Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.04.2006, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 26.04.2006, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 20062 Ísfirðingurinn Lárus Mikael Knudsen Daníelsson Íslandsmeistari í hnefaleikum Ísfirðingurinn Lárus Mikael Knudsen Daníelsson varð á laugardaginn Íslandsmeistari í hnefaleikum í þungavigt 19 ára og eldri. Mótið um helgina var fyrsta Íslandsmeistaramót í hnefaleikum sem haldið er í yfir 50 ár. Keppendur voru 47 og var keppt í 11 flokkum. Á sport.is er þetta sagt um sigur- bardaga Lárusar: „Lokabardagi kvöldsins var jafn og spennandi en náði samt ekki þeim hæðum sem margir aðrir bardagar höfðu náð. Báðir voru keppendurnir var- kárir og gáfu fá opin færi á sig. Þrír dómaranna dæmdu Lárusi sigurinn eftir jafnan slag.“ Eins og áður segir var mótið það fyrsta í yfir 50 ár og einnig voru Íslandsmeist- arar í kvennaflokki krýndir í fyrsta sinn. Að mótinu nú um helgina undanskildu var síðasta hnefa- leikameistaramót var haldið 6. maí 1953 í Hálogalandi. Hnefaleikaiðkun var bönnuð á Íslandi frá 1956 til 2002 en þá voru lög um áhugamanna- hnefaleika samþykkt á Al- þingi. – gudrun@bb.is Hvíldardvöl að Löngu- mýri í Varmahlíð Sigurvon auglýsir eftir styrkþegum til hvíldardvalar að Löngumýri í Varmahlíð. Létt dagskrá er í boði, matur innifalinn og góð aðstaða til hvíldar. Einnig er hægt að fara í léttar göngur um svæðið. Boðið er upp á fimm daga dvöl frá 14.-18. ágúst nk. og eins er í boði helgardvöl. (Sjá nán- ar upplýsingar á heimasíðu félagsins http:/ /svon.blogspot.com). Sigurvon mun styrkja fimm manns til helgardvalar og fimm til lengri dvalar og einn aðstandanda hvers og eins. Styrk- þegar þurfa annað hvort að vera í meðferð eða hafa lokið meðferð á síðastliðnum 12 mánuðum. Rétt er að taka fram að hjúkr- un er ekki á staðnum og akstur til og frá staðnum er ekki innifalinn. Umsóknir skulu berast fyrir 6. maí og sendist á Sigurvon v/Löngumýri, Suður- götu 9, 400 Ísafirði eða á netfang félagsins sigurvon@krabb.is. Sæluhelgarlagið í ár heitir „Hugsum heim“ en það var valið á skemmtun í félags- heimilinu á Suðureyri á sum- ardaginn fyrsta. Lagið er eftir Siggeir Siggeirsson en texti eftir Hildi Guðbjörnsdóttur. Helgi Þór Arason syngur lagið en svo vill til að hann var kosinn bjartasta vonin í söng- keppni á Sæluhelginni fyrir fáeinum árum. Þau eiga öll ættir okkar að rekja til Suður- eyrar við Súgandafjörð. Tíu manna dómnefnd, skip- uð einum fulltrúa frá hverju byggðu bóli frá Arnarfirði til Álftafjarðar auk sigurvegara keppninnar á síðasta ári og fulltrúa ungu kynslóðarinnar, sá um valið á laginu ásamt áhorfendum í sal. Mat dóm- nefndarinnar hafði 60% vægi en val áhorfenda 40 %. Sex lög bárust í keppnina og voru þau flutt á skemmtuninni. Mansavinir efndu til laga- keppninnar en þeir standa að sumarhátíðinni Sæluhelginni sem er einn stærsti viðburður ársins á Suðureyri. – thelma@bb.is Helgi Þór syngur Sæluhelgarlagið í ár Jólapakki sem sendur var sendur frá Ísafirði fyrir jólin 1987 var opnaður á sama stað á páskunum 2006. Forsaga þessa undarlega máls er sú að árið 1997 fannst jólapakki sem sendur hafði verið 10 árum áður. Pakkinn var upp- haflega sendur til viðtakanda í Hafnarfirði, en þegar hann fannst var hann í gámi austur á Hornafirði. Pakkinn var sendur eftir þetta áfram til viðtakanda sem þá var búsettur í Bandaríkjunum. Hann flutti til Íslands í fyrra og hefur búið á Austurlandi, en ákvað að skella sér vestur á Skíðaviku og Aldrei fór ég suður og hafði í för með sér pakkann, sem hann hafði enn ekki opnað. „Ég sendi bróður mínum þennan jólapakka fyrir öllum þessum árum og eftir þessa löngu og undarlegu ferð pakkans tók bróðir minn ekki annað í mál en að ég yrði viðstödd þegar hann yrði opnaður. Það var því gert nú um páskana“, segir Áslaug Jensdóttir. – thelma@bb.is Jólagjöfin opnuð eftir nær 20 ár Jólapakki sem sendur var árið 1987 var loksins opnaður á Ísafirði um páskana. Myndir: Áslaug Jensdóttir. Innihald pakkans fékk loks að njóta dagsins ljóss eftir 19 ár. á Ísafirði er gert ráð fyrir íbúðabyggð frá Ásgeirsgötu, meðfram safnasvæði í Neðsta- kaupstað og niður í Suður- tanga. Endanleg útfærsla á lóðunum er ekki tilbúin, en fyrst og fremst er reiknað með nokkrum lóðum fyrir einbýl- ishús meðfram fjörunni neðan Neðstakaupstaðar. Þegar hafa borist fyrirspurnir um lóðir á þessu svæði, að sögn bæjar- stjóra, en er Örn Elías sá fyrsti til að skrifa formlega undir yfirlýsingu þess efnis að hann hafi áhuga á lóð. „Við reiknum með því að rammaskipulagið verði af- greitt frá nefnd á morgun og fari fyrir umhverfisnefnd á miðvikudaginn“, segir Hall- dór. „Þá verður hægt að vinna aðal- og deiliskipulag. Gangi allt eftir áætlun ætti deiliskipu- lag að vera tilbúið með haust- inu og hægt að úthluta lóðum í framhaldi af því.“ Örn Elías hefur verið búsett- ur í Reykjavík síðastliðin misseri en er að sögn æstur í að komast vestur sem allra fyrst. –eirikur@bb.is Mugison vill byggja einbýlishús og hljóðver í Neðstakaupstað Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, og Örn Elías undirrituðu viljayfirlýsinguna á mánudag. Norskt selveiðiskip tengir Ísafjörð við Titanic Alþjóð kannast við Tit- anic sem fórst á svo hörmu- legan hátt í jómfrúarferð sinni 1912, færri vita þó að tengsl eru á milli farþega- skipsins fræga og Ísafjarðar. Jafnvel hafa verið orðaðar hugmyndir um að koma á fót Titanicsafni á Ísafirði. „Fyrir um 16 árum voru staddir á Ísafirði tveir menn sem voru að rannsaka tengsl Titanic við Ísafjörð og þeir stungu upp á því að sett yrði á stofn Titanic safn hérna. Þeir voru að rannsaka hvort norskt skip sem orðað hefur verið í tengslum við slysið á Titanic hafi verið statt á Ísafirði í apríl 1912. Síðan fóru þeir héðan til Noregs“, segir Áslaug Jensdóttir á Ísafirði sem hefur verið í nokkru sambandi við rann- sóknarmennina í gegnum tölvupóst síðan þeir voru hér Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar, undir- ritaði á mánudag viljayfirlýs- ingu þess efnis að Örn Elías Guðmundsson, sem betur er þekktur undir nafninu Mugi- son, fengi úthlutað lóð á svæð- inu neðan Neðstakaupstaðar undir einbýlishús og hljóðver. Samkvæmt drögum að rammaskipulagi fyrir eyrina vestra í heimsókn. „Engin staðfesting fékkst á því hvort skipið hafi verið í ná- grenni við Titanic þegar það sökk en ég frétti það líka eftir krókaleiðum að eitt- hvað hefði verið fjallað um þetta í norsku blaði og fyrir nokkru fann ég upplýsingar um þetta á netinu“, segir Áslaug. Tengslin eru með þeim hætti að haft er eftir farþeg- um á Titanic að sést hafi ljós af öðru skipi þegar skip- ið var að sökkva og talið er að leyndardómsfulla fleyið hafi verið The Californian. En einnig er talið að annað skip en The Californian hafi verið í nágrenni við Titanic þetta örlagaríka kvöld 12. apríl 1912 og löngum hefur því verið haldið fram að það skip hafi verið norska sel- veiðiskipið Samson. 17.PM5 5.4.2017, 10:242

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.