Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.04.2006, Page 6

Bæjarins besta - 26.04.2006, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 20066 RITSTJÓRNARGREIN Hvatning til dáða ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 · Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Eiríkur Örn Norð- dahl, símar 456 4694 og 845 2685 eirikur@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4680 og 849 8699, thelma@bb.is – Guðrún Ása Magnúsdóttir, símar 456 4693 og 692 2972, gudrun@bb.is · Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is · Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. · Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X ,,Þetta er mjög mikil upphefð og hvetur okkur til dáða. Þetta er viðurkenning fyrir starfs- fólk fyrirtækisins um að við höfum haft erindi sem erfiði og fengið einhverju áorkað í störf- um okkar sem eftir hefur verið tekið. Þess vegna eru þessi verðlaun okkur sérstaklega hjart- fólgin,“ sagði Jóhann Jónasson í samtali við Morgunblaðið eftir að hann hafði, ásamt Alberti Marzellíusi Högnasyni, félaga sínum og meðeiganda að 3X-Stál ehf, tekið við Útflutnings- verðlaunum forseta Íslands á Bessastöðum síðasta vetrardag. Fyrirtækið 3X-Stál, sem stofnað var 1994, byggði starfsemina í upphafi á hönnun og framleiðslu á tækjabúnaði úr ryðfríu stáli og þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki, sér í lagi rækjuverksmiðjur, en á þeim árum var umhverfi rækjuiðnaðar með ólíkum hætti miðað við það sem nú er. Fyrirtækinu óx skjótt fiskur um hrygg. Árið 1997 hófst útflutningur til Kanada, sem fram til þessa hefur verið einn helsti markaður fyrirtækisins. Sem dæmi um vöxt og viðgang 3X-Stál má nefna að frá stofnun þess hefur starfsmannafjöldinn tífaldast og á þessu ári er reiknað með að starfsmenn verði orðnir 40 að tölu. Í téðu viðtali segir Jóhann að framleiðsluvörur og tækja- og vélbúnaðarlausnir fyrirtækisins megi vel nýta út fyrir svið sjávarfangs og nefnir sem dæmi að þær henti vel fyrir kjötvöru, ávexti og grænmeti: ,,Við sjáum tækifæri okkar liggja í matvælageiranum í Evrópu, einkum í Bretlandi, Hollandi, Danmörku og Þýskalandi,“ segir Jóhann og að markaðsstarfið á Evrópusvæðinu sé þegar farið að skila sér. Valur Valsson, formaður úthlutunarnefndar verðlaunanna, gat þess í ræðu sinni við verðlaunaafhendinguna að 3X-Stál fengi verðlaunin fyrir góðan árangur á skömmum tíma í sölu og markaðssetningu á sérhönnuðum tækjum og tækjalausnum fyrir matvælaiðn- aðinn. Hann kvað 3X-Stál góðan fulltrúa hérlendra fyrirtækja sem byggðu rekstur sinn á íslenskri reynslu og þekkingu og hefði náð að laga hana að þörfum alþjóðamarkaðarins. Auk verðlaunagrips, listaverk eftir eftir Ólöfu Nordal, og verðlaunaskjal er verðlauna- hafa heimilt að nota merki Útflutningsverðlaunanna á kynningarefni fyrirtækisins næstu fimm árin. 3X-Stál efh er hér með óskað til hamingju með þá verðskulduðu viðurkenningu sem felst í Útflutningsverðlaunum forseta Íslands. Fyrirtæki eins og 3X-Stál, sem náð hafa fótfestu á alþjóðlegum markaði fyrir dugnað, þrautseigju og samheldni eru vestfirsku at- vinnulífi og samfélagi ákaflega mikilvæg. Vestfirskar byggðir þurfa á fleiri slíkum fyrirtækum að halda. s.h. ÚTBOÐ Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið „Útivistarsvæði á Flateyri.“ Ofangreindu verki skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. júlí 2007. Út- boðsgögn eru til sölu á kr. 3.000.- hjá Ísafjarðarbæ, Hafnarstræti 1, Ísafirði. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 9. maí nk. kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tæknideild. Ísafjarðarbæjar. Guðni Geir Jóhannesson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar og efsti maður á B-lista skrifar Framsókn er kjölfestan í Ísafjarðarbæ Núna þegar þessu kjörtíma- bili lýkur á ég að baki tveggja kjörtímabila eða samtals átta ára starf í bæjarstjórn Ísafjarð- arbæjar, allan tímann í meiri- hluta. Fyrra kjörtímabilið var ég eini fulltrúi Framsóknar- flokksins í bæjarstjórn en í kosningunum fyrir fjórum ár- um náði flokkurinn tveimur bæjarfulltrúum. Ég leyfi mér að trúa því, að störf mín að málefnum Ísafjarðarbæjar og íbúa hans kjörtímabilið þar á undan hafi ekki spillt fyrir þeim góða árangri sem fram- boð okkar náði þá. Auk þess að starfa í bæjar- stjórn þessi átta ár hef ég einn- ig átt sæti í bæjarráði allan tímann. Formaður þess hef ég verið allt þetta kjörtímabil og helminginn af því síðasta, eða sex af síðustu átta árum. Hin tvö árin á liðnu kjörtímabili var ég forseti bæjarstjórnar. Síðustu átta árin hef ég átt sæti í stjórn Fjórðungssam- bands Vestfirðinga og verið formaður hennar síðustu fjög- ur árin. Reynsla mín á vettvangi sveitarstjórnarmála síðustu tvö kjörtímabilin verður því að kallast mjög staðgóð. Allan þennan tíma hefur starfað hér í Ísafjarðarbæ ábyrgur og öfl- ugur meirihluti sömu flokka, Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks. Samstarfið hef- ur verið í alla staði gott og hefur orðið bænum okkar til farsældar, eins og flestir sem fylgst hafa með málum ættu að þekkja. Enn líður að kosningum. Enn verða verk okkar lögð í dóm kjósenda. Mjög mikil- vægt er að íbúar Ísafjarðar- bæjar hyggi vel að störfum bæjarstjórnar á liðnum árum og verji ekki atkvæðum sínum döfinni neinar stórvirkjanir eða stóriðja á borð við álver og munu ekki verða, enda eru hreinleiki vestfirskrar náttúru annars vegar og mannauður og menntun hins vegar ein- hverjar helstu auðlindir okkar á nýrri öld. Þessar auðlindir viljum við nýta okkur af skyn- semi og framsýni. Á undan- förnum árum höfum við unnið að virkjun þeirra með mark- vissum hætti. Þeirri uppbygg- ingu viljum við halda áfram. Jafnframt verðum við að hyggja að iðnaði sem reyndar gæti vel kallast stóriðja á mælikvarða okkar litlu sam- félaga hér fyrir vestan. Sam- kvæmt þeirri mælistiku eru bæði Þörungaverksmiðjan á Reykhólum og Kalkþörunga- verksmiðjan á Bíldudal stór- iðja þeirra byggða, þótt ekki séu bræddir þar málmar. Yfirleitt er ekki talið gæfu- legt að skipta um hest í miðri á. Framsóknarfólkið sem starfað hefur að bæjarmálum Ísafjarðarbæjar á liðnum ár- um, hvort heldur er í bæjar- stjórn og bæjarráði eða í fjöl- mörgum nefndum bæjarins, hefur sýnt að það er traustsins vert. Framsókn hefur mjög lengi verið kjölfestan á þeim vettvangi í Ísafjarðarbæ. Unn- ið er að mörgum viðfangsefn- um sem brýnt er að fylgja vel eftir. Halda verður siglingunni áfram með öruggum búnaði. Í komandi kosningum er rétt að minnast þess, að illa getur farið ef kjölfestuna vantar. Á næstunni mun ég í stutt- um greinum, hvort heldur er á þessum vettvangi eða öðrum, fjalla nánar um verk meiri- hluta bæjarstjórnar Ísafjarðar- bæjar á því kjörtímabili sem nú er senn á enda. Jafnframt mun ég líta til þeirra mála sem eru í deiglunni og bíða okkar á komandi kjörtímabili. Kjósendur í Ísafjarðarbæ bið ég að huga mjög vel að hvoru tveggja. Ef þið gerið það, ágætu kjósendur, þá þurfum við sem stöndum að B-listanum engu að kvíða. Og vonandi ekki þið heldur. án ábyrgðar og umhugsunar. Tilraunastarfsemi í þeim efn- um getur orðið dýrkeypt. Breytingar breytinganna vegna geta reynst afdrifaríkar. Greitt atkvæði verður ekki aft- ur tekið. Allir vita að landsbyggðin stendur í stöðugri og erfiðri varnarbaráttu. Það gildir auð- vitað líka um Ísafjarðarbæ og alla Vestfirði. Hér eru ekki á Guðni Geir Jóhannesson. Nýi Baldur hefur siglingar Hin nýja Breiðafjarðarferja Baldur hefur hafið áætlunar- ferðir sínar yfir Breiðafjörð. Síðasta ferð gömlu Breiða- fjarðarferjunnar var farin um síðustu mánaðamótin, og hafa minni skip Sæferða ehf. sinnt öðrum flutningum en bíla- flutningum á milli Stykkis- hólms og Flateyjar síðan gamli Baldur fór. Fyrsta ferðin sem farin var á mánudag gekk vel. Að því er fram kom í frétt- um NFS var fullbókað og bið- listi frá Brjánslæk til Stykkis- hólms. Skipið var keypt frá Hollandi og kom til heima- hafnar á Stykkishólmi á laug- ardag. Nýi Baldur er mun stærra skip en sá gamli, eða 62 metrar á lengd miðað við 40 metra gamla Baldurs. Hann tekur 45-50 fólksbifreiðar og 300 farþega en sá gamli tekur 19 fólksbíla og 200 farþega. Ganghraði skipsins er 13,5- 14 sjómílur og mun ferðin milli Brjánslækjar og Stykkis- hólms styttast um 50 mínútur með tilkomu hins nýja Bald- urs. Ferjan siglir nú samkvæmt áætlun tvær ferðir á dag hvora leið. Fleyið er það áttunda í röðinni til að bera nafnið Bald- ur. – thelma@bb.is Breiðafjarðarferjan Baldur. 17.PM5 5.4.2017, 10:246

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.