Bæjarins besta - 26.04.2006, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 200612
STAKKUR SKRIFAR
Stefnumótun eða flokkadrættir?
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Smáauglýsingar
Síðast var vikið að ánægjulegri þróun sem hófst með Rokkhátíð alþýðunn-
ar, Aldrei fór ég suður. Þar er á ferð kærkomin gerjun í menningarlífinu á
Ísafirði og í Ísafjarðarbæ, reyndar á Vestfjörðum öllum. Löng hefð er fyrir
menningu á Ísafirði og reyndar víðar á fjörðunum. Framhaldsskólar hafa
lengi verið á Ísafirði og tónlistarlíf með miklum blóma, kórar og tónlistar-
kennsla og leiklistarlíf segja sögu um traustan grunn. Endurreisn Edinborgar-
hússins glæðir vonir um bætta aðstöðu, að ógleymdu Safnahúsinu.
Stutt er í kosningar til sveitarstjórna. Fagna ber að sveitarfélögum hafi nú
fækkað í 79 á landinu öllu. Enn eru þau of mörg, þar á meðal á Vestfjörðum,
þótt eitthvað hafi miðað í átt til fækkunar í Strandasýslu, sem nú telur færri
en 800 íbúa alls og ætti að lágmarki að vera eitt sveitarfélag, en þau verða
fjögur eftir kosningar. Það er á skjön við skynsemi og nútíma stjórnunarhætti
að enn skuli vera fjögur sveitarfélög sem liggja að Ísafjarðardjúpi. Á norð-
anverðum Vestfjörðum ætti að vera eitt sveitarfélag. Kannski má marka
stefnubreytingu af hálfu ríkisvaldsins, sem hefur tekið ákvörðun um að
leggja til færslu lögreglustjórnar á Vestfjörðum undir einn lögreglustjóra.
Auðvitað greinir menn á um flestar ákvarðanir. Þýðingarlaust er að berj-
ast gegn tímans þunga straumi og neita að laga sig að aðstæðum sem nú-
tíminn býður upp á. Þó verða sveitarstjórnarkosningar í Súðavíkurhreppi,
Ísafjarðarbæ og Bolungarvík. Úr verða þrjár máttlitlar sveitarstjórnir í stað
einnar styrkari. Ólíkt því sem er uppi á teningnum í menningarlífinu er lítið
nýtt í stjórnmálalífinu á Vestfjörðum. Ekki ber mjög á því að verið sé að
kortleggja framtíðina, sem þó hefur sjaldan verið brýnna verkefni. Eigum
við þó allt undir því að það eða þau stjórnmálaöfl sem halda um valdataum-
ana að liðnum kosningum 27. maí í vor hafi skýra framtíðarsýn. Fátt bendir
til að íbúum á Vestfjörðum fjölgi við óbreyttar aðstæður. Því miður er lík-
legra að enn fækki.
Hvar finnst stefnumótun varðandi samþættingu sjávarútvegs og
ferðaþjónustu svo dæmi sé tekið? Vart er við því að búast eðli máls sam-
kvæmt að hér rísi háskóli. Efla þarf samstarf við háskóla annars staðar á
landinu, sem eru of margir til að standa undir nafni. Fyrst og fremst er það
Háskóli Íslands sem leita verður til. Er nýtt að finna í stefnuskrám flokk-
anna þriggja í Ísafjarðarbæ? Er einhver munur á þeim? Þessu fæst ekki
svarað fyrr en kosningabaráttan er að fullu komin í gang. Um önnur sveit-
arfélög fjórðungsins gildir að vegna smæðar sinnar hafa þau ekki möguleika
til að hafa þó þau áhrif sem hið stærsta getur haft. En munu þau áhrif koma
í ljós fyrir kosningar? Eða blasa hinir venjubundnu flokkadrættir við kjós-
endum?
Sveitarstjórnarkosningarnar í Bolungarvík
Anna Guðrún líklega í sérframboð
Anna Guðrún Edvardsdóttir
segir að málefnaágreiningur
sé ástæða þess að hún fari
ekki í framboð með Sjálfstæð-
isflokknum í Bolungarvík,
eins og til stóð. Anna segir að
ákveðnar skoðanir hennar hafi
ekki notið hljómgrunns innan
framboðsins og vísar þar með-
al annars til greinar sem hún
skrifaði á vef bb.is þar sem
hún fjallar um framtíðarsýn
sína fyrir Bolungarvíkurkaup-
stað. „Ég gat ekki fundið að
þær áherslur sem ég var með
hlytu hljómgrunn innan flokk-
sins“, segir Anna.
„Mér finnst að auki að það
sé hlutverk bæjaryfirvalda að
hafa trú á samfélaginu og
smita því út frá sér, og mér
finnst það ekki hafa tekist í
þessari bæjarstjórn. Það hefur
ekki tekist að fá fólk til að
öðlast trú á framtíðarbúsetu í
bæjarfélaginu. Þetta eru mínar
áherslur, og maður verður að
fylgja sínum hugsjónum sama
hvaða flokki maður er í. Ég
get ekki verið í framboði á
forsendum einhvers annars en
mínum eigin.“
Anna er þó ekki af baki
dottin þó hún fari ekki fram
með Sjálfstæðisflokknum og
segir að verið sé að vinna að
því að fara í sérframboð í Bol-
ungarvík, og þó ekkert sé enn
ákveðið í þeim efnum sé lík-
legt að af því verði.
Í skoðanakönnun Sjálfstæð-
isflokksins í Bolungarvík sem
nota átti til að hjálpa til við
uppstillingu á lista lenti Anna
í öðru sæti með 66 atkvæði í
fyrsta sætið á móti 72 atkvæð-
um Elíasar Jónatanssonar, en
fékk þó 97 atkvæði í 1.-2.
sæti, svo ljóst má vera að ein-
hvers stuðnings nýtur Anna í
plássinu. Elías og Anna lýstu
á sínum tíma miklum fögnuði
með niðurstöður skoðana-
könnunarinnar þegar blaðið
ræddi við þau.
Í áðurnefndri grein sem
Anna vísaði til að finna mætti
ýmis ágreiningsefni sín við
Sjálfstæðisflokkinn í Bolung-
arvík, sagði Anna m.a. „Mín
framtíðarsýn er að fjölga íbú-
um bæjarins. En það er ekki
nóg að vera með þessa sýn,
það þarf einnig að vinna að
henni. Og hvernig gerum við
það? Jú, með því að setja
okkur markmið og varða leiðir
að þeim markmiðum í öllum
málaflokkum. Þessar leiðir og
vörður þurfa að vera öllum
bæjarbúum ljósar og allir
þurfa að stefna að sama marki.
Þess vegna er mikilvægt að
auka hið svokallaða íbúalýð-
ræði með því að halda íbúa-
þing þar sem hinn almenni
bæjarbúi tekur þátt í þessari
stefnumótun. Fólk vill hafa
áhrif á sitt nærumhverfi og
finna að tekið er tillit til skoð-
ana og viðhorfa þess og það
þarf að gefa því tækifæri til
þess. Þá þarf einnig að auka
upplýsingastreymi til bæjar-
búa.“ – eirikur@bb.is
Óska eftir tvíbreiðu rúmi og
dýnum gefins eða fyrir lítið.
Upplýsingar gefur Halldóra í
síma 866 4424 og Kristinn í
síma 895 3068.
Óskum eftir 4-5 herb. íbúð eða
húsi til leigu frá júní/júlí í sum-
ar. Uppl. gefa Skarphéðinn eða
Guðríður í síma 456 3170.
Er með laus þrjú pláss frá miðj-
um júlí. Halldóra dagamanna,
símar 456 2268 og 866 4424.
Óska eftir 160 cm gönguskíð-
um og skóm nr. 39-40. Upplýs-
ingar í síma 861 4333.
Til sölu er Toyota RAV4, árg.
01, ekinn 58 þús. km, beinskipt-
ur. Uppl. í síma 456 3954.
Funi
Keyrt á gömlu
pokasíunum
Nýir pokar í pokasíu-
virki Funa eru væntanlegir
í maí að sögn Jóhanns
Birkis Helgasonar bæjar-
tæknifræðings Ísafjarðar-
bæjar. „Við ætlum að keyra
á þessum gömlu þar til nýju
koma, það er verið að vinna
í því. Stöðin er stopp núna
en fer í gang á morgun“,
segir Jóhann. Síur hefur
vantað síðan síðsumars í
fyrra.
Búist var við því að að-
eins tæki nokkrar vikur að
panta og setja upp nýja
poka en það hefur nú dreg-
ist um fleiri mánuði og ku
ástæðan vera sú að ekki
var vitað hvað olli skemm-
dunum á pokunum sem
komu göt á. Nú hefur kom-
ið í ljós að tæknilegar
breytingar þurfti að gera
hjá stöðinni til að sagan
endurtæki sig ekki og það
hefur nú verið gert. Poka-
sían saman stendur af sex-
tíu pokum inn í stórum stál-
hólki og síar búnaðurinn
ryk úr útblæstrinum.
– gudrun@bb.is
Metfjöldi erlendra þátttak-
enda í Fossavatnsgöngunni
Metþátttaka er hjá erlendum
skíðagörpum í Fossavatns-
göngunni í ár en 25 hafa skráð
sig til leiks. Þar á meðal eru
margir færustu íþróttamenn
sem sérhæfa sig í lengri göng-
um á heimsvísu. Má þar nefna
sem dæmi liðsmenn Team
Fast frá Noregi sem staðið
hafa sig vel í alþjóðlegum
mótum á þessu misseri og
Mary Beth Tuttle og David
Christopherson sigurvegara
Minnesota Skinnyski Series
mótaraðarinnar í Bandaríkj-
unum.
Erlendu keppendurnir eru
væntanlegir til Ísafjarðar á
fimmtudag. Undirbúningur
stendur nú sem hæst en Fossa-
vatnsgangan fer fram 29. apríl.
Fossavatnsgangan er elsta
skíðamót sem enn er við lýði
á Íslandi og hefur jafnframt
verið fjölmennasta skíða-
göngumót landsins undanfar-
in ár. Fyrsta Fossavatnsgang-
an fór fram á annan Páskadag
árið 1935. Keppendur voru
sjö talsins og var brautin mæld
18 km. Hefð er fyrir því að
gangan fari fram fyrsta laugar-
dag í maí og markar hún jafnan
lok skíðavertíðarinnar hér á
landi.
Gangan er nú í fyrsta sinn á
mótaskrá Alþjóðlega skíða-
sambandsins (FIS) og þarf
sambandið reglum samkvæmt
að eiga fulltrúa á staðnum sem
lítur eftir því að öll fram-
kvæmd mótsins sé í samræmi
við alþjóðlegar kröfur. Hefur
Bretinn Paddy Field verið
skipaður eftirlitsmaður göng-
unnar en hann hefur um
margra ára skeið verið for-
maður þeirrar nefndar FIS sem
fer með málefni almennings-
móta í skíðagöngu og hefur í
gegnum tíðina verið eftirlits-
maður á mörgum af stærstu
og virtustu skíðagöngumótum
heims.
Skráning fer fram á heima-
síðu göngunnar og þeir sem
vilja gerast sjálfboðaliðar og
aðstoða við framkvæmd
göngunnar hafi samband við
Jónas Gunnlaugsson göngu-
stjóra í Bókhlöðunni.
– thelma@bb.is
Frá Fossavatnsgöngunni í fyrra.
Í tilefni sjötugsafmæla
og fleira halda hjónin
Guðrún Fanný Björns-
dóttir og Birkir Friðberts-
son í Birkihlíð, kaffifagnað
í Friðarsetrinu í Holti, 5.
maí nk. Hús verð-ur kl.
20:00 og gestum fagnað
meðan húsrúm leyfir.
Væntanlegir gestir og
aðrir sem ef til vill vilja
sýna hug sinn með gjöf-
um, eru góðfúslega
minntir á að vinátta verð-
ur ekki metin eftir verð-
mæti gjafa og það er hið
besta mál að koma án
þeirra, en hafið góða
skapið meðferðis.
Verið velkomin og eigum
glaða stund.
Gunný og Birkir.
Afmæli
Kirkjustarf
Guðsþjónusta og ferming
verður í Ísafjarðarkirkju
nk. sunnudag kl. 14:00.
Aðalsafnaðarfundur
Ísafjarðarsóknar verður
haldinn í Safnaðarheimili
Ísafjarðarkirkju sunnudag-
inn 30. apríl kl. 16:00.
Venjuleg aðalfundarstörf
og önnur mál. Stjórnin.
17.PM5 5.4.2017, 10:2412