Bæjarins besta - 26.04.2006, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 9
Framboðsfrestur
vegna almennra sveitarstjórnar-
kosninga þann 27. maí 2006
Framboðsfrestur vegna almennra sveitarstjórnarkosninga er fara fram
laugardaginn 27. maí 2006, rennur út kl. 12:00 á hádegi þann 6. maí
2006. Öll framboð skulu tilkynnt skriflega til yfirkjörstjórnar eigi síðar
en kl. 12:00 á hádegi þann dag. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum
þann dag í fundarsal bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar milli kl. 10:00 og
12:00, en einnig má skila framboðslistum til formanns yfirkjörstjórnar,
Björns Jóhannessonar hdl., Hafnarstræti 1, Ísafirði, fyrir þann tíma.
Sérstök athygli er vakin á ákvæðum 3., 21., 22., 23., og 25. gr. laga nr.
5/1998 um kosningar til sveitarstjórna, en þar segir:
3. gr. laga nr. 5/1998:
„Kjörgengur í sveitarstjórn er hver sá sem á kosningarrétt í sveitarfé-
laginu skv. 2. gr. og hefur ekki verið sviptur lögræði.“
21. gr. laga nr. 5/1998:
„Þegar sveitarstjórnarkosningar eiga að fara fram skulu öll framboð
tilkynnt skriflega til yfirkjörstjórn þeirri sem í hlut á eigi síðar en kl.
12:00 á hádegi þann dag þegar þrjár vikur eru til kjördags.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega fullt nafn fram-
bjóðanda, kennitölu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti
leikið á því hverjir í kjöri eru.“
22. gr. laga nr. 5/1998:
„Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum
eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal
og fylgja skrifleg yfirlýsing um stuðning við listann frá kjósendum í
hlutaðeigandi sveitarfélagi. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu
hans og heimili. Hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista
við hverjar kosningar. Ekki er gerð krafa um meðmælendur í sveitar-
félögum með 100 íbúa eða færri.
Lágmarksfjöldi meðmælenda skv. 1. mgr. skal vera sem hér segir:
a) í sveitarfélagi með 101 – 500 íbúa, 10 meðmælendur.
b) í sveitarfélagi með 501 – 2.000 íbúa, 20 meðmælendur.
c) í sveitarfélagi með 2.001 – 10.000 íbúa, 40 meðmælendur.
d) í sveitarfélagi með 10.001 – 50.000 íbúa, 80 meðmælendur.
e) í sveitarfélagi með 50.001 og fleiri íbúa, 160 meðmælendur.
Hámarkstala meðmælenda skal vera tvöföld tilskilin lágmarkstala.
Frambjóðandi getur afturkallað samþykki sitt til framboðs fram til
þess að frestur til að skila framboðum rennur út.
Kjósandi, sem mælt hefur með framboðslista, getur ekki afturkallað
stuðningsyfirlýsingu sína eftir að framboð hefur verið afhent yfirkjör-
stjórn.
23. gr. laga nr. 5/1998:
„Hverjum framboðslista skal fylgja til yfirkjörstjórnar skrifleg til-
kynning frá frambjóðendum listans um það hverjir tveir menn séu um-
boðsmenn listans. Ef umboðsmenn listans eru ekki tilgreindir eða nauð-
synjar hamla umboðsmanni eru frambjóðendur í aðalsætum hver um
sig, réttir umboðsmenn hans. Þessir umboðsmenn gæta réttar lista
þeirra sem þeir eru fyrir við skoðun og úrskurðun listanna. Þeir gefa þær
upplýsingar um listana er yfirkjörstjórn óskar. Þeim er heimilt að vera
viðstaddir eða gefa öðrum umboð til að vera viðstaddir kosningar á hin-
um einstöku kjörstöðum og við talningu atkvæða. Skyldir eru um-
boðsmenn að hlíta þeim fundarreglum sem kjörstjórnir setja.“
25. gr. laga nr. 5/1998:
„Yfirkjörstjórn úrskurðar um kjörgengi. Úrskurði hennar má skjóta til
sveitarstjórnar. Úrskurð sveitarstjórnar má kæra á sama hátt sem fyrir er
mælt í 93. gr. ef úrskurður fellur um að fulltrúaefni hafi misst kjörgengi.“
Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar.
Kómedíuleikhúsið hefur
staðið í viðræðum í vetur við
einn þekktasta einleikara
Bandaríkjanna síðustu tvo
áratugi um að taka þátt í ein-
leikjahátíðinni Act alone, en
hann hefur einnig verið að
hasla sér völl í Hollywood síð-
ustu ár. Hann hefur samið
fjölda einleikja sem hafa unn-
ið til virtra verðlauna og einnig
hefur hann samið skáldsögur
og kvikmyndahandrit. Ekki er
gefið upp nafn leikarans á
heimasíðu Kómedíuleikhúss-
ins en þó er sagt frá því að
hann hefur leikið í myndum á
borð við Talk Radio, Under
Siege 2, Deconstructing Harry
og Dolores Claiborne. Meðal
leikstjóra sem hann hefur unn-
ið með eru Woody Allen, Ro-
bert Altman og Oliver Stone.
„Allt stefnir í að kappinn
komi til landsins og sýni á
ACT ALONE í sumar. Nú er
bara að krossa fingur og í byrj-
un maí má vænta frétta af því
hver kappinn er“, segir á
komedia.is. Fólk er hvatt til
að senda hugmyndir að því
hver stjarnan sé á netfang
leikhússins komedia@ kome
dia.is og þeir sem giska rétt fá
bókina Íslenskir einleikir í
verðlaun.
Átta íslenskir leikir verða
sýndir á hátíðinni Act alone í
sumar og tveir erlendir, frá
Danmörku og Króatíu. Af ís-
lenskum leikjum á hátíðinni
má nefna Mike Attack, Grýlu-
saga, Ævintýrið um augastein
og Dimmalimm. Einnig verð-
ur boðið upp á Masterclass
námskeið í leiklist undir stjórn
Ole Brekke skólastjóra The
commedia school í Kaup-
mannahöfn. Act alone verður
haldin í þriðja sinn 29. júní til
2. júlí í Hömrum á Ísafirði.
Sem fyrr en ókeypis inn á alla
leiki hátíðarinnar.
– thelma@bb.is
Þekktur Hollywood-
leikari á Act alone?
Andrésar andar leikarnir á Akureyri
Ísfirðingar fengu sex gull
Andrésar Andar leikarnir
fóru fram á Akureyri um síð-
ustu helgi og var þar fjöldi
vestfirskra keppenda. Keppni
hófs á fimmtudag og eins og
áður hefur komið fram hlutu
Ísfirðingar þann daginn þrenn
gullverðlaun, þrenn silfur-
verðlaun og þrenn bronsverð-
laun. Þann daginn nældu
Hólmvíkingar sér einnig í eitt
silfur og eitt brons. Á föstudag
var keppt í svigi, stórsvigi og
skíðagöngu með frjálsri að-
ferð og hirtu Vestfirðingar
fjölda verðlauna í síðast-
nefndu greininni. Keppt var í
nokkrum aldursflokkum og
fengu Ísfirðingar þrenn gull-
verðlaun, þrenn silfurverðlaun
og fern bronsverðlaun. Hólm-
víkingar hrepptu ein silfur-
verðlaun og tvenn bronsverð-
laun einnig í skíðagöngunni.
Á laugardag var keppt í svigi,
stórsvigi og boðgöngu þar
sem A-sveit Ísfirðinga hafnaði
í öðru sæti bæði í flokki 9-12
ára og 13-14 ára, tvenn silfur-
verðlaun þar.
Ísfirðingar hlutu því í heild
sex gull, átta silfur og sjö
brons. Gullverðlaunahafar eru
Katrín Ósk Einarsdóttir, Sig-
rún Arnarsdóttir og Sólveig
G. Guðmundsdóttir sem allar
fengu tvö gull. Silfurverðlaun
hlutu Dagur Benediktsson,
Arna Kristbjörnsdóttir, Hákon
Ari Halldórsson, Hekla Dögg
Guðmundsdóttir og Daníel
Ágúst Einarsson. Í boðgöngu-
sveitinni 9-12 ára voru Hákon
Ari Halldórsson, Arna Krist-
björnsdóttir og Sigrún Arnars-
dóttir. Í flokki 13-14 ára voru
Rannveig Jónsdóttir, Egill Ari
Gunnarsson og Sólveig G.
Guðmundsdóttir í boðgöngu-
sveit Ísfirðinga. Bronsverð-
launahafar eru Vilmar Ben
Hallgrímsson, Hekla Dögg
Guðmundsdóttir, Rannveig
Jónsdóttir, Arna Kristbjörns-
dóttir og Egill Ari Gunnars-
son.
Hólmvíkingar fengu tvö
silfur og þrjú brons. Silfur-
verðlaunahafi eru Branddís
Ösp Ragnarsdóttir og brons-
verðlaunahafar eru Ólafur
Orri Másson og Kolbrún Ýr
Karlsdóttir. Nánari upplýsing-
ar um úrslit má finna á síðunni
www.skidi.is.
– gudrun@bb.is
Glímusveit íþróttafélags-
ins Harðar á Ísafirði vann
Íslandsmeistaratitilinn í
unglingaflokki í sveita-
glímu Íslands sem fór fram
í íþróttahúsi Hagaskóla í
Reykjavík á laugardag.
Glímumenn Harðar unnu
stórsigur á sveit HSK/KR
og fengu 12 vinninga gegn
fjórum hjá sameiginlegri
sveit Héraðssambandssins
Skarphéðins og KR-inga.
KR urðu Íslandsmeistarar
í karlaflokki. Harðarmenn
tóku þátt í fyrsta sinn í
fyrra og urðu þá í öðru
sæti en það var í fyrsta
sinn sem lið frá Vestfjörð-
um var skráð til keppni.
Þessi forna íþrótt hefur
aukið mjög fylgi sitt á
norðanverðum Vestfjörð-
um eftir að íþróttafélagið
Hörður stofnaði glímu-
deild á síðasta ári.
– thelma@bb.is
Íslandsmeistarar
unglinga í sveitaglímu
Harðverjunum var boðið á Bessastaði að móti loknu. Hér sjást þeir ásamt forseta Íslands.
17.PM5 5.4.2017, 10:249