgir vélinni.
Með tölvunni fylgír „tengdu sjálfur" ISDN pakki frítt með
ásamt stofn- eða breytingargjaldi fyrir ISDN.
Hægt er að velja milli þess að vera með mótald eða ISDN
kort í tölvunni.
m ' JH Ww
simmn.is Þíónustumiðstöð Símans Hafnarstræti 1, ÍSAFIRÐt • SÍMI: 450 6000 Opið alla virka daga frá 9 -18 og lau. 9. des. frá 10 -16 S í M 1N N
kunna hæfilega mikið fyrir sér
á öllum sviðum læknisfræð-
innar. „Öfugt við aðra sér-
menntaða lækna, þá hef ég
yfirborðsþekkingu á mörgum
sviðum. Oft er sagt og þá oft-
ast í gríni, að heimilislæknar
kunni „ekkert í öllu“ en ekki
„allt í engu“ eins og aðrir sér-
menntaðir læknar.
Ólíkt flestum öðrum grein-
um læknisfræðinnar er hægt
að sérmennta sig í heimilis-
lækningumhérálandi. Flestar
aðrar sérgreinar krefjast náms
utan landsteinanna og koma
menn oft ekki heim aftur fyrr
en eftir 6-10 ára útlegð.
Ég hef nýlokið sérnámi í
heimilislækningum og er bara
að bíða eftir pappírunum. Ég
hef verið mikið á flakki á und-
anförnum árum og unnið víða
á Vestfjörðum en einnig í
Hafnarfirði."
Mátulega
mikið að gera
Iris hóf störf í Bolungarvík
fyrir hálfu misseri og líkar
vel. „Smábæjarlíf virðist eiga
mjög vel við mig. Þrátt fyrir
það finn ég oft fyrir löngun til
að skreppa suður. Við Lýður
eigum hús í Hafnarfirði sem
við búum í nokkra mánuði á
hverju ári.
Það er mátulega mikið að
gera á heilsugæslustöðinni.
Ég á að heita yfirlæknir en tek
titilinn ekki nema mátulega
alvarlega. Á Heilbrigðisstofn-
un Bolungarvíkur er algjört
kvennaríki, þar starfa ein-
göngu konur. Okkur kynsystr-
unum semur mjög vel og rikir
hver yfir annarri eins og vant
er meðal kvenna. Ef einhver
mótmælir mér, þá beiti ég bara
titlinum.“
Fjölbreytt starf
Aðspurð segist íris þegar
hafa vanist bræðslulyktinni
sem óneitanlega vekur athygli
óvanra þegar komið er til Bol-
ungarvíkur. „Sú lykt angrar
mig lítið. Ég man þó eftir ein-
um strák sem kom á heilsu-
gæslustöðina beint úr beitn-
ingaskúr. Hann hafði verið að
vinna með lyktsterka beitu.
Ég verð að segja að þeirri lykt
gæti ég átt erfitt með að venj-
ast, enda þurftum við að opna
glugga og nota lyktúða eftir
heimsókn stráksa.
Ég held það sé mjög gott
fyrir heimilislækni að starfa
úti á landsbyggðinni. Tilfellin
sem þarf að sinna eru miklu
fjölbreyttari en væri ég fyrir
sunnan, því að hér eru miklu
færri sérfræðingar.“
Tónlist og
klippingar
Þau íris og Lýður hafa látið
nokkuð að sér kveða í tónlist.
„Við ákváðum á sínum tíma
að gefa út plötu áður en við
lærðum á hljóðfæri. Við gáf-
um þá út plötuna Kartöflu-
mýsnar. Síðar vann ég einnig
að gerð Karlrembuplötunnar
sem Lýður gerði með hjálp
fleiri góðra manna.Tvær plöt-
ur eru svo í bígerð um þessar
mundir en eftir er að finna
rétta tímasetningu fyrir útgáfu
þeirra.
Það er nauðsynlegt að hafa
einhveráhugamál, sérstaklega
þegar maður er í svona starfi.
Tónlistin hefur leikið stórt
hlutverk í mínu lífi. Eftir að
dóttir mín fæddist hef ég þó
meira og minna hallað mér að
gerð og klippingu hreyfi-
mynda. Til þessa hef ég aðal-
lega unnið að gerð tónlistar-
myndbanda en nú einnig kvik-
mynda í fullri lengd. Þetta get
ég nánast allt gert heima fyrir.
Stórmynd á
vestfirska vísu
íris er um þessar mundir að
klippa kvikmyndina „I faðmi
hafsins“ sem Lýður Árnason
hefur ásamt fleirum tekið upp
á Vestfjörðum.
„Sagan er að hluta til byggð
á íslenskri þjóðsögu. Um er
að ræða nútímasögu um fólk í
litlu sjávarplássi. Sagan hefst
ábrúðkaupi. Brúðurin hverfur
um nóttina hefst spennuhlaðin
og dramahlaðin atburðarás.
Mér finnst fremur neikvæð
mynd hafa verið dregin af
landsbyggðinni í íslenskri
kvikmyndagerð til þessa.
Þessa mynd tel ég aftur á móti
gefa jákvæða sýn á byggð og
mannlíf í íslensku sjávarþorpi.
Eða eins og fram kemur í texta
eftir Ólaf Ragnarsson frá Flat-
eyri: Er það hafið eða fjöllin
sem að laða mig hér að, eða er
það kannski fólkið á þessum
stað?“
12 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2000