Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.2015, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 22.01.2015, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 15 Lausn á síðustu krossgátu Sudoku þrautir Þjónustuauglýsingar Júlíus í 14. sæti Togarinn Júlíus Geirmundsson ÍS 270 er í 14. sæti yfir aflahæstu frystitogara landsins að því er fram kemur á sjávarútvegssíð- unni aflafrettir.com. Á síðasta ári kom Júlíus með 3.203 tonn að landi af bolfiski. Skipið var einnig á makrílveið- um og veiddi 1.752 tonn af makr- íl. Kleifaberg RE er langaflahæsti frystitogarinn með 11.007 tonn á síðasta ári. Skipstjóri á Kleifa- bergi er bolvíska aflaklóin Víðir Jónsson. BÍ/Bolungarvík hefur náð sam- komulagi við breskan knatt- spyrnumann, Calvin Crooks, um að hann leiki með liðinu í sumar. Calvin er 23 ára vinstri bakvörður en er einnig með bandarískt rík- isfang. Hann skrifaði undir samn- ing við félagið um helgina. Calvin kemur meðal annars í gegnum unglingastarf New York Redbulls og hefur spilað yfir 20 leiki með yngri landsliðum Bandaríkjanna. Calvin hefur spil- að á Englandi síðustu ár, þar af tvö tímabil með varaliði Crystal Palace og einnig liðum í neðri deildum Englands. Samið við enskan bakvörð Eyrarsól lögð niður Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar hefur lagt til við bæjarstjórn að fimm ára deildin á Eyrarsól verði ekki starfrækt á næsta ári. Eyrars- ól hefur verið til húsa á efstu hæð Sundhallar Ísafjarðar. Í fundar- gerð fræðslunefndar kemur fram að deildin hafi verið hugsuð sem úrræði vegna skorts á leikskóla- plássum og yrði starfrækt í tvö ár og að þeim tíma liðnum yrði starfsemin endurskoðuð. Þar sem ekki er sama þörf fyrir leikskólapláss og þegar deildin var sett á laggirnar, er lagt til að deildin verði ekki starfrækt á næsta skólaári, þ.e. 2015-16. Hjónin Ása Dóra Halldórsdótt- ir og Skjöldur Már Skjaldarson hafa tekið við rekstri verslunar- innar á Suðureyri. „Þetta leggst rosalega vel í mig og búðin verður með sama sniði og verið hefur og Súgfirðingar eru duglegir að versla í heimabyggð,“ segir Ása Dóra. Verslunin hefur fengið nafnið Verslunin Súgandi og eins og áður er hún bæði sjoppa og dagvöruverslun með allar helstu vörur. Ferðaþjónustufyrirtækið Fisherman á Suðureyri rak versl- unina í níu ár og Elías Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Fisher- man segir að fyrirtækið ætli að einbeita sér meira að hótel- og veitingarekstri. Nýir rekstraraðilar

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.