Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.04.2006, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 26.04.2006, Qupperneq 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Miðvikudagur 26. apríl 2006 · 17. tbl. · 23. árg. Ísfirðingurinn Ásdís Svava Hallgrímsdóttir mun leika í danska spennumyndaflokkn- um Erninum. Ásdís Svava fékk hlutverk erlendrar feg- urðardísar sem heillar aðal- persónu þáttanna Hallgrím Örn. Ásdísi bauðst tækifæri til spreyta sig í áheyrnarprufu fyrir hlutverkið í kjölfar þátt- töku hennar í Ungfrú Reykja- vík þar sem hún nældi sér í annað sætið en þess má geta að hún fór með sigur af hólmi í netkosningunni. Þrjár íslenskar stúlkur fór alls í prufu fyrir hlutverk hinn- ar suðrænu Isabellu en auk Ásdísar leika í þættinum ís- lensku leikkonurnar Elva Ósk Ólafsdóttir og María Ellings- sen. Hallgrímur Örn er hálfís- lenskur rannsóknarlögreglu- maður sem býr í Kaupmanna- höfn og berst þar hann gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þátturinn hefur slegið í gegn víða um Evrópu og hlaut al- þjóðlegu Emmy-verðlaunin á síðasta ári. – thelma@bb.is Ásdís Svava fékk hlutverk í Erninum Nú er sumarið gengið í garð og von bráðar fer hitastigið að hækka og náttúran og blómin að lifna við. Annað sem fylg- ir vorinu og sumrinu eru farfuglarnir en þeir hafa verið að streyma til lands- ins að undanförnu. Á meðal þeirra tegunda sem hafa verið að koma síðustu daga eru heiðlóa, hrossagaukur, stelkur, skógarþröstur og sandlóa. Á leirunum í Önundarfirði sáust 42 sandlóur á dög- unum og þar af voru níu litmerktar. Allar voru þær merktar á hreiðri í Holts- oddanum, tvær þeirra 2004 en hinar sjö 2005. Frá þessu er sagt á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða. – gudrun@bb.is Farfuglar streyma til landsins Sandlóa. Mynd: nave.is. Nýjungar verða í uppbygg- ingu riðla í mýrarboltanum sem haldinn verður 13-14 ágúst og gefst nú liðum færi á að skrá sig í ýmsar deildir. Keppninni verður því skipt niður í fjármáladeild, verk- takadeild, sjávarútvegsdeild, tónlistar- og rokkdeild, hetju- deild, sjúkra-, lögreglu- og björgunardeild og verslunar- deild. Auk þess verður opinn riðill fyrir þau lið sem finna sér ekki samhljóm í tilgreind- um riðlum. Öllum riðlum er skipt í kvenna og karlariðla. Fyrsta mýrarboltamótið var haldið á Ísafirði haustið 2004 en Ísfirðingar kynntust íþrótt- inni í gegnum viðburðaskipta- verkefnið Usevenue sem Ísa- fjarðarbær er þátttakandi í. Þá var haldið Evrópumót í Mýr- arbolta í fyrra sem vakti mikla athygli á landsvísu. Síðan þá hefur verið stofnað félag áhugafólks um mýrarbolta sem hefur þann tilgang fyrst og fremst að auka veg og virð- ingu mýrarboltans á Íslandi. Upphaf þessarar óvenju- legu íþróttar má rekja til skóg- lendis Norður-Finnlands þar sem er að finna talsverð mýr- lendi sem myndast á auðum blettum í skóginum eftir að tré hafa verið höggvin. Á einu slíku svæði var byrjað að spila knattspyrnu á litlum velli. Í byrjun var þetta eingöngu til skemmtunar en þróaðist fljót- lega yfir í keppni þar sem lítil mót voru haldin á svæðinu. Fyrir fjórum árum var byrj- að að skipuleggja stærra mót í kringum þessa sérstæðu grein sem í dag er orðið stór við- burður í Finnlandi. Mýrarboltakeppninni skipt niður í deildir 17.PM5 5.4.2017, 10:241

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.