Bæjarins besta - 26.04.2006, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 200616
Maður án drauma er
maður án framtíðar
Magni ásamt Carlo Ancelotti þjálfara AC Milan.
Magni Fannberg Magnússon er yngsti þjálf-
arinn í efstu deild í knattspyrnu á landinu en
hann þjálfar meistaraflokk Ungmennafélags
Grindavíkur. Hann er fæddur á Ísafirði og ólst
upp í Súðavík og á Ísafirði þar sem hann kynnt-
ist fótboltanum fyrst með Boltafélagi Ísafjarðar.
Hann dreymir að verða þjálfari á erlendri
grundu og er nýkominn frá Ítalíu þar sem hann
fylgdist með þjálfunaraðferðum liðsins AC
Milan. Bæjarins besta ræddi við Magna um
boltann, Ísafjörð og draumana.
– Hefurðu alltaf haft áhuga
á fótbolta?
„Alveg frá því að ég var
lítill, ætli ég hafi ekki verið
um átta ára þegar ég byrjaði
fyrst í boltanum. Ég byrjaði
svo um tíu ára að æfa með BÍ
og síðan þá hefur fótbolti átt
mig allan, nánast frá A til Ö.
Þegar ég var tvítugur fluttist
ég suður og fór að æfa með
HK í Kópavogi. Ég spilaði
þar í eitt ár og fór svo að
þjálfa. Þar þjálfaði ég í sex ár
eða þar til ég fór yfir til Grin-
davíkur þar sem ég er aðstoð-
arþjálfari í dag.“
– Var markmiðið alltaf að
verða þjálfari eða þróaðist það
bara þannig?
„Alveg frá því að ég var 14-
15 ára var það inni í myndinni
að verða þjálfari. Ein af fyr-
irmyndum mínum var Trausti
Hrafnsson fyrir vestan, sem
hafði áhrif á mig alveg frá því
að ég kom á fyrstu fótbolta-
æfinguna. Hann fór með mig
á fyrsta fótboltamótið mitt og
var þjálfarinn minn á mikil-
vægum tímapunkti á ungl-
ingsárunum. Það var líka hann
sem reddaði mér starfi hjá HK
eftir að ég kom fyrst suður.
Hann hefur alltaf verið mér
innan handar og verið mín
fyrirmynd frá því að ég var
lítill. Fyrst sem leikmaður og
svo þegar maður sá hann fara
í skólann á Laugavatni og
koma svo heim að þjálfa fetaði
maður í fótspor hans. Ég á
honum margt að þakka. Einn-
ig hefur Jón bróðir minn haft
mikil áhrif á mig og stutt mig
í gegnum tíðina, enda mikill
áhugamaður um knatt-
spyrnu.“
– Hvert er svo framtíðar-
markmiðið? Er þjálfari ævi-
starfið eða er eitthvað annað
sem heillar?
„Ég reikna með því að þjálfa
eins lengi og ég get. Í dag er
ég ekki nema 27 ára og farinn
að þjálfa í efstu deild
á Íslandi. Ég á
því ekki
von á öðru en að vera áfram
þjálfari en maður veit aldrei.
Markmiðið er að komast út
og þjálfa. Menn halda náttúru-
lega að maður sé klikkaður að
segja svona hluti en svoleiðis
er það. Ég hef mín gildi í lífinu
og hef það að markmiði að
láta þennan draum rætast.
Þannig vinn ég smátt og smátt
að millimarkmiðunum og
þannig gerast hlutirnir.“
Í heimsókn
hjá AC Milan
– Magni fór nýlega til Ítalíu
og fylgdist með þjálfun liðsins
AC Milan.
„Ég fór til Ítalíu í boði AC
Milan sem er eitt stærsta fót-
boltalið í heiminum og fékk
að fylgjast með starfinu þar.
Klúbburinn er frekar sérstakur
fyrir það að hann hefur allt
sem til þarf. Allt frá því að
geta sinnt meiðslum leik-
manna og að geta sjálfir fylgst
vel með næringarástandi og
líkamsástandi þeirra. Þeir hafa
sérstaka þjálfunarstofu þar
sem sjúkraþjálfar, íþrótta-
fræðingar og fleiri starfa. Þetta
var alveg einstök heimsókn
og sérstaklega gaman þar sem
það fer ekkert hver sem er
þarna inn.“
– Hvernig kom það til að
þér var boðið?
„Þar er stóra leyndarmálið
og ég má ekki greina frá því
en það var fyrir liðsinni góðra
manna. En það stendur til að
fara í fleiri svona ferðir. T.d.
hefur mér verið boðið að koma
til Inter Milan sem er hitt stóra
liðið í Mílanóborg og fleiri
stórra liða. Kannski maður láti
verða af því haust. Þetta er
virkilega mikil viðurkenn-
ing fyrir mig. Mark-
miðið er svo að
komast
að í svona klúbb sem annað
hvort aðalþjálfari eða til að-
stoðar.“
– Hvernig upplifun var það
að heimsækja svona stóran og
heimsfrægan klúbb?
„Það var alveg magnað,
þetta var alveg eins og draum-
ur en mér leið þó bara eins og
ég væri heima hjá mér. Þetta
var akkúrat eins og ég vil hafa
hlutina.
Ég hitti leikmennina og
Ancelotti þjálfara þeirra. Ég
var inni á innsta kopp hjá
þeim, borðaði með leikmönn-
unum og var inni í þreksalnum
eða á grasinu þegar þeir voru
að æfa. Ég fór einnig á æfingar
með Franco Baresi sem er einn
þekktasti leikmaður í heimi
og hefur unnið nánast allt sem
hægt er að vinna. Hann er
fyrrverandi fyrirliði ítalska
landsliðsins og gömul kempa
hjá AC Milan. En eins og ég
sagði í viðtali á NFS nýlega
þá sannaðist sú fleyga setning:
sérfræðingur er venjulegur
maður, nema bara frá útlönd-
um. Þessir menn eru ekkert
öðruvísi en hinn meðal Vest-
firðingur.“
– Getur þú nýtt það sem þú
lærðir í Ítalíu hér heima fyrir
með íslenskum fótboltamönn-
um?
„Í rauninni er hægt að gera
allt sem þeir gera þarna úti á
Íslandi, eini munurinn er sá
að þeir hafa marga milljarða á
bak við sig. Ef það væri þannig
á Íslandi þá er engin spurning
að við gætum gert þetta.“
– Hvað fannst leikmönn-
unum í liðinu sem þú þjálfar
um að þú værir að fara út?
„Þeim fannst það, eins og
flestum öðrum, alveg frábært.
Ég færði þeim treyju sem ég
lét leikmenn AC Milan árita
sérstaklega fyrir þá. Þeir seldu
hana á uppboði á herrakvöldi
og fengu nærri 200 þúsund
krónur fyrir. Stakkavíkur-
bræður held ég að hafi keypt
treyjuna og núna er hún á upp-
boði á netsíðunni fotbolti.net
til styrktar krabbameinssjúk-
um börnum. Virkilega gott
framtak hjá þeim enda heið-
ursmenn.“
– Er markmiðið að verða
þjálfari í Ítalíu?
„Nei, Norðurlöndin og Eng-
land heilla mig meira. Það er
allt öðruvísi menningarheim-
ur í Ítalíu og Austur- og Suður-
Evrópu. Ég myndi frekar vilja
vera í Englandi, Þýskalandi
eða á Norðurlöndunum. Þar
eru hlutirnir aðeins líkari því
sem við eigum að venjast hér
heima. Ég mundi hins vegar
ekki segja nei ef menn frá AC
Milan myndu hringja. Ég á
fullt erindi í þennan heim og
ætla mér þarna út, fyrir mér er
það meira spurning um hve-
nær en hvort. Ég stefni á að
gera sama og jafnvel betur en
íslenskir þjálfarar hafa gert á
erlendri grundu t.d Guðjón
Þórðarsson, Logi Ólafs og
Teitur Þórðarsson.“
– Hversu lengi ertu samn-
ingsbundinn í Grindavík?
„Ég gerði þriggja ára samn-
ing við Grindavík í haust og
eins og staðan er í dag sé ég
ekki fram á annað en að standa
við það. En maður veit aldrei
hvað verður. Ég gæti þess
vegna misst vinnuna á morg-
un. Ég tel það henta mér betur
að vera aðalþjálfari heldur en
aðstoðarþjálfari. Fyrirkomu-
lagið í Grindavík er þannig að
við erum þrír með liðið. Sig-
urður Jónsson er nokkurs kon-
ar framkvæmdastjóri og sér
um allt sem snýr að leikmönn-
um en ég og Milan Stefán
Jankovic erum aðstoðarþjálf-
arar og sjáum miklu meira
um vinnuna á vellinum. Það
er minn draumur að komast
einhvers staðar í aðalþjálfara-
stöðu og ef það kemur upp
áður en þessu lýkur þá myndi
ég skoða það vel. Það væri
mjög gaman að þjálfa annað
hvort HK eða BÍ sem fyrsta
liðið. Ef menn væru
klárir með ein-
h v e r j a
peninga og tilbúnir að leggja
á sig það sem þarf á Ísafirði
þá væri það engin spurning
að ég myndi skoða það vel.
Þeir hafa haft samband við
mig með þjálfun í huga en
mér hefur fundist andrúms-
loftið í bænum og áhugi þeirra
sem hafa hringt ekki hafa
verið mikill. Það hafa því alltaf
verið meira spennandi kostir í
boði.
HK gerði mikið fyrir mig,
ólu mig upp sem þjálfara og
gáfu mér mörg tækifæri, þeir
eiga mikið í mér og mikið
inni hjá mér, mér þykir virki-
lega vænt um þá.
Ég ber einnig miklar taugar
til míns gamla félags BÍ og
fylgist alltaf vel með þeim þar
sem margir vinir mínir hafa
spilað með þeim síðustu ár.“
Fyrirmyndir
nauðsynlegar
„Ég fæddist í Súðavík og
eyddi mínum fyrstu árum þar.
Fjölskyldan fluttist svo til
Ísafjarðar þegar ég var um 8
ára gamall. Ég bjó fyrst á Eyr-
inni en svo fluttumst við upp
á Seljalandsveg við fótbolta-
völlinn. Það má eiginlega
segja að ég hafi alltaf verið
þar. Fyrir utan að æfa þar,
vann ég á vellinum á sumrin
og fékk ég vinnu við að þjálfa
eitt sumar áður en ég fór suður.
Það kom aldrei neitt annað til
greina en að verða fótbolta-
þjálfari. Maður hugsaði ekki
um annað en fótbolta og þegar
maður var ekki sjálfur að spila
horfði maður á fótbolta. Þetta
var bara það sem lífið snerist
um. Það er ekki fyrr en fyrst í
dag að maður er farinn að læra
eitthvað í skóla í staðinn fyrir
að hugsa bara um boltann.
Þegar ég var yngri, um
1992-93, lágum við félagarn-
ir, ég, Gummi Guðjóns núver-
andi leikmaður og þjálfari hjá
BÍ og Heiðar Birnir núverandi
þjálfari hjá KR, niðri á velli
og fylgdumst með eldri strák-
unum spila. Við hlupum og
náðum í boltann fyrir þá og
áttum okkur virkilega fyrir-
myndir. Það var fjallað um
leikina í blöðunum og BÍ gaf
út árblað. Við áttum okkur
drauma um að spila og þjálfa
lið eins og Fram, Val og KR,
við hlustuðum jafnvel á lýs-
ingar frá leikjum í vasaútvarpi
á grasinu við gamla sjúkra-
húsið. Í dag eru þessir draumar
enn til hjá manni en töluvert
stærri um sig. Þetta virðist
vera á undanhaldi á Ísafirði.
Maður flettir kannski Bæj-
arins besta eða fer inn á bb.is
og það er aldrei nein umfjöllun
um leiki og sáralítil umfjöllun
um íþróttir. Mér finnst ekkert
skrítið að íþróttirnar gangi illa
hjá meistaraflokkunum ef
börnin eiga sér enga drauma
né fyrirmyndir. Bæjarfélagið
í heild sinni þarf að skoða
þessa hluti og skapa fyrir-
myndir fyrir yngri kynslóðina.
Með þessu er ég ekki að segja
að þeir sem spili með mfl BÍ í
dag séu ekki vel að því komnir
að vera fyrirmyndir yngri kyn-
slóðarinnar. En því miður talar
árangurinn sínu máli og eins
og hann hefur verið undan-
farið, að liðið sé neðarlega í
neðstudeild er ekki ásættan-
legt og ég tel að við getum
gert miklu betur. Ég hef boðist
til þess að koma vestur með
þekkta leikmenn, stór nöfn í
fótboltaheiminum, til þess að
ræða við krakkana en það hef-
ur ekki reynst vera neinn raun-
verulegur áhugi fyrir því. Ég
myndi gera allt sem ég gæti
fyrir fótboltann á Ísafirði og
veit af öðrum gömlum leik-
mönnum sem eru sama sinnis.
Eitthvað þarf að gera. Það er
algjör skandall að 5000 manna
samfélag eins og er á svæðinu
skuli ekki vera með lið í alla-
vega næstefstu deild. Tökum
t.d. Ólafsvík sem dæmi, þar
sem 6-800 hræður búa en þeir
eru þó með lið í efstu deild.
Það er alveg ljóst að hlutirnir
gerast ekki ef menn eru enda-
laust vælandi og kennandi
hvor öðrum um hvernig farið
hefur. Það þarf bara að bretta
upp ermarnar og hefja róttæka
vinnu.
Í íþróttum, og bara í lífinu
öllu, verður fólk að eiga sér
drauma og geta litið upp til
einhvers. Einhvern tímann las
ég að maður sem á sér ekki
drauma á sér ekki framtíð. Það
á sérstaklega við í íþróttum,
maður verður að setja sér
markmið og æfa til að ná þeim.
Annars gerist ekki neitt.“
– En það er inni í myndinni
hjá þér að koma aftur til Ísa-
fjarðar ef rétta tækifærið skildi
bjóðast?
„Já, það er alveg möguleiki
og sérstaklega á næstu árum
þar sem ég stefni að því að
vera kominn í úrvalsdeildina
fyrir eða um þrítugsaldurinn
svo það eru ekki mörg ár til
stefnu fyrir Ísfirðinga að nýta
sér starfskraftana. En menn
verða þá að hugsa aðeins
stærra og vera tilbúnir að
vinna. Ég hef ekki áhuga á að
starfa í því andrúmslofti sem
mér finnst gusta fyrir vestan
núna. En eins og ég segi þá
eru það fleiri en ég sem vilja
17.PM5 5.4.2017, 10:2416