Bæjarins besta - 19.01.2005, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 200516
STAKKUR SKRIFAR
Samhugur
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Smáauglýsingar
Til sölu er Subaru Impreza árg.
1998. Mjög góður og duglegur
bíll. 260 þúsund króna bílalán
getur fylgt með kr. 7.500 afborg-
un á mánuði. Uppl. í síma 892
1694.
Til sölu er fallegt sófasett,
3+1+1 frá versluninni Öndvegi.
Fæst á mjög hagstæðu verði
eða kr. 40-50 þús. Mjög gott
t.d. fyrir fólk sem er að byrja að
búa. Uppl. í síma 895 0292.
Óska eftir snjóbretti í stærðinni
140-150 cm og brettaskó nr.
41. Uppl. í síma 864 2974.
Til sölu er sem nýr harðfiskvals.
Uppl. í síma 892 0660.
Óska eftir skíðaskóm og skíð-
um. Skíði ca. 100 cm og skór
nr. 33-35 og skíði ca. 120 cm
og skór nr. 35-37. Uppl. í síma
456 3172 og 897 6715.
Til sölu er Subaru Legacy, 4x4,
árg. 1999, sjálfskiptur. Góður
bíll. Uppl. í síma 891 6044.
Notuð skíði óskast, stærð 150-
160 cm og skíðaskór nr. 38.
Uppl. í síma 564 0236.
Óska eftir hljómborði, gefins
eða mjög ódýru. Upplýsingar í
síma 868 6799.
Til sölu er Subaru Impreza, árg.
1998. Mjög góður bíll. 260 þús.
kr. bílalán getur fylgt með 7.500
kr. afborgun á mánuði. Uppl. í
síma 892 1694.
Óska eftir að kaupa gönguskíði
á 6 og 8 ára gömul börn. Uppl.
í síma 848 2097.
Til sölu er MMC Lancer GLX,
árg. 2000, ekinn 86 þús. km.
Beinskiptur, 5 gíra, framdrifinn
með 1300 vél. Engin skipti. Uppl.
í síma 861 4679.
Óska eftir að kaupa lítinn lyft-
inga/æfingabekk. Upplýsingar
í síma 846 7490.
Óska eftir lítilli íbúð eða her-
bergi til leigu á eyrinni á Ísafirði.
Uppl. í síma 456 0123.
Óska eftir að leigja 4 herb. íbúð
eða einbýlishús á eyrinni á Ísa-
firði. Uppl. í síma 862 4085.
Óska eftir lítilli 2ja herb. íbúð
til leigu á eyrinni á Ísafirði. Uppl.
í síma 456 5298.
Óska eftir að ráða unglings-
stúlku til þess að líta eftir börn-
um 2-3 kvöld í mánuði og einn
eftirmiðdag í viku. Upplýsingar
í síma 895 2132.
Til leigu er 3ja herb. íbúð frá 1.
maí og fram á haust í Torrevieja
á Spáni. Íbúðin leigist til lengri
eða skemmri tíma. Skemmtileg
og ný íbúð með lofkælingu og
upphitaðri sundlaug. Íbúðin er
mjög vel staðsett. Í göngufæri
frá stórmörkuðum. Uppl. í síma
00 34 965 703 751 eða 00 34
639 556 244 eða á netfanginu
steintora@terra.is
Tónleikar á Þingeyri til styrktar fórnarlömbum hamfaranna í Asíu
Ríflega 300 þúsund söfnuðust
Rúmlega 300 þúsund
krónur söfnuðust á tón-
leikum til styrktar fórnar-
lömbum hamfaranna í
Asíu sem haldnir voru í
félagsheimilinu á Þingeyri
á sunnudagskvöld. Að sögn
Þórhalls Arasonar, eins
skipuleggjenda tónleik-
anna, léku þeir sem fram
komu fyrir fullu húsi gesta.
„Þetta gekk mjög vel og
það voru allir ánægðir.
Tæplega 200 þúsund krón-
ur voru greiddar í að-
gangseyri. Þá gaf ein lítil
stúlka sparibaukinn sinn
og Dýrafjarðardeild Rauða
krossins gaf 110 þúsund
krónur“, segir Þórhallur.
Féð rann allt til Rauða
krossins og tók Bryndís
Friðgeirsdóttir svæðisstjóri
samtakanna á Vestfjörðum
við fénu að loknum tón-
leikum. Hugmyndin að
tónleikahaldinu kom frá
Elísu Línadóttur, nemanda
í Grunnskólanum á Þing-
eyri. „Hún stakk upp á
þessu við kennara sinn fyr-
ir viku“, segir Þórhallur.
Meðal þeirra sem komu
fram voru nemendur úr
Grunnskóla Þingeyrar,
Karlakórinn Ernir, Har-
monikkukarlarnir, Olavi
og Þórhallur frá Þingeyri,
Jazztríó Villa Valla, Blokk-
flautukvartett Suðureyrar
og Gospelkór Vestfjarða.
Páll Önundarson var á
tónleikunum og tók þar
meðfylgjandi myndir.
– halfdan@bb.is
Á sunnudaginn voru liðin 10 ár frá snjóflóðinu í Súðavík. Stund sárra minn-
inga og sumir spyrja hvers vegna að ýfa þær upp? Já hvers vegna minnast menn
slíkra hörmungaratburða? Til þess liggja margar ástæður. Sú helsta er auðvitað
að rifja upp það sem gerðist og læra af því. Minningar fólks, bæði þeirra sem
misstu nána ættingja og eins hinna sem misstu kunningja eða einfaldlega vissu
af því fólki sem dó, eiga rétt á sér. Sorgin er kúnstug og erfitt að lifa með henni,
en útilokað að skella á hana dyrum. Hún bankar upp á hjá öllum mönnum fyrr
eða síðar.
Við lærum líka af því að sjá hvernig fólk tekst á við framhaldslíf með hörm-
ungar að baki. Hvað var gert rétt og hvað rangt? Kannski eiga slíkar spurningar
ekki rétt á sér. Og þó eiga þær réttinn. Hvernig hefði verið umhvorfs í Súðavík
1995 hefðu þeir sem réðu þar fyrir sveitarstjórn vitað fyrir tveimur áratugum
hverjar hættur væru fólgnar í fjallinu? Hver hefðu viðbrögð lögreglu og al-
mannavarna orðið ef vitað hefði verið um það fyrir að slíkur atburður gæti orð-
ið. Því má ekki gleyma að flóðið sem yfirvöld bjuggu sig undir féll um það bil
hálfum sólarhring síðar. Snjóflóðið úr Traðargili hefði ekki kostað mannslíf ef
þess eins hefði verið von. Engu að síður fór næstum illa því það féll nánast á bíl
með hóp björgunarsveitarmanna á leið í hvíld.
Þjóðin tók öll þátt í atburðunum með sorg í hjarta og afleiðingarnar snertu
marga sálina, sem aldrei gleymir þessum voða. Gripið var til aðgerða svo draga
mætti úr hættu. Samt létu tuttugu menn lífið 26. október 1995 á Flateyri og var
þá mannfallið orðið 35 á norðanverðum Vestfjörðum frá 5. apríl 1994, er flóðið
féll á dalina tvo, Seljalandsdal og Tungudal. Að auki féll einn í snjóflóði á
Reykhólum í sömu óveðurshrinunni og lagði Súðavík að velli. Enn muna
flestir snjóflóðið í Neskaupstað 1974, en þar féllu 12.
En heimurinn fylgdist með og studdi Íslendinga og Vestfirðinga, sýndi
samhug með þjóðinni, Súðvíkingum og síðar Flateyringum. Við vorum ekki
ein. Með sama hætti sýndu Íslendingar hug sinn á laugardaginn er sameiginlegt
átak þriggja sjónvarpsstöðva í samvinnu við frjáls samtök sjálfboðaliða og
fleiri skilaði 110 milljónum króna til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna
jarðskjálftans og flóðbylgjunnar í Indlandshafi, sem kostaði 170 þúsund manns
lífið. Kastljós Ómars Ragnarssonar var nærgætin og þó djúp yfirferð í stuttu
máli um það sem gerðist, afleiðingar og viðbrögð.
En hvað höfum þá lært? Margt. En það gleymist fljótt ef ekki er hugað upp-
rifjun. Í þætti Jóns Ásgeirs Sigurðssonar á sunnudaginn benti fyrrverandi
sýslumaður á Ísafirði á mikilvægi þess að taka inn í námskrá grunnskóla fræð-
slu um náttúruhamfarir og viðbrögð þegar þær dynja á. Hann taldi rétt að rifja
slíkt upp að minnsta kosti árlega í útvarpi og sjónvarpi. Við vitum þó það, að
náttúruhamfarir eru fastur þáttur í tilveru Íslendinga og líka að þær sjást ekki
alltaf fyrir. Þjóðin með stjórnvöld í fararbroddi á að heiðra minningu allra
þeirra sem látið hafa lífið í snjóflóðum með því að vekja árvekni meðal okkar
um það sem getur gerst og rétt viðbrögð.
03.PM5 6.4.2017, 09:2316