Bæjarins besta - 04.06.2015, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
Lausar stöður framhaldsskólakennara
við Menntaskólann á Ísafirði
Við Menntaskólann á Ísafirði eru eftirfarandi kennarastöður lausar til umsóknar
Danska - 25-50% staða
Íslenska 100% staða
Líffræði og efnafræði 100% staða
Málmiðngreinar - 100% staða (málmsmíði, málmsuða og rennismíði)
Vélstjórnargreinar - 100% staða
Umsækjendur skulu hafa fullgild kennslu-réttindi á framhaldsskólastigi í viðkomandi kennslugreinum sbr. lög nr. 87/2008.
Æskilegt er að umsækjandi iðn- og vélstjórnargreina hafi nokkra starfsreynslu í atvinnulífinu. Einnig er æskilegt að umsækjandi um
vélstjórnar-greinar hafi lokið vélstjórnarnámi D og hafi rétt til að vera 1. vélstjóri á skipi með ótakmarkað vélarafl (skírteini: STCW).
Í öllum tilvikum er lögð áhersla á trausta undirstöðumenntun. Sóst er eftir starfsmönn-um sem hafa til að bera góða samskipta-
og skipulagshæfni, þjónustulund, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, áhuga á að vinna með ungu fólki og taka þátt í
þróunarstarfi í kennsluháttum og námsmati og þverfaglegu samstarfi.
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2015. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Kennarasambands
Íslands skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi.
Í anda jafnréttisstefnu MÍ er hvatt til þess að konur jafnt sem karlar sæki um stöður við skólann. Ráðning verður frá 1. ágúst 2015.
Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k. Ekki þarf að sækja um á sérstökum umsóknareyðublöðum en í umsókn þarf að greina frá menntun
(og staðfesta með ljósriti af prófskírteinum), fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti. Tekið skal fram að skv.
4. mgr. 8. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur
refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga.
Umsóknir skal senda til Jóns Reynis Sigurvinssonar skólameistara MÍ sem einnig veitir nánari upplýsingar (sími: 450 4400, netfang
jon@misa.is). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá
því að umsóknarfresti lýkur. Nánari upplýsingar veitir Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari í netfanginu jon@misa.is og í síma 896-
4636 eða í síma 450-4400. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Umsóknir gilda í a.m.k.
sex mánuði ef staða losnar á ný. Á heimasíðunni http://.misa.is er að finna upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Skólameistari
OV fékk viðurkenningu fyrir öryggismál
Á landsþingi Slysavarnafé-
lagsins Landsbjargar sem haldið
var á Ísafirði um helgina var
Orkubúi Vestfjarða veitt viður-
kenning fyrir kerfisbundið vinnu-
verndarstarf og forvarnir sem
stuðla að bættu starfsumhverfi
og öryggi starfsmanna. Þórður J.
Skúlason, umsjónarmaður
öryggismála hjá OV, veitti við-
töku skjali og blómvendi þessu
til staðfestingar. Í tilefni af þessu
má nefna, að OV hefur sett sér
stefnu í öryggis-, heilbrigðis- og
vinnuumhverfismálum, þar sem
stefnan er slysalaus vinnustaður.
Einnig liggur fyrir skrifleg áætlun
um öryggi og heilbrigði á vinnu-
stað.
Orkubúið hefur komið sér upp
innra öryggisstjórnunarkerfi, sem
uppfyllir skilyrði laga um öryggi
raforkuvirkja, neysluveitna og
raffanga. Kerfið er tekið út af
faggiltri skoðunarstofu á þriggja
ára fresti og jafnframt er það
vottað af Mannvirkjastofnun.
Orkubúið var fyrsta rafveitan sem
fékk viðurkennt öryggisstjórn-
unarkerfi árið 1999.
Jafnframt starfrækir Orkubúið
gæðakerfi sem er vottað og tekið
út af óháðum aðila tvisvar á ári.
Vottunin tekur til framleiðslu,
flutnings, dreifingar og sölu á
raforku og vinnslu og dreifingar
og sölu á heitu vatni á Vest-
fjörðum.
Orkubúið er með öryggisnefnd
skipaða fjórum fulltrúum og
einnig er starfandi umsjónar-
maður öryggismála. „Það er ljóst
að nánast daglega þarf að vera
vakandi yfir atriðum sem snúa
að öryggis-, heilbrigðis- og
vinnuumhverfismálum,“ segir
Þórður J. Skúlason.
Birgir Örn Birgisson, fulltrúi í öryggisnefnd OV, og Þórður J. Skúlason með viðurkenningarskjalið og blómin.