Bæjarins besta - 26.04.2006, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 200618
mannlífið
Ábendingar um efni sendist til Thelmu
Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Í dag er miðvikudagurinn
26. apríl, 117. dagur ársins 2006
Þennan dag árið1834 fórust tvö skip og fjórtán bátar í
skyndilegu ofsaveðri á Faxaflóa og með þeim 42 menn.
Þennan dag árið 1944 kom gamall öskuhaugur í ljós
þegar verið var að grafa fyrir húsi við Tjarnargötu í
Reykjavík. Þar fundust bein úr svínum, geirfugli og
fleiri dýrum. Jafnvel er talið að þetta hefði verið ösku-
haugur Ingólfs Arnarsonar.
Þennan dag árið 1966 kom Akraborgin í síðasta sinn
til Borgarness. Þá hafði áætlunarferðum með skipum
milli Reykjavíkur og Borgarness verið haldið uppi í
hálfan áttunda áratug.
Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Hvað er að frétta? · Kristbjörn Sigurjónsson, einn skipuleggjenda Fossavatnsgöngunnar
Á þessum degi fyrir 18 árum
Þungt hljóð...
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Helgarveðrið
Horfur á föstudag:
Suðvestlæg átt og súld vestanlands, en léttskýjað um
landið austanvert. Hiti 6 til 12 stig.
Horfur á laugardag:
Suðlæg átt með rigningu, mest sunnanlands
og vestan. Hiti 5 til 10 stig.
Horfur á sunnudag:
Suðlæg átt með rigningu, mest sunnanlands
og vestan. Hiti 5 til 10 stig.
Horfur á mánudag:
Suðlæg átt með rigningu, mest sunnanlands.
Spurning vikunnar
Ert þú búin(n) að gera upp við þig hvað þú
ætlar að kjósa í kosningunum í maí?
Alls svöruðu 499. – Já sögðu 341 eða 68%
– Nei sögðu 158 eða 32%
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Stefnir í metþátttöku í göngunni
„Við erum sannfærðir um að ef ekki verður strax gripið til
róttækra ráðstafana hvað varðar stöðu fiskvinnslunnar þá
stefnir í hreint þjóðargjaldþrot,“ sagði Einar Oddur Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri Hjálms hf. á Flateyri, að loknum sex
klukkustunda löngum fundi í Félagi vestfirskra fiskvinnslu-
stöðva sem haldinn var á Ísafirði í gær. Á fundinum var rætt
um afkomu fiskvinnslunnar og sagði Einar að þungt hljóð
hefði verið í mönnum enda væri þolinmæði margra á þrotum.
„Við vildum bera saman bækur okkar um afkomunam til að
sannreyna okkar eigin tölur og bera okkar saman við aðra
landshluta. Niðurstaðan varð sú að við fengum staðfest, sem
reyndar vissum fyrir, að staða fiskvinnslunnar er vægast sagt
skelfileg,“ sagði Einar Oddur ennfremur. „Við vorum sammála
um að fiskvinnslan stæði nú verr en hún hefur staðið um ára-
bil, jafnvel þótt farið sé tvo áratugi aftur í tímann.“
Iðnaðarmaður-
inn heimafyrir
Því hefur stundum verið
haldið fram um iðnaðar-
menn að þeir séu latir
heima hjá sér þó þeir
séu þrælduglegir í vinn-
unni. Bæjarins besta tók
púlsinn á nokkrum iðn-
aðarmönnum og spurði
þá út í húsverkin og
fleira.
Alfreð Erlingsson
Er mikið í því að elda
– Ertu duglegur heima-
fyrir?
„Ég myndi segja bara í með-
allagi.“
– Hvað finnst þér skem-
mtilegast að gera heima?
„Það er nú bara að vera með
fjölskyldunni, en ef verið er
að falast eftir húsverkum þá
er ég mikið í því að elda.“
– En leiðinlegast?
„Ætli það sé ekki að vinna í
garðinum. Ég er með ákveðna
sýn á það, ef það er gott veður
og maður er úti í garði, þá er
maður að vinna í honum en ef
maður ætlar að slaka á í garð-
inum þá er aldrei gott veður.“
– Ef þú værir ekki í þessu
starfi hvað myndirðu þá
vilja vinna við?
„Ég er nýútskrifaður við-
skiptafræðingur þannig að ég
myndi hasla mér völl á því
sviði.“
– Hvað finnst þér skemm-
tilegast að gera í vinnunni?
„Einhver hönnunarvinna
finnst mér skemmtilegust.“
– Eitthvað fyndið atvik
sem þú hefur lent í vinn-
unni?
„Það eru mörg fyndin atvik
sem hafa komið upp. Það
þekkist oft í bransanum að
iðnaðarmenn eru að stríða
hver öðrum og ég man eftir
einu atviki þegar ég var að
læra og var að vinna uppá
Álafossi. Þá límdum við fé-
lagarnir aftur kistu hjá smið-
unum og þeir þurftu að brjóta
hana upp. Daginn eftir var bú-
ið að skjóta göllunum okkar
uppá vegg með naglabyssu
og þeir voru ónýtir. Það borgar
sig alltaf að fara varlega þegar
grínast er í iðnaðarmönnum.“
Fullt nafn: Alfreð Erlingsson.
Hjúskaparstaða: Giftur.
Börn: Fjögur börn.
Starf: Pípulagningameistari.
Áhugamál: Tónlist og sumarbú-
staðurinn.
Stjörnumerki: Meyja.
Hvort myndirðu vilja vera heims-
meistari í golfi eða kyntákn á
hvíta tjaldinu? Þetta eru nú ekki
margir valmöguleikar. Ég held ég
myndi velja golfið.
Te eða kaffi? Kaffi.
Hermann Þorsteinsson
Í meðallagi duglegur
– Ertu duglegur heima-
fyrir
„Eigum við ekki að segja í
meðallagi. Ég er nú búin að
byggja hús þannig að það hlýt-
ur að teljast sem eitthvað.“
– Hvað finnst þér skem-
mtilegast að gera heima?
„Það er allt skemmtilegt,
það sem til fellur.“
– En leiðinlegast?
„Ég er mesti trassinn í að
ganga frá.“
– Ef þú værir ekki í þessu
starfi hvað myndirðu þá
vilja vinna við?
„Ég bara veit það ekki, hef
aldrei hugsað út í það.“
– Hvað finnst þér skem-
mtilegast að gera í vinn-
unni?
„Það er allt sem til fellur
gaman í vinnunni.“
– Eitthvað fyndið atvik
sem þú hefur lent í vinn-
unni?
„Þau eru svo mörg, það er
ekkert eitt sem stendur upp
úr.“
Fullt nafn: Hermann Þorsteinsson
Hjúskaparstaða: Giftur.
Börn: Tvö börn.
Starf: Múrari.
Áhugamál: Útivist, fjalla- og
ferðamennska, og allt sem snýr að
vinnunni.
Stjörnumerki: Meyja.
Hvort myndirðu vilja vera
heimsmeistari í golfi eða
kyntákn á hvíta tjaldinu? Ja,
það er nú góð spurning, ætli
maður velji ekki golfið, það er
skemmtilegra að spila golf en að
láta taka af sér myndir.
Te eða kaffi? Bæði.
Einar Ágúst Yngvason
Leiðinlegast að þurrka af
vilja vinna við?
„Ég hef ekki hugmynd um
það, hef aldrei spáð í það.“
– Hvað finnst þér skem-
mtilegast að gera í vinn-
unni?
„Það er allt svosem ágætt,
það eru bara misjafnir dagar
eins og gengur og gerist.“
– Eitthvað fyndið atvik
sem þú hefur lent í vinn-
unni?
„Það er ekkert sem ég man
svona í svipinn, annars hefur
– Ertu duglegur heima
fyrir?
„Ég gæti verið duglegri.“
– Hvað finnst þér skem-
mtilegast að gera heima?
„Þegar ég er ekki í vinnunni
þá fer ég mikið á skíði, og
fjölskyldan öll saman. Af
heimilisstörfunum ætli sé ekki
skemmtilegast að ryksuga.“
– En leiðinlegast?
„Þurrka af.“
– Ef þú værir ekki í þessu
starfi hvað myndirðu þá
maður alveg lent í fyndnum
atvikum.“
Fullt nafn: Einar Ágúst
Yngvason.
Hjúskaparstaða: Giftur.
Börn: Þrjú börn og eitt stjúpbarn.
Starf: Rafmagnsiðnfræðingur.
Áhugamál: Skíði og útivist.
Stjörnumerki: Tvíburar.
Hvort myndirðu vilja vera
heimsmeistari í golfi eða
kyntákn á hvíta tjaldinu?
Heyrðu ég þoli ekki golf þannig
að það verður að vera hitt.
Te eða kaffi? Kaffi, svart og
sykurlaust.
„Það er allt frábært að frétta af Fossavatnsgöngunni. Þetta lítur mjög vel út og hátt í 70 skrán-
ingar komnar, en vanalega skrá flestir sig á fimmtudag og föstudag. Mestmegnis eru þetta
skráningar erlendis frá en töluvert líka frá Íslandi. Það stefnir í metþátttöku, það er engin spurn-
ing. Ég er að vona að þátttakan fari yfir 200 manns. Fossavatnsgangan hefur aldrei fengið jafn
mikla athygli og nú og sérstaklega erlendis frá. Það verður þó enn betra á næsta ári en þá ætl-
um við, sem stöndum að göngunni, að kynna hana enn betur ásamt samstarfsaðilum okkar.
Undirbúningurinn gengur vel en þetta hefur verið mikil vinna. Við erum búnir að færa allt okkar
starf í íþróttahúsið á Torfnesi og þar munu skráningar fara fram. Þar munum við einnig bjóða
upp á gúllassúpu á laugardagskvöldið sem er nýbreytni. Fossavatnskaffið verður svo vitanlega
á sínum stað. Ég vona bara að veðrið verði gott en spáin er ágæt. Margir heimamenn bíða fram
á síðustu stundu með að skrá sig þegar ljóst er hvernig veðrið er. Skráningu lýkur á föstudag
og gangan fer fram á laugardaginn.“
17.PM5 5.4.2017, 10:2418