Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.06.2015, Side 9

Bæjarins besta - 04.06.2015, Side 9
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015 9 aldast, fingar! anfarin ár.“ Göngum oft fram- hjá golfvellinum ... „Núna ætlum við Bjarni að njóta sumarsins og skoða landið, sem okkur hefur ekki tekist að koma í verk á undanförnum ár- um,“ segir Guðrún. Aðspurð um áhugamál þegar tími hefur gefist segir hún: „Við lesum mikið. Bjarni hefur verið hér í karlakórnum og við höfum ferðast mikið með honum. Ég er ekki mikil hannyrðakona eða neitt þvíumlíkt, en ég hef þó prjónað svolítið, eins og sokka á barnabörnin. En ég hef aðallega lesið. Ég hef gríðarlegan áhuga á ættfræði og hef gaman af henni. Þar hef ég grúskað mikið. Við förum mikið út að ganga og hreyfa okk- ur og hjólum á sumrin og höfum nokkuð stundað stangveiði hin síðari ár. Við reynum einnig að vera mikið með dætrum okkar og fjölskyldum þeirra og vonandi fjölgar þeim stundum núna. Við höfum ekki haft áhuga á golfi, eins og virðist vera mjög í tísku núna, göngum reyndar oft framhjá golfvellinum, en höfum ekki komist nær honum ennþá.“ Hrædd við verðbólguna – Hvernig finnst þér ástandið í þjóðfélaginu um þessar mundir, allt logandi í verkföllum og sí- felldur ófriður alls staðar? „Ég er hrædd við það. Ég er svo hrædd við verðbólguna og þær afleiðingar sem hún getur haft fyrir alla. Ég man vel verð- bólguárin rétt fyrir 1980, þegar maður var að fá 25% launa- hækkun á þriggja mánaða fresti og hækkunin var komin út í verð- lagið áður en kom að fyrstu út- borgun. Ég held að miklar krónu- töluhækkanir séu mjög slæmar, betra sé að hyggja að skattalækk- unum og slíku.“ – Að það sé ekki neinn hræð- sluáróður þegar varað er við mikl- um prósentuhækkunum? „Nei. Það þarf að hækka laun þeirra lægst launuðu, en að fá gríðarlega verðbólgu á nýjan leik væri alveg skelfilegt og kæmi verst niður á þeim sem hafa verið að fá skuldalækkanir gegnum skuldaleiðréttingu stjórnvalda eða lækkanir gegnum Umboðs- mann skuldara. Ég man þá tíð þegar var 50- 60% verðbólga á ári og lánin hjá

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.