Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Síða 1

Bæjarins besta - 19.01.2005, Síða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk Miðvikudagur 19. janúar 2005 · 3. tbl. · 22. árg. Ísafjarðarbær Fjárhags- áætlun samþykkt Fjárhagsáætlun Ísafjarð- arbæjar var samþykkt með sex samhljóða atkvæðum eftir seinni umræðu bæjar- stjórnar í síðustu viku. Fundurinn stóð í tæpa fimm tíma. Þrír bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar sátu hjá. Allar breytingar- tillögur Frjálslyndra og óháðra voru felldar. Tillaga Samfylkingar- innar um að hækka framlag til Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar um eina milljón króna var samþykkt með 8 samhljóða atkvæðum. – hj@bb.is Vestfirðir Rúmlega áttatíu án atvinnu Á Vestfjörðum eru 83 skráðir án atvinnu að því fram kemur á vef Vinnu- málastofnunar. Sem fyrr eru konur í meirihluta at- vinnulausra eða 62 á móti 21 karlmanni. Þá hefur atvinnulausum fækkað á nýliðnu ári sé tekið mið af upphafi ársins 2004 er 134 voru skráðir án atvinnu en í upphafi árs- ins 2003 voru þeir 87. Einn- ig kemur fram á vefnum að 10 mismunandi störf séu í boði hjá Svæðisvinnumiðl- un Vestfjarða, alls 23 stöðugildi. Þar á meðal er óskað eftir starfskrafti í handflökun, barnagæslu, heimilisstörf og ferðaþjón- ustu. – thelma@bb.is Fjölmenni við minningar- guðsþjónustu í Súðavík Fjölmenni var við minning- arguðsþjónustu sem haldin var í íþróttahúsinu í Súðavík á sunnudag til minningar um þá fjórtán sem létust í snjóflóði í Súðavík 16. janúar 1995. Séra Valdimar Hreiðarsson og séra Magnús Erlingsson þjónuðu fyrir altari og kirkjukór Súða- víkur söng. Undirleik annaðist Sigríður Ragnarsdóttir en einnig lék Jónas Tómasson á flautu. Þegar gestir mættu til guðs- þjónustunnar kveiktu þeir á kertum til minningar um þá látnu. Í athöfninni voru einnig tendruð sex kerti til minningar um þá er létust um leið og nöfn þeirra voru lesin upp. Við athöfnina afhentu af- komendur hjónanna Hrafn- hildar Þorsteinsdóttur og Sveins Salómonssonar Slysa- varnasveitinni Kofra málverk- ið Björgun eftir Bjarna Jóns- son að gjöf. Málverkið var í eigu Hrafnhildar og Sveins og bjargaðist úr rústum húss þeirra. Með gjöfinni vildu af- komendur þeirra hjóna þakka öllu því fórnfúsa björgunar- fólki sem tók þátt í leit og björgun ástvina þeirra. Að guðsþjónustu lokinni bauð Súðavíkurhreppur til kaffisamsætis í grunnskólan- um. Sjá einnig frétt og myndir á blaðsíðu 14. – hj@bb.is Séra Valdimar Hreiðarsson og séra Magnús Erlingsson þjónuðu fyrir altari. Frá afhendingu málverksins Björgun eftir Bjarna Jónsson. Oddný Bergsdóttir tók við verkinu fyrir hönd slysavarnasveitarinnar Kofra. 03.PM5 6.4.2017, 09:231

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.