Bæjarins besta - 22.01.2015, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Ert þú með
græna fingur?
Starfskraftur óskast í Blómaval/Húsasmiðj-
una á Ísafirði. Vinnutími frá kl. 09-18.
Frekari upplýsingar gefa Elmar í síma 693
3120 og Júlíana í síma 660 3156.
Veðrið lék við skíðafólk á
alþjóðlega snjódeginum
Nær 500 manns lögðu leið sína
á skíðasvæði Ísafjarðarbæjar í
Tungudal í gær er þar var haldinn
alþjóðlegur snjódagur sem og
víða um heim. Boðið var upp á
léttar veitingar og Skíðafélag Ís-
firðinga bauð upp á skíðakennslu.
Þá lagði starfsfólk svæðisins
skemmtilegar brautir sem allir
gátu nýtt sér og hinn eini og sanni
íþróttaálfur úr Latabæ mætti á
svæðið og sprellaði eins og hon-
um einum er lagið. „Það var frá-
bær mæting, ég er ekki búinn að
taka tölurnar saman en það voru
á milli 4-500 manns sem komu á
svæðið yfir daginn,“ segir Gautur
Ívar Halldórsson umsjónarmaður
skíðasvæðisins í Tungudal.
„Þetta voru allt frá litlum börn-
um og upp í fullorðið fólk. Veðrið
lék við okkur, skíðaleigan tæmd-
ist og það urðu engin slys á fólki.
Íþróttaálfurinn kom og sprellaði
með krökkunum. Honum var
kannski aðeins orðið kalt á stutt-
ermabolnum en það fylgir því
bara að vera svona töffari. Við
vorum með æfingu á Fossvatns-
leiðinni og það gekk vel þrátt
fyrir að það þyrfti að gera smá
breytingar á loka mínútunum vegna
veðurs. Samkaup, Audi og Vífil-
fell styrktu þetta m.a. og þetta
gekk bara ljómandi vel og það
urðu engin slys á fólki,“ segir Gaut-
ur Ívar sem var að vonum hress
með daginn. – sfg@bb.is