Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.04.2006, Síða 4

Bæjarins besta - 26.04.2006, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 20064 Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur skipað sr. Skúla Sigurð Ólafs- son í embætti sóknarprests í Keflavíkurprestakalli. Tíu sóttu um embættið en ekki náðist samstaða innan val- nefndar. Meirihlutinn mælti með sr. Skúla og lagði biskup Íslands síðan til við dóms- málaráðherra að sr. Skúli Sig- urður yrði skipaður sóknar- prestur í Keflavík. Í kjölfarið á niðurstöðu val- nefndar var hafin undirskrifta- söfnun á netinu til stuðnings séra Sigfúsi B. Ingvasyni, presti við Keflavíkurkirkju, en skoða ákvörðun sína þar sem hún endurspeglaði ekki vilja sóknarbarna. Voru listarnir afhentir dóms- og kirkjumála- ráðherra fyrir páska. Sr. Skúli Sigurður Ólafsson lauk embættisprófi í guðfræði árið 1996 frá HÍ og var vígður prestur við Ísafjarðarpresta- kall vorið 1997. Hann var skipaður prestur Íslendinga í Svíþjóð með aðsetur í Gauta- borg vorið 2000. Hann hefur stundað framhaldsnám við Gautaborgarháskóla og guð- fræðideild Háskóla Íslands. Sr. Skúli er settur sóknarprest- ur á Ísafirði. hann var einn umsækjenda um embættið. Alls skrifuðu um 4400 manns undir áskorun til valnefndarinnar að endur- Skúli S. Ólafsson. Skúli skipaður sókn- arprestur í Keflavík Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra Fagnar Útflutningsverðlaunum 3X stál Einar K. Guðfinnsson skrif- ar lítinn pistil á heimasíðu sína þar sem hann fagnar því að 3X stál hafi fengið Útflutn- ingsverðlaun forseta Íslands á dögunum. „Það er nóg að segja bara eitt um þetta mál. Þeir áttu það svo sannarlega skilið. Ef ekki þeir, þá hverjir? [...] 3 X Stál er mikið óskabarn og gott dæmi um framtak ein- staklinga. Og verkin þeirra eru ein sönnun þess hvernig sjáv- arútvegurinn leitar stöðugt að tæknilausnum á viðfangsefn- um sínum og gerir það að verkum að við erum með öfl- ugan sjávarútvegur sem dafn- ar í sambýli við góð iðnfyrir- tæki og aðrar þekkingargrein- ar. Svo eru þeir enn sönnun þess hvernig öflug iðnaðar- fyrirtæki , sem í senn eru þekk- ingargrein og alþjóðleg at- vinnustarfsemi geta haslað sér völl af landsbyggðinni og út um allan heim. Það skiptir ekki hvað síst miklu máli“, segir meðal annars í pistli Einars á ekg.is. Jóhann Jónasson og Albert Marzelíus Högnason eigendur fyrirtækisins tóku við verð- laununum við hátíðlega at- höfn á Bessastöðum á dögun- um. 3X-Stál fékk í viðurkenn- ingarskyni verðlaunagrip sér- hannaðan af Ólöfu Nordal og viðurkenningarskjal. – eirikur@bb.is Einar K. Guðfinnsson. Fjölmenni við opnun kosn- ingaskrifstofu Í-listans Fjöldi manns var saman kominn framan við kosn- ingaskrifstofu Í-listans, þeg- ar hún var formlega opnuð að Hafnarstræti 14 á sumar- daginn fyrsta. Frambjóðend- ur hins sameiginlega fram- boðs Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra og óháðra í Ísafjarðarbæ, buðu nýbakaðar pönnukökur og kakóbolla í tilefni dagsins og Lúðrasveit Tónlistarskól- ans lék létt lög. Fólk staldr- aði við og spjallaði um horf- ur og tíðindi í pólitíkinni framundan. Margir litu inn á skrifstof- una á opnunardaginn og var létt yfir mönnum við upphaf kosningabaráttunnar sem nú er formlega hafin. Af sama tilefni var vefsíða framboðs- ins, ilistinn.is, formlega kynnt. Enn fremur var opinberað merki listans, stílfært Í, sem hannað er af Pétri Guðmunds- syni myndlistarmanni og kennara á Ísafirði. „Sumar og vetur frusu sam- an í nótt og það veit á gott“, segir oddviti listans, Sigurð- ur Pétursson, á heimasíðu framboðsins. „Með sól í sinni og bjartsýni tökumst við á við verkefni næstu vikna: Að ná völdum í bæj- arstjórn Ísafjarðarbæjar og móta framtíð okkar og bæj- arfélagsins.“ – thelma@bb.is Nýr bátur Ferðaþjónustunn- ar Grunnavíkur ehf. kom til heimahafnar sinnar í Bolung- arvík í gærkvöldi. Nýi bátur- inn sem heitir Ramóna eins og sá gamli er 22 brúttólestir og verður útbúinn til að flytja 30 farþega. Einnig verður um borð öflugur krani til hífinga á tækjum og vörum. Báturinn er af gerðinni Viksund og er smíðaður úr trefjaplasti í Nor- egi 1988. Aðalvél hans ef af gerðinni Scania og er gang- hraðinn um 12 sjómílur. Áætl- að er að báturinn verði tilbúinn til þjónustu um miðjan maí. Í sumar verður Grunnavík með áætlunarferðir á föstu- dögum og sunnudögum frá Bolungarvík til Grunnavíkur, Jökulfjarða og Hesteyrar, sem bætist við áætlun vegna fjölda beiðna um það. Þá er einnig verið að kanna áhuga og þörf á áætlunarferðum til Aðalvík- ur. Siglt verður á aðra staði eftir þörfum og eftirspurn, m.a. til Hornvíkur sem kom sterk inn hjá Grunnavík sl. sumar. Þá er einnig hægt að panta aukaferðir og sérferðir, t.d. í flutninga með byggingar- efni og hvaðeina sem þarf að flytja sjóleiðina. Að öllu jöfnu verður siglt frá Bolungarvík en lítið mál er að sigla frá annarri höfn í auka- eða sér- ferðum ef þess er óskað, hvort sem er frá Súðavík, Reykja- nesi, Bæjum eða jafnvel Ísa- firði. – gudrun@bb.is Ný Ramóna komin til Bolungarvíkur Ný Ramóna siglir inn til Bolungarvíkur. 17.PM5 5.4.2017, 10:244

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.