Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.01.2005, Qupperneq 15

Bæjarins besta - 19.01.2005, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 15 Janúartilboð til Vest- firðinga og lesenda BB! Eruð þið hjónin eða fjölskyldan á leið á höfuð- borgarsvæðið? Hótel Vík, Reykjavík er fjölskylduvænt hótel rétt við Laugardalinn. Hótel Vík er lítið og notalegt þriggja stjörnu hótel í Reykjavík. Á hótelinu eru stór tveggja manna, þriggja manna herbergi og stúdíóíbúð (27m²) sem öll eru búin kæliskáp, síma, sturtu og gervihnattasjónvarpi. Tveggja manna herbergi kr. 5.900.- * Þriggja manna herbergi kr. 7.900.- Stúdíóíbúð kr. 7.500.- * Morgunverður og vsk. innifalinn Hótel Vík Síðumúla 19, 108 Reykjavík · Sími 588 5588 Veffang: www.hotelvik.is · netfang: lobby@hotelvik.is Nóttina fyrir gamlársdag árið 1964 var norðan stórhríð, ég hafði andvara á um nóttina því ég sá þá um að Reiðhjalla- virkjunin væri í gangi, því hún sá alfarið um að Bolvíkingar fengu rafmagn. Í svona veðri var það ekki ósjaldan að hún slægi út og fór ég þá fram í virkjun og setti línuna inn. Sjálfvirkur sími kom ekki í Bolungavík fyrr en árið 1968 svo ekki var mögulegt að láta mig vita þó allt væri rafmagns- laust. Ég vaknaði kl. 04:00 um nóttina þá var allt rafmagns- laust. Þá var norðan stórhríð og sást ekki á milli húsa. Ég hafði til afnota hjá Rafmagns- veitum ríkisins, rúsneskan trukk en komst ekki á honum lengra en fram að Geirastöðum var þá búin að vera hálftíma þangað. Ég var komin fram í virkjun kl. 5:30 og var þá virkj- unin stoppuð og svo kallaður fallloki lokað fyrir aðrennsl- ispípuna upp við stíflu sem er í yfir 300 metrum ofar er stöðv- arhúsið. Ekki var mögulegt að fá neina aðstoð. Ekki ætla ég að lýsa þeim erfiðleikum sem ég lenti í á leiðinni uppeftir í þessari ófærð og myrkri. Ég var komin upp að stífl- unni klukkan að ganga 8:00 og búin að koma rafmagni á kl. liðlega 9:00 en þorði ekki að fara heim strax ef eitthvað kæmi fyrir fljótlega aftur. Ég var komin niður í Bolungarvík um hádegið. Þá var ekki tími til að leggja sig. Veðrið hafði skánað og var Óshlíðin rudd því það átti m.a. að vera mið- nætursdansleikur í Félags- heimilinu. Um kvöldið fórum við hjónin með blessuð börnin að horfa á brennuna. Þó ég hafi verið fastur starfsmaður hjá Rafmagnsveitunum vorum við Karvel Pálmason í auka störfum í lögreglunni og sáum um löggæslu á dansleikjum. Á þessum áramótadansleik logaði allt í slagsmálum. Ég á afrit af lögreglu skýrslum okk- ar frá þessu gamlárskvöldi og þar sést að við þurftum að setja þrjá menn í handjárn eftir slagsmál. Ég kom heim kl. 4:30 en á meðan ég var að hátta mig var bankað hjá okkur og ég beðinn að koma á trukknum rússneska, inn á Ós- hlíð og hjálpa nokkrum bílum á leið til Ísafjarðar sem voru fastir, það hafði hvesst og skaf- ið í ruðninga á nokkrum stöð- um. Ég kom heim úr þessum leiðangri kl. að ganga 10 á nýársdag en gat þá ekki sofnað nálagt því strax vegna þeirrar spennu sem ég var búinn að vera í síðastliðna 30 klukku- tíma. – Jóhann Líndal Jóhannsson. Jóhann Líndal Jóhannsson. Jóhann Líndal Jóhannsson skrifar Eftirminnanleg ára- mót fyrir 40 árum Til sölu er Chevrolet Silverado, 2500, 6,2 dísel, árgerð 1993, ekinn 174.000 mílur. Bíllinn er í mjög góðu standi og mikið end- urnýjaður. Upplýs- ingar gefur Ragnar í síma 892 0660. Til sölu! Ísfirska hljómsveitin Reykjavík Spilar á vegum tón- listarvefrits í London Ísfirska hljómsveitin Reykjavík leikur á tónleikum í London þann 21. febrúar nk. Þar spilar sveitin ásamt tveim- ur öðrum íslenskum hljóm- sveitum, Jan Mayen og Skát- um. „Þetta eru tónleikar á veg- um útvarpsstöðvarinnar X-FM og tónlistarvefritsins Drowned in sound“, segir Guðmundur Birgir Halldórsson, annar gít- arleikara sveitarinnar. „Þarna verður líka gaur sem heitir John Kennedy og er þekktur útvarpsmaður þarna úti. Við tökum líka lagið í út- varpsþættinum hans. Þetta kom þannig til að blaðamenn þessa vefrits sáu okkur spila á Iceland airwaves hátíðinni og létu John Kennedy fá disk með okkur“, segir Guðmundur. Guðmundur Birgir Halldórsson, gítarleikari Reykjavíkur á tónleikum í Tjöruhúsinu á Ísafirði. 03.PM5 6.4.2017, 09:2315

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.