Bæjarins besta - 26.04.2006, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 20068
Sælkeri vikunnar · Rannveig Þorvaldsdóttir á Ísafirði
Karrýkjúklingur með hnetum og döðlum
Sælkeri vikunnar býður
að þessu sinni upp á þrjá
góða rétti. Í fyrsta lagi er
karrýkjúklingur með hnet-
um og döðlum, sem er
bragðgóður og framandi
réttur. Í öðru lagi er það
heimatilbúinn Toblerone ís
og síðast en ekki síst Krydd-
brauð ehf. sem er einfalt,
hollt og fljótlegt.
Karrýkjúklingur með
hnetum og döðlum
4 kjúklingabringur krydd
aðar með salti og pipar
100 g smjör til að steikja
bringurnar
200 g brytjaðar döðlur
150 g muldar kasjúhnetur
2 tsk milt madraskarrý (frá
Rajah)
5 dl matreiðslurjómi
sósujafnari til að þykkja
sósuna
Steikið kjúklinginn í smör-
inu á pönnu í stutta stund (rétt
til að loka kjötinu) og setjið
svo í eldfast fat. Látið döðlur
og hnetur malla í smjörinu á
pönnunni í nokkrar mínútur
og blandið þá karrýinu saman
við. Hellið rjómanum út í
blönduna og látið malla dálitla
stund. Þykkið sósuna með
sósujafnara. Hellið sósunni
svo yfir kjúklingabringurnar í
fatinu og eldið í ofni við
175°C í 20 mínútur. Lækkið
þá hitann niður í 150°C og
eldið áfram í 15-20 mínútur.
Berið fram með hrísgrjónum,
fersku salati og brauði.
Toblerone ís
6 eggjarauður
1 bolli púðursykur (stór
bolli)
1 tsk. vanillusykur
½ lítri þeyttur rjómi
100 g smátt saxað Toble
rone
Þeytið eggjarauður, púður-
og vanillusykur mjög vel sam-
an. Blandið þeyttum rjóma og
tobleroneinu varlega saman
við eggjarauðublönduna. Setj-
ið í hringlaga form og frystið.
Berið fram með ferskum
ávöxtum.
Kryddbrauð ehf.
1½ dl. hveiti
1 tsk. matarsódi
2 tsk. kakó
½ tsk. kanill
½ tsk. engifer
½ tsk. negull
1½ dl haframjöl
1½ dl púðursykur
1½ dl AB mjólk/eða súr
mjólk
1 egg
Hrærið allt saman og setjið
deigið í smurt aflangt mót.
Bakið neðst í ofni við 180°C
í 45-50 mín.
Ég skora á Lilju Rafney
Magnúsdóttur á Suðureyri
að koma með góða upp-
skrift.
Fimm börn
fermast á Ísafirði
Fimm börn koma til með að fermast í Ísafjarðar-
kirkju nk. sunnudag 30. apríl kl. 14:00. Hér að neðan
er listi yfir allar fermingarnar auk nafna fermingar-
barnanna og foreldra þeirra.
Sunnudagurinn 30. apríl
kl. 14:00 í Ísafjarðarkirkju
María Sigríður Halldórsdóttir, Hafraholti 38, 400 Ísafirði
Foreldrar: Guðfinna Hreiðarsdóttir, Halldór Halldórsson
Jóhann Mar Sigurðsson, Miðtúni 45, 400 Ísafirði
Foreldrar: Guðný Hólmgeirsdóttir, Sigurður Mar Óskarsson
Aníta Björk Jóhannsdóttir, Fjarðarstræti 59, 400 Ísafirði
Foreldrar: Randí Guðmundsdóttir, Jóhann D. Svansson
Alexander Már Hermannsson, Austurvegi 12 400 Ísafirði
Foreldrar: Kristrún Einarsdóttir, Hermann Björnsson,
Brynjar Már Eðvaldsson
Jóhanna Stefánsdóttir, Kjarrholti 7, 400 Ísafirði
Foreldrar: Steinunn Sölvadóttir, Stefán Símonarson
Skeytasalan í skátaheimilinu opin frá klukkan 13:00
- 16:00. Einnig er hægt að hringja inn skeytapantanir
í síma 456 3282.
Starfsmaður
/ meðeigandi
Starfsmaður/meðeigandi óskast í versl-
unina Legg og skel að Austurvegi 2 á Ísa-
firði.
Allar nánari upplýsingar veitir Svana í
versluninni og í símum 456 4070 og 456
3212.
Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi
Stingur upp á 3-4 milljarðar verði lagð-
ir í atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum
Kristinn H. Gunnarsson,
þingmaður Framsóknarflokk-
sins fyrir Norðvesturkjör-
dæmi segist efa að önnur eins
breyting hafi orðið á nokkru
landssvæði síðustu áratugina
og átt hefur sér stað á Vest-
fjörðum, og að tími sé kominn
til þess að horfast í augu við
þær staðreyndir sem við blasi
um þróun mála á Vestfjörðum
og bregðast við í samræmi
við þær. Þetta kemur fram í
pistli sem Kristinn skrifar á
heimasíðu sína, kristinn.is. Þá
segir hann að hugsa mætti sér,
til að byrja með, að lagðar
yrðu svipaðar fjárhæðir til at-
vinnumála á Vestfjörðum og
Norðurlandi vestra og kostar
að skapa 10 störf í stóriðju,
eða sem samsvarar um 3-4
milljörðum króna. „Ég er viss
um að ná megi góðum árangri
með það fé til ráðstöfunar og
að innlend sem erlend fyrir-
tæki verði fús til samstarfs
við stjórnvöld og reiðubúin
að leggja fram sjálf mikla pen-
inga til atvinnusköpunar á
landssvæðinu“, segir enn
fremur í pistlinum.
Þá segir einnig: „[Á Vest-
fjörðum] voru lengi hæstu eða
meðal þeirra hæstu tekjurnar
á landinu en það er breytt.
Árið 1998 voru meðaltekjurn-
ar á Vestfjörðum í 3. sæti á
landinu og 90% af meðaltekj-
unum á höfuðborgarsvæðinu,
en sex árum seinna voru meðal
atvinnutekjurnar á Vestfjörð-
um fallnar niður í 6. sæti og
aðeins um 80% af meðaltekj-
um höfuðborgarsvæðisins.
Störfunum fækkaði á þessi
tímabili um tæplega 10% eða
um 460, það samsvarar ríflega
einu álveri. Fyrst og fremst
fækkaði störfunum í fiskveið-
um, þau voru 860 talsins en
hafði fækkað í 520 árið 2004.
Þá fækkaði um 120 störf í
fiskvinnslu. Í raun kom ekkert
annað í staðinn fyrir störfin í
sjávarútveginum sem hurfu.
Tekjurnar í fiskveiðunum á
Vestfjörðum eru þær lægstu á
landinu miðað við upplýsing-
ar Hagstofunnar. Meðal at-
vinnutekjurnar fyrir fiskveiðar
voru 3.3 milljónir króna á
Vestfjörðum árið 2004, sem
er aðeins 53% af meðaltekjum
á höfuðborgarsvæðinu fyrir
fiskveiðar, en þar voru tekj-
urnar hæstar. Þetta er alvarleg
þróun þegar haft er í huga
hversu stór þáttur fiskveiðar
er í atvinnulífi fjórðungsins.“
– eirikur@bb.isKristinn H. Gunnarsson.
Hagnaður hjá Hvetjanda
Hagnaður Eignarhaldsfé-
lagsins Hvetjanda hf., nam
rúmlega 800 þúsund krónum
á síðasta ári að því er kom
fram á aðalfundi félagsins sem
haldinn var fyrir stuttu. Eigið
fé félagsins í árslok var
96.995.000 kr. og þar af er
hlutafé 96.696.000 kr. Félagið
á nú hluti í 5 félögum, með
bókfærðri hlutafjáreign sam-
tals að upphæð 22 milljónir
króna. Starfsemi félagsins fer
vaxandi og er stefnt að öflun
nýrra fjárfesta og aukningu
hlutafjár í félaginu á þessu
ári, en samkvæmt hluthafa-
fundi þá er heimilt að hækka
hlutafé félagsins í 200 millj-
ónir króna.
Tvær tillögur að breyting-
um á samþykktum sjóðsins
voru teknar fyrir á aðalfund-
inum. Þeirri fyrri, sem fól í
sér að sett yrði inn ákvæði í
samþykktirnar þess efnis að
10% af hagnaði ársins skyldi
ráðstafað í sérstakan styrktar-
sjóð, var vísað til stjórnar til
frekari skoðunar. Seinni til-
lagan var samþykkt en hún
fól í sér breytingu á 4. gr.
samþykkta félagsins um að
hver hlutur sé 10.000 krónur
breytist í: „Hver hlutur er að
fjárhæð kr. 1,00“.
Á fundinum var jafnframt
upplýst að stjórn félagsins hef-
ur ákveðið að lækka lágmarks-
viðmiðunarmörk ávöxtunar-
kröfu á framlagt hlutafé fé-
lagsins úr 20% niður í 5%, en
áskilur sér þó rétt til að gera
hærri ávöxtunarkröfu til verk-
efna, háð áhættumati stjórnar.
Þá var kosin ný stjórn og vara-
stjórn félagsins og var kosn-
ingin einróma. Í aðalstjórn
voru kosnir: Guðni A Einars-
son, Sigurjón Kr. Sigurjóns-
son og Agnar Ebenesersson. Í
varastjórn voru kosin: Björn
Davíðsson, Kristín Hálfdánar-
dóttir og Fylkir Ágústsson.
Stjórn félagsins kom saman
að loknum aðalfundi og skipti
með sér verkefnum. Guðni A
Einarsson var endurkjörinn
formaður stjórnar og einnig
var varaformaður hennar Sig-
urjón Kr. Sigurjónsson endur-
kjörinn. Framkvæmdastjóri
félagsins er Eiríkur Finnur
Greipsson og endurskoðandi
félagsins er Löggiltir endur-
skoðendur Vestfjörðum ehf.,
Guðmundur E Kjartansson
löggiltur endurskoðandi.
Eignarhaldsfélagið Hvetj-
andi hf. var stofnað í janúar
2004 af Ísafjarðarbæ. Tilgang-
ur félagsins er að taka þátt í
stofnun og starfsemi annarra
félaga sem rekin eru á grund-
velli arðssemissjónarmiða,
fela í sér nýmæli í atvinnulífi
og/eða eru mikilvægur þáttur
í uppbyggingu atvinnulífs á
norðanverðum Vestfjörðum.
Eignaraðilar að félaginu í dag
eru Ísafjarðarbæjar (31,71%),
Byggðastofnun (57,32%),
Súðavíkurhreppur (1,55%),
Sparisjóður Vestfirðinga
(5,1%) og Lífeyrissjóður
Vestfirðinga (4,24%). Heild-
arhlutfé félagsins er tæpar 97
milljónir króna.
– gudrun@bb.is
Næsta
tölublað BB
kemur út
fimmtudaginn
4. maí nk.
17.PM5 5.4.2017, 10:248